Bjarmi - 15.08.1922, Qupperneq 7
B J A H M I
151
síðan. Jeg hlýddi þvi, og samstundis var
barnið alheilt, kviðslitið hvarf og barnið
varð albata upp frá pví. Hversu þakklát
var jeg nú að pekkja sannleikansraust,
og livílíkur fögnuður að pjóna nú Guði
og leita hans, en ekki anda og illvætta.
Betur menn þektu gleðina af samband-
inu við Jesúm, þar sem bænin er »mið-
ill« en heilagur andi er leiðtogi. Biblían
segir að margir falskristar hafi farið út
um heiminn og að við eigum að prófa
andana hvort þeir sjeu frá Guði. Edina
Benton, þessi fyrverandi leiðtogi minn
eða umsjónarmaður, sem jeg kallaði hana,
meðan jeg var miðill, sagðí mjer, að af
því jeg lifði í bæn og tryði á Jesúm Guðs
son, þá væri jeg varðveitt frá mörgum
óguðlegum öndum, sem vildu ná yfirráð-
um yfir mjer. Pessi leiðtogi minn virtist
einnig trúa á Guð.
Margir menn, sem stunda spiritisma og
komast eins langt og jeg var komin,
verða aldrei færir að losna þaðan, því
djöfullinn liefir náð því tangarhaldi á
þeim. Andatrúna ættu menn mikillega
að óttast og beinlínis að forðast. Jeghefi
þekt endalok eins nafnkends miðils i
I’ortland Ore, hún veiktist ákaflega og
varð að siðustu vitskert, og þegar hún
var ekki með sjálfri sjer, þá vildi hún
ekki leyía andatrúarfólki að vitja sín, þó
ótrúlegt megi viröast, en vildi láta kristið
fólk koma til sin og tala við sig, og sagði
því að djöfullinn og púkar lians væru i
sjer. Hún dó í örvæntingu, óhæf til að
höndla sannlcik sáíuhjálparinnar, greftr-
un hennar fór fram í kyrþey. Hversu
sorglegt er að ganga í gcgnum dauðans
skuggadal einsamall, með tapaða sál, og
engan er harmi mann látinn.
Kæri lesari!
Eini tilgangur minn með þessum linum
er að vara yður við. — Margir lesa í
frjettablöðum vorum einmilt nú um sam-
band við anda framliðinna, og jeg kem
til að vitna fyrir yður, sem sjálf hefi
vcrið yfirburðamiðill, að það er enginn
veruleiki í þessu svokallaða sambandi, en
það eru framkvæmdir fallinna engla,
samkvæmt ritningunni, sem klæðast mynd
vorra framliðnu, og með undrum lýg-
innar draga á tálar, ef unt væri, jafnvel
úlvalda. Reynsla mín meðan jeg var mið-
■H var sú, að margir urðu truílaðir og
sumir fyrirfóru sjer í þeirri trú að þeir
sameinuðust þá ætlingjum sínum. Anda-
boðskapur hefir dregið margan mann
á tálar. Ósannindi svikaanda hafa valdið
ýmsu tjóni og varpað skugga j'fir lif
margra og val'dið áliyggjum meðal ætt-
ingja.
Pað eru nú liðin bjer um bil 22 ár
síðan Guð leysti mig undan þessari voða-
legu táldrægni djöfulsins. Jesús hefir
hjálpað mjer til að bjarga margri sál úr
þeirri snöru, og bæn mín er sú, að þetta
smárit mætli verða lil að leiða marga
burtu frá andatrúnni, og koma þeim til
að sjá að biblian, guðs orð, er það eina,
sem við getum reitt okkur á, og að okk-
ur beri að treysta útlieltu blóði Jesú
Krists, sem einasta veginum til himna-
ríkis.
Að síðustu vil jeg bæta þessu við:
Gætið yðar fyrir slægð djöfulsins. Verið
ekki að káka við tilraunaborðið, ekki
einu sinni í leik. Margir Krists játendur
hafa það í húsi sinu eins og skemtitæki
lianda börnum sínum og vinum, sem
liafa á þann hátt leiðst inn í andatrúna.
Gætið yðar líka fyrir »Christian Science«,
guðspeki og öðrum þvílíkum trúarbrögð-
um, því þau kannast ekki við að Jesús
Kristur úthelti blóði sínu á krossinum á
Golgata fyrir syndir vorar. Jeg hvet yður
hátíðlega til að snúa yður frá hverjum
þeim trúarbrögðum, sem neita íriðþæg-
ingunni. Hver sem fer um aðrar dyr en
krossins er þjófur og ræningi. segir ritn-
ingin. Mig langar að segja yður frá þvi,
að hver sá er þjónar Guði einum, öðlast
blessaðan frið og livíld, og Guð lætur
engla sina gæta vor og leiða oss á öllum
vorum vegum.
Kæri lesaril
Jeg vildi ekki snúa til andatrúarinnar
fyrir allar miljónir veraldarinnar, því jeg
þekki hennar máttugu blekkingar og
liræðileg endalok þeirra sem áslunda
hana. Sjálfur Guð hefir lýsl bölvun sinni
yfir hverjum þeim sem veita henni við-
töku.
Glöð og fús í þjónustu meistarans.
Cecilia Walizhauser
317 Elm. St. W. Alhambra.
Calif.