Menntamál - 01.03.1945, Síða 3
MENNTAMÁL
XVIII., 3.
MARZ
1945
SKÚLI ÞORSTEINSSON:
Skógræktin og skólarnir
(Höfundur þessarar greinar,
Skúli Þorsteinsson, skólastjóri
á Eskilirði, er Austfirðingur,
fæddur á Stöðvarfirði 24. des.
1906. Hann tók próf úr Hvít-
árbakkaskólanum 1928, og fór
síðan í námsferð um Noreg,
Danmörk og Þýzkaland. Kenn-
arapróf tók hann vorið 1932,
og kenndi við Austurbæjarskól-
ann í Reykjavík 1932—1939, að
hann varð skólastjóri á Eski-
firði. Innan ungmennafélags-
skaparins hefur Skiili að baki
sér langan starfsferil og merki-
legan, því að maðurinn er dug-
legur og ötull, að hverju sem
hann gengur. Hann er nú for-
maður Ungmenna- og íþrótta-
sambands Austurlands.)
Á landsnámsöld var Island allt viði vaxið milli fjalls og
fjöru, að sögn Ara fróða. Hefur þá víða verið fagurt um
að litast og hlýlegt til bólfestu. Þá hafa „angað blóma-
breiður“ í skjóli laufkrýndra stofna, þar sem nú blása svalir
vindar um nakinn svörð. Orðið holt er nú ekki lengur
notað í hinni fornu merkingu, og talar það sínu máli. 111