Menntamál - 01.11.1944, Qupperneq 26
172
MENNTAMÁL
geyst af stað með að byggja upp félagið. Byrja ekki með
of marga. Annars er Bandalag íslenzkra skáta jafnan
reiðubúið að veita allar upplýsingar og alla aðstoð við
félagsstofnun og starfsemina síðar.
Það er vert að gefa því gaum, að ekki einn einasti
skátadrengur eða skátastúlka mun hafa komizt í „kast
við lögregluna" eða „undir manna hendur,“ svo mikil
brögð sem þó eru að slíku nú.
Ég dvaldi vikutíma nú í septembermánuði að Úlfljóts-
vatni, skólaheimili íslenzkra skáta. Stóð þar þá yfir nám-
skeið fyrir foringjaefni skáta — foringjaskóli—. Þarna
voru drengir víðsvegar að, þótt flestir væru úr Reykja-
vík. Þarna var unnið í kyrrþey gott og nytsamt starf.
Margir góðir menn úr hópi eldri og yngri skáta lögðu
þar hönd á plóginn og tæki það of mikið rúm að rekja
nöfn þeirra, þótt vel væri þess vert, en aðalforingjar og
skólastjórar voru þeir Páll Gíslason læknastúdent og
Ingólfur Guðbrandsson kennari. Það var einkennandi,
hversu mikil festa var í þessu starfi, og hversu sterk
ábyrgðartilfinning var þarna ríkjandi, jafnt hjá yngri
sem eldri foringjum og kennurum. Þarna var gott að
vera, því að þar sveif sá andi „yfir vötnunum", sem öll-
um var hollt að búa við. Þar var glaðvært líf, en þó með
alvöru og ríkri tilfinningu fyrir mikilvægi þess starfs,
sem þarna var verið að vinna. Ég vil nota tækifærið og
senda öllum, sem þarna dvöldu fleiri eða færri daga,
alúðarþakkir fyrir samveruna að Úlfljótsvatni.
Að endingu þetta: Kennarar, kynnið ykkur skátahreyf-
inguna, starfsemi, félagslíf og félagsanda skátanna, og
ykkur mun ekki iðra þess, að hafa varið til þess nokkr-
um tíma og fyrirhöfn. Og sannið til: þið munuð finna
þar verkefni til að láta mikið gott af ykkur leiða, en það
er ósk okkar allra.
Patreksfirði, 1. okt. 1944.
Jónas Magnússon.