Vorið - 04.11.1933, Side 2

Vorið - 04.11.1933, Side 2
5Ó VORIÐ átti bágt með að standa á fóton- um og var fðiur og veikinda- legur i andlitinu. Friða vissi ekkert hvernig á þessu stóð, en hún var svo hrædd þegar pabbi hennar var lagstur upp f rúmið, Hárið hékk niður á ennið á honum og augun voru eitthvað svo gljá- andi og starandi. Hún skreið samt undir sængina hjá honum, og hlust- aði á hin einkennilegu orð og setn- ingar, sem hann sagði. Mamma hjálpaði honum úr fðtunum og kom honum í rúmið, og það leið ekki á löngu áður en pabbi hsnnar var sofnaður og allt varð hijótt. F*á heyrði hún eitthvert einkennilegt hljóð; hún gægðist undan sænginni og sá þá mðmmu sína sitja á rúm- stokknum og gráta sáran, með hendurnar fyrir andlitinui Frfða smokraði sér undan sæng- inni og upp í fangið á mðmmu sinn<. Hún vafði litlu handleggjun- um um bálsinn á henni og þær grétu báðar. Eftir þetta kom það oftar og oft- ar fyrir að pabbi hennar kom beim svona á sig kominn. Stundum kom það fyrir á laugardagskvöldum, þegar mamma hennar hafði fengið peninga fyrir vinnu sfna, að pabbi. hennar kom með hávaða og ólát- um og linti ekki fyrr en mamma mátti fá honum alla peningana, sem hún hafði unnið sér inn um vikuna, og að þvf búnu fór hann og keypti fyrir þá áfengii En nú vakti skólabjallan Frfðu litlu upp úr þessum ömurlegu hugs- unum. Frfmfnúturnar voru liðnan Hún sneri sér við og ætlaði að hlaupa á sinn stað f röðinni smni. En þá kom allt f einu stór snjó- kúla þjótandi f loftinu og Ienti með bylmingingakrafti á enninu á henni. Hún baðaði út höndunum og datt. Pað suðaði svo einkennilega fyrir eyrunum á henni en síðan missti hún meðvitundina. Pegar hún kom til sjálfs sfn aft- ur lá hún á legubekk inni í kenn- arastofunni. Kennslukonan stóð og laut yfir hana, og við hlið hennar stóð telpa, er hún mundi eftir að hafði verið að leika sér úti. Pað var stúikan með fallega skinnkant- inn á kápunni. Nú beygði hún sig yfir Frfðu. »Eg ætlaði ekki að gera þér neitt illt«, sagði hún með titrandi rðdd. »Svona, svona — lofaðu nú Fríðu að jafna sig«, sagði kennslukonan, »svo getur þú fylgt henni heim, Elfn, þegar hún er orðin betri. Hvernig lfður þér Friða mín?c Fríða reyndi að lyffa hðfðinu, en gat það ekki. Hún lagði aftur aug- un og lá hreyfingarlaus. »Auminginn lit!i!< sagr i kennslu- konan og lagði lófann á ennið á Fríðu. En þá kora skólaráðsmaður- inn með einhverja dropa, sem hann hellti upp f Frfðu. Pað hreif. Pað færðist roði f kinnar hennar, og hún opnaði augun og leit í kring- um sig. Og nú fór hún að ná sér. Kennslukonan hjálpaði henni að

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.