Bjarmi - 01.03.1921, Blaðsíða 5
BJARMI
53
Kristniboðið.
Mjer er gefið alt vald á himni og
jörðu. Farið því og gerið allar þjóðir
að lærisveinum, skírið þá til nafns
föðursins og sonarins og hins heilaga
anda og kennið þeim að halda alt
það, sem jeg hefi hoðið yður. Og sjá
jeg er með yður alla daga alt til enda
veraldar. (Matl. 28, 18—20).
Hvað felst i þessum orðum heil-
agrar ritningar?
Alt vald. Allar þjóðir. Ötl boðorð,
Alla daga.
Það eru fjórir hyrningarsteinar krist-
innar kirkju. Það er grundvöllur kon-
ungsdóms Guðs föður, Guðs sonar,
Guðs heilags anda«. (Dr. Cook).
í þeim felst:
1. Skipun um að reka kristniboð,
— farið og gerið allar þjóðir að
lærisveinum. (Sbr. Mark. 16, 15. Lúk.
2, 10).
2. Tilgangur krislniboðsins — að
gera allar þjóðir að lærisveinum Krists.
(Sbr. Lúk. 19, 10. Postulas. 24, 18).
3. Aðferðin (svo tilganginum verði
náð) — að skíra þá og kenna þeim
að halda alt það, sem Kristur hefir
hoðað þeim,
4. Hjálpin — Ivristur, sem geíið er
alt vald á himni og jörðu, sem er
með þeim alla daga alt til enda ver-
aldar.
»Kemur kristniboðs skipunin þjer
við? Því getur þú ekki skilið í. —
Krislniboðs skipuninni fylgir dj’rlegt
fyrirheili, »jeg er með yður alla daga«,
kemur það þjer við? Gelur þú tekið
til þín fyrirheilið en virt skipunina
að engu?« (W. Carey, frægur enskur
kristniboði).
»Að þekkja Drottinn og gera nafn
hans kunnugt er eini tilgangur lifs |
vors. Og að vjer næðum þeinr til-
gangi hefir Drottinn gefið oss orð [
sitt og Andann. (Dr. Stearns, ame-
ríkskur prestur, nýlega dáinn).
Er pörf á að reka kristniboð? —
Þá er setja Guðs orð æðra skynsemi
sinni vil jeg biðja að lesa: Ef. 2, 12.
Án Krists — vonlausir, guðvana«.
(Sálm. 14, 2—3. Róm. 10, 13-15.
Postulas. 16, 90. — Trúir þú því að
hver einstaklingur þeirra 400 miljóna
er búa í Kína hafi ódauðlega sál og
að »eigi sje neitt annað nafn en Je-
sús, undir himninum, er menn kunna
að nefna, er þeir geli orðið hólpnir
fyrir?« Trúir þú þvi að hann einn sje
»dyr sauðanna«, að liann einn sje
»vegurinn, sannleikurinn og lífið, að
enginn komi til föðursins nema fyrir
Jesúm? Ef svo er, hugsaðu þjer
ástand heiðingjanna. Hvað hefir þú
gert til að fagnaðarerindið verði þeim
boðað?« (J. Hudson Taylor, frægur
enskur kristniboði). — Hvað hefir
þú gert til að nafn Guðs í Kína helg-
ist, riki hans komi og vilji hans
verði?
»Gleymið ekki Afriku. Bráðurn er
starfi mínu lokið, og starf mitt var
að eins byrjun. En nú aríleiði jeg
yður að þvi, að þjer leiðið það til
lykta. Droltinn blessi hvern þann,
ameríkskan, enskan eða tyrknesk-
an mann, er hjálpa vill til að græða
þessa blæðandi und mannkynsins«
þ. e. korna í veg fyrir þrælahald og
þrælasölu. (Livingstone, enski kristni-
boðinn lieimskunni).
Ó. Ó. safnaði og samdi,
(p. t. New-York 1920).
Ólafur Ólafsson kristniboöi er nú kom-
inn til St. Paul og stundar þar nám. —
Heimili hans er: Lutheran Bible Institute
Hamlin Av., St. Paul, Minn., U. S. A.