Menntamál - 01.03.1945, Page 17
MENNTAMÁL
67
Þessi ungu börn vantar enn biblíusögur, sem þeim hæfi.
í þeirri bók eiga að vera valdar sögur, endursagðar á góðu
og léttu máli. Þar eiga líka að vera ýmiss konar barna-
vers. Margar og góðar myndir eiga að vera í bókinni og
hún prentuð með stóru og skýru letri.
Ég hef nokkra reynslu fyrir mér í því, að litlu börnin
myndu taka slíkri bók tveim höndum. Eftir að ég hafði
þýtt kafla þá úr amerísku biblíusögunum, sem birtust í
síðasta árgangi Menntamála (bls. 31—34), linnti sonur
minn sex vetra gamall ekki látum, fyrr en ég þýddi eða
endursagði nokkra fleiri kafla úr sömu bók handa honum
að lesa. Og hann las þá upp aftur og aftur, dag eftir dag.
Niðurlagsorð.
Þetta er orðið lengra mál en til var ætlazt. En eftir því,
sem ég fæ bezt séð, er þessi bók, biblíusögurnar, þannig
samin að efnisvali og framsetningu, að hún getur vel
verið kennslubók í barnaskólunum til frambúðar. Þess
vegna hef ég sem rækilegast bent á þau atriði, sem mér
hefur þótt að betur mætti fara, en þau eru hvorki fleiri
né stórvægilegri en svo, að hægðarleikur er að bæta úr
þeim, þegar bókin verður endurprentuð.
Ó. Þ. K.
Þjóðviljinn
birtir 15. marz s.l. langt og ýtarlegt viðtal við formann Sambands
íslenzkra barnakennara, Ingimar Jóhannesson, um launalögin nýju
og viðhorf kennara við þeim. Skýrir Ingimar þar meðal annars frá
því, hvernig launakjörum kennara hefur verið háttað á ýmsum tím-
um allt frá 1907, og sýnir fram á, hve óheppilegar afleiðingar það
hefur haft og hlýtur ávallt að hafa, að kennarar fái ekki svo mikil
laun fyrir starf sitt, að þeir geti lifað sómasamlegu lífi á þeim. Er
margt athyglisvert í greininni.