Bjarmi - 15.06.1910, Side 8
96 B JARMl
daglega umsjón með, með frábærri snild.
Líknarstarf hans er kunnugt um öll kristin
iönd, og Þýzkaland harmar hann einum rómi.
Almenntir kristiiihoðsfiiiidiir verður hald-
inn í K.höfn. 6.-8. september í sumar,
sömuleiðis fyrir öll Norðurlönd — nema Hk-
lega Island.
Frá Svíum. nEvangéliska Loslerlands
SlijlelseiH, eða heimatrúboðsfélagið svenska,
sem jafnframt rekur kristniboð, hefir átt í al-
varlegri innbyrðis baráttu út af biblíukrítíkinni
undanfarin 2 ár, og er óséð enn, hvernig
henni lýkur. Aðalupptökin voru þau, að fé-
lagið gaf út bók eftir Kolmodin háskólakenn-
ara, sem þótti hallast of mjög að efasemda-
stefnunni, og vakti andmæli. Stjórn félags-
ins lýsti því þegar í stað, að sér væri fjarri
skapi að útbreiða biblíukrftík, en vildi þó
hinsvegar ekki að fulltrúafundur félagsdeild-
anna færi að lýsa neinni vanþóknun á út-
gáfu bókarinnar, eins og andmælendur fóru
fram á, þvf að þá mttndi Kolmodin segja sig
úr stjórninni, en hann hafði mörg ár stutt
rnjög kristniboðsstarfið, bæði í ræðu og riti,
veitt kristniboðsskóla félagsins forstöðu, og
kom heim skömmu fyrir aðalfund í fyrra úr
eftirlitsferð unt kristniboðsstöðvar Svia í Suð-
urálfunni. — Auk alls þessa hefði hann alls
ekki flutt neina krftfk í bók sinni — Það var
þvf mjög skiljanlegt, að mörgum ungum og
gömlum starfsbræðrum Kolmodins þætti súrt
f brotið að missa hann úr hópnum og deilan
á fundinum í júní í fyrra yrði bæði um mann-
inn, sem allflestir höfðu treyst mjög vel til
skamms tíma, og um málefnið eða stefnuna,
sem sárfáir vildu verja,
Atkvæðagreiðslan fór svo, að samþykt var
með 133 atkv. gegn 113 að gjöra engar að-
finningar út af útgáfu bókarinnar, en minni
hlutinn undi þvf illa og Wadström prestur,
sem setið hefir í stjórn félagsins um 50 ár,
sagði sig þegar úr stjórninni; hann kvaðst
„heldur kjósa að missa beztu menn, en hin
minstu ritningarorð".
Deilan hélt áfram út um landið, þótt fé-
lagsstjórnin reyndi að miðla málum, og
snemma í vetur kom Kolmodin með hand-
rit í nýja bók, sem stjórn félagssins vildi ekki
gefa út, þótti þar farið oflangt, enda kvaðst
framkvæmdarstjóri bókaverzlunarinaar fara, ef
þessi nýja bók væri gefin út af „Fosterlands
Stiftelsen". — En þá fór Kolmodin úr stjórn-
inni. — Nú bjuggust margir við að deilunni
mundi lokið, og félagsstjórnin bannaði starfs-
mönnum sínum að útbreiða blöð og deilurit
um málið og nefndi þá Facklan og Viiktaren
og síðustu bók Kolmodins o. fl.--------
Þetta „forboð" hafði önnur áhrif en ætlað
var, það var talið ófrjálslegt, skaðlegt og enda
hlutdrægt, og 10. marz í vetur gerði minni
hlutinn samtök um félagsstofnun til þess að :
1.) sporna gegn útbreiðslutilraunum biblfukrf-
tíkurinnar innan „Fosterlands Stiftelsen", 2.) út-
breiða andmælarit gegn krítfkinni, 3.) láta
halda trúvarnarræður, þegar þörf krefur, 4.)
verja og styðja þá, sem verða fyrir óþægind-
um og ofsóknum vegna þess, að þeir treysta
óskeikulleika ritningarinnar".-----Aðvaranir
stjórnarinnar gegn þessurn samtökum hafa
helt olfu i eldinn, svo að útlitið er ekki golt,
hvernig sem fara kann á aðalfundi félagsins,
sem verið er að halda um þessar mundir,
S. Á. Gíslason.
Til kaupendanua.
Kæru vinir! Með þessu tölublaði Bjarma er 4. árgangurinn liálf'iuiður, og þó
fjárhagur blaðsins sé þröngur nú, þá vonum vér, að sumarið greiði úr þvf, eins og öðrum
vanda, þvf að nú fer gjalddagi blaðsins
1- júlí
í hönd. Nú er afaráríðnnili fyrir framtíð hlaðsins, að þér, kæru kaupendur, greiðið nú
andvirði þess svo íljótt sem auðið er; ef þér gjörið það, þá er öllu borgið að þessu sinni.
Vinir' inálefnið, sem blaðið styður til sigurs, bíður nú átekta yðar f næsfn
mániiði. Takið nú einu sinni á þvf mjúkum höndttm, þvf að það er bcztíl málefui hverrar
þjóðar og hvers einstaks manns.
Blessun guðs streymi yfir ykkur í sumar og alla þá, sem ykkur er ant um, til
sjávar og sveita! Rilslj. Bjarma.
Útgefandi: Hlutafélag í Reykjavík.
Ritstjóri: Bjarni Jónsson kennari, Káraslíg 2, Reykjavík.
Afgreiðslu- og innheimtumaður: Sigurjón Jónsson, Lækjargölu 6.
Preiitsmiðjan Gutcnbcrg.