Vorið - 04.11.1933, Page 7
VORIÐ
55
Sverrir vissi ekki hvað hann
átti að gera. Gráturinn og reiðin
börðust um i honum yfir þessu
ómaklega háði bankastjórans og
hann sneri sér til föður sfns eins
og hann byggist við hjálp frá
honum. En hann lá nú upp f
lott i lynginu og hló eins og
vitstola maður. Sverrir hefði aldrei
trúað því að pabbi hans gæti
orðið svona og gagntekin af sorg
viðbjóði og blygðun gekk hann
burt frá þeim og lagðist f lyngið
alllangt frá. En söngurinn og
hávaðinn hélt áfram og nú stóðu
félagarnir á fætnr og héldu nið-
ur að vatninu. Sverrir reis npp
og horfði á eftir þeim.
Framh.
Hvar tr svarta vofan, setn býr í turninum?
Til barns.
Sem blíðróma lag er þitt barnamál
og bros þitt sem geislar skarta
sem óskrifað blað er þfn unga sál
sem akurland vors þitt hjarta.
En æskan hin frjálsa fer í hönd
og færir þér gjafir sínar
þú sérð inn f fögur sólskinslönd
þar sumarið aldrei dvfnar
Og sfðar meir — endist aldur þér —
mun alvaran snerta strengi.
— En aflgjafans sprota æskan ber
og áhrif hans vara lengi.
Ó! gefðu þeim rúm í glaumi lffs
og ginningum freistinganna
og stið þig við þau ef strauma kifs
og stormél þú þarft að kanna.
Og geymdu þau vel í gleði og hryggð
á gæfu og þrauta degi.
Sú stöð er á traustu bjargi byggð
sem byggð er á drottins vegi.
M. R.
Ný barnastúka var stofnuð á Pórshöfn
30. ágúst síðastliðinn, af Hannesi J.
Magnússyni umdæmisgæslumanni, og
voru stofnendur 20, og von á fleiri á
næstu fundum. Gæslumenn voru kosnir
Oli P. Möller kennari og kona hans frú
Helga Elfasdóttir. A Pórshðfn hefur
ekki verið barnastúka áður og vill nú
Vorið bjóða þennan litla hóp ung-
templara velkominn í fylkingu þeirra,
sem forða vilja þjóð sinni frá áfengis»
bölinu,