Bjarmi

Volume

Bjarmi - 20.12.1918, Page 8

Bjarmi - 20.12.1918, Page 8
184 BJARM I bræðra minna og syslra, sem sitja nú harmþrungnir og vinarsnauðir af því að þeir urðu á liðnu ári að fylgja til moldar dýrmætustu jarðnesku von- unum sínum; send þú engla þína til þeirra, miskunsami Drottinn, svo að þeir sjái opinn náðarhiminn þinn gegnum sorgarskýin, og láttu sorgina verða þeim förunaut til frelsarans. Lof og dýrð sje þjer, Drollinn, að þú vilt bænheyra mig, vilt laða oss alla til þín, hjálpa oss öllum lil að kveðja gamla árið í Jesú nafni. — Ó, að enginn á meðal vor væri sá ógæfu- maður, að liafna þeirri náð þinni. Bænheyr það, faðir vor, í Jesú nafni. Amen. nn ' Tarin. »Dýpsta sæla og sorgin punga svífa hljóðlaust yfir storð, peirra mál ei talar tunga tárin eru beggja orð«. Ö. S. Hún var búin að sitja 7 ár í myrkr- inu, þá tókst góðum augnlækni að hjálpa henni, svo að hún fjekk all- góða sjón. Þegar jeg heimsótti hana, spurði jeg hana, hvað hún hefði sagt, þegar fyrst var tekið frá augum hennar eftir skurðinn og hún sá alt umhverfis. — »Sagði? — Jeg sagði ekkert. Jeg bara fór að gráta«, sagði hún. — Og þegar læknirinn sá tárin hennar, neitaði hann að þiggja borgun fyrir verk silt, honum þótlu þau vafalaust meira virði en peningar. Hún var alvarlega veik »eftirlælis- stúlkan hans pabba síns« þegar pabhi hennar kom heim úr langferð, og því gat hún ekki hlaupið á móli honum eins og systkini liennar, en þegar hann kom inn til liennar, settist hún upp í rúmi sínu, rjetti honum báðar veiklulegu hendurnar sínar og brosti, en tárin streymdu niður kinnar hennar. »Af hverju fórstu að gráta þegar jeg kom í gærkveldi?« spurði pabbi hennar daginn eftir. — »Af þvi mjer þólti svo fjarska vænt um, pabbi minn«, sagði hún. — Slikum tárum gleymir enginn góður faðir. — — Hann fór af stað, lasinn, lil að taka í hendina á góðum vini sínum, sem mist liafði konuna samdægurs. Hann ætlaði að reyna að tala reglu- lega hlýlega og vel við hann, því að hann vissi að skarðið var slórt og missirinn sár. En þegar hann kom inn og sá öll litlu hörnin sorgbilin og ekkjumanninn unga, þá gat hann eiginlega ekkert sagl; það var eins og kökkur í hálsi hans, en tárin runnu niðurkinnarnar. Honumgramd- ist við sjálfan sig og ílýlli sjer burlu, en þó var það aftur seinna eins og liann hefði hugboð um að liann hefði ekki farið erindisleysu og tárinhefðu túlkað hugsanir hans betur en orð. Þannig mælti lelja upp margar sögur, sem sanna fyrnefnt erindi. — þeir eru taldir mæðumenn sem margoft grála, en þegar á alt er litið er þó þrautin þyngri, er táralindin þornar og bjartakuldinn skipar önd- vegi. Minningarorð. Langvinnar þrautir kenna mönn- um oft þolinmæði. Fölleit og þreyll lá hún í rúmi sínu á sjúkrahúsinu, en þolinmæðin skein úr bláu, skýru augunum hennar. Vahjerður Ola/sdótlir lagðist i sjúkra- húsið í Landakoli á öndverðu síð- ostliðnu sumri. Hún kom þangað n sólskinsbjörlum sumardegi, full afvon og lifsþrá. Fram undan lá ófarin braut, vafin í vonarljósi ljúfra æsku- drauina. Hún vonaði fastlega að sjer mundi batna, en tfminn leið, hver

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.