Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.05.1912, Blaðsíða 5

Bjarmi - 01.05.1912, Blaðsíða 5
B .1 A R M I «9 um kristnum trúarflokkum kemur sarnan um það, sem í játning þessari stendur. Hún er öll samhljóða nýjatestamentinu, þótt það tali meir um sum atriði liennar en sum, tali t. d. meir um ptnu, dauða, upprisu og endurkomu Krists, en sumt af hinu sem hún nefnir". Er svo minnst á hvað æskufélögin eigi að gera til þess að efla trúarlífið. Sagt meðal annars: „Æskufélög vor ættu nú að halda áfram með að gjöra kristirmdómsmálið að einu aðalmáli s(nu, þau ættu, meðal annars, að byrja hvern fund sinn, að minnsta kosti alla stærri fundi stna, með einhverri guðrækni. Til dæmis: húslestri, sálmasöng, biflfulestri, ræðuhaldi, bænagerð; einhverju einu af þessu eða fleiru, eftir því sem nú á stendur og hver er upplagður fyrir, Ekki þarf að taka lang- an tíma til þess, io—15 mlnútnr ( hvert skipti. Eitt af ungmennafélögunum „Aftureld- ing" í Mosfellssveit er þegar byrjað á að fylgja ofannefndu ráði. Það fékk séra Frið- rik Friðriksson til að halda kvöldsöng í Lágafellskyrkju á þrettándadagskvöld, áðuren ungmennafundurinn hófst. Geri nú æskufélögin hin þetta, þá er það ágæt byrjun. En ltkar séra Friðriks eru nú svo sem ekki á hverju strái, en góðir prestar eru víða, óg ættu félögin að geta notið að stoðar þeirra. „Skinfaxi" bendir oft á, hve hættulegt kristindómsleysið yrði fyrir heimsmenninguna. T. d.: „Misti Evrópa og Amerika trúna á Krist, þá yrði það sú ailra voðalegasta alls herjarblekking, sem yfir mannkynið hefði komið. Og blekking sú eyðilegði alla sanna andans menning. Sannkristnu mennirnir, sem nú oftast eru þó skástu mennirnir, blekktust þá allra mest. Og öll blekking spillir voða- lega, gerir flesta menn annaðhvort kætulausa, eða þá örvæntingarfulla, eða og sárreiða við alt. Það vita þeir bezt, sem blekktir hafa verið að marki. Annaðhvort jólaljósið eða eilift myrkurl". Meira. Þorvaldur Klaveness, Kristjanlu presturinn nafnkunni, hefir, eins og áður er minst á hér í blaðinu, alveg snúist gegn nýju guðíræðinni. Hann skrifar nieðal annars nýlega í »For Kirke og Kultur* á þessa leið: »Nýju guðfræðingarnir ættu að hætta þessum tilraunum, til að fá Nýja testamentið á sitt mál, heldur segja blátt áfram : »Sam- kvæmt Nýja testamentinu, er Jesús fæddur af meyju, og líkamlega upprisinn •, en þar eð það kemur ekki heim við það, sem við verðum annars varir við — eða með vin- sælum or.ðum sagt »ekki heim við heims- skoðun nútímans* — þá skoðum við sögur þess rangar í þessu efni, eða að minsta kosti vafasamar.* — — — Frumgalli nýju guðfræðinganna er þessi: Þeir halda, að þeir geti keypt sér sættir við nútíðar-vísindin með haltrandi sam- sinningu (Halve Indrömmelser). Þessarhaltr- andi samsinningar hljóta að hafa aðrar meiri í för með sér, samkvæmninnar vegna. og ekki nema staðar íyr, en öllum kristin- dómnum er fórnað. — Menn hafna því, að Kristur hafi verið fæddur af Martu mey. I þess stað trúa þeir, að guð hafi haft áhrif á fóstrið í móðurltfi konu Jósefs, og hafi það við það orðið fyrir fram fært til þess lífsstarfs, að verða opinberun guðs, miljónum til hjálp- ræðis. Trúnni, á líkamlega upprisu Krists, er hafnað. En því er trúað, að andi hans hafi sigrað dauðann, og lifi í guð- legri dýrð, og starfi með guðlegum krafti, miljónum manna til hjálpræðis. Með öðr- um orðum: Yfirnáttúrlegum áhrifum guðs á náttúruheiminn, er haínað, en áhrifum hans í andans heimi, er trúað, enda þótt þau séu þar jafn-yfirnáttúrleg. í raun og veru byggja menn á þvf, að orsaka lög- málið sé órjúfandi í náttúruheiininum, en í andans heimi sé það brothættara, þar megi rjúfa það. En er þetta ekki hálf- velgja og stefnuleysi, sem óhttgsandi er að standist lengi ? Ut af máli síra Arboe Rasmussens, sem vakið hefir miklar deilur í Danmörku með skynsemistrú sinni, skrifar Klaveness og í sömu átt, og segir meðal annars: En það verður að standa óhaggað : Eng- um presti leyfist að hafna opinberlega eða ráðast á trúarjátninguna, eða nokkurt átriði hennar. Það væri ósætnilegt brot, bæði gegn embættisaga og sannleiksást. Er það ekki brot gegn embættisaga, og er það ekki brot gegn sannleiksást, að presturinn standi annan daginn við skírnarlaugina og

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.