Vorið - 01.12.1949, Page 15

Vorið - 01.12.1949, Page 15
VORIÐ 133 „Góða kvöldið, góðu börnin mín! Ég kem með jólaóskir og kannske gullin fín!“ HINAR (hlæja og klappa saman liöndum): Já, húrra! Alveg rétt! MALEN: Og svo greiðir hann sitt langa skegg með fingrunum. (Hermir eftir honum.) JENNÝ (hlær glettnislega): Og fer og leggur handlegginn ástúðlega á öxlina á ungfrú Juhl! LÍSA: Já, og svo sitja þau og kurra eins og ástfangnar dúfur allt kvöldið. INGA: Já, svei, það er blátt áfrain viðbjóðslegt að horfa á það. Á hverjum jólum höldum við, að það verði alvara úr því fyrir þeim, en. . . . MALEN: Getur nokkur sagt mér, hvernig í ósköpunum á því stend- ur, að þessi maður biður hennar ekki. Jafnvel sá, sem aðeins hef- ur hálfa sjón, getur séð, að hún er blátt áfram veik eftir því að játast lionum. JENNÝ (hlær). Hann þorir ekki. LÍSA: Nei, hann þarf líklega að „stramma" sig upp. — En heyrið þið mig nú. Eigum við ekki að taka okkur til og lileypa dálitlu hugrekki í herrann í kvöld, svo að hann geti sagt þetta óheilia orð? JENNÝ: Hvernig áttu við? MALEN (hlær): Við bindum sprengju á bakið á honum. (Hin- ar hlæja að hverri nýrri uppá- stungu.) INGA: Ég á ágæta stoppnál, — ég skal ábyrgjast, að hún getur gert, jafnvel hinn aumasta durt, alveg óviðráðanlegan af fjöri! LÍSA: Nei, ég veit, hvað ég geri. Ég legg blautan svamp á stólinn, þegar hann sezt. JENNÝ: Ég fæ mér skæri og klippi álfaskeggið hans af. MALEN: Það er sama, vinkonur, eigum við ekki — í alvöru — að gera dálítið „at“ í þeim? ALLAR (í kór): Jéi-ú-ii, það skul- um við gera. MALEN: Us*-ss, — þarna kemur ungfrúin. UNGFRÚ JUHL (kemur inn frá hægri og segir nákvæmlega eins og Inga áður. — Horfir á þær): Géiðan daginn, kæru börn. Lofið mér nú að sjá, að þið verðið reglulega góðar og þægar í kvöld. (Allar hlæja). Eruð þið hérna allar? ALLAR (svara í kór): Nei, Rut og Kristín eru hér ekki.,.. Jú, þarna koma þær. RUT og KRISTÍN (koma inn um dyrnar í baksýn. Þær eru í hrein- um og fallegum fötum, ganga til ungfrúarinnar og taka í hönd hennar). JUHI: En hvað þið eruð fínar! Hlakkið þið ekki til að sjá jóla- tréð?

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.