Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.01.1924, Qupperneq 7

Bjarmi - 01.01.1924, Qupperneq 7
ÖJARMl 3 kristniboð gefi nokkuð í aðra hönd, hvort það endurgjaldi erfiðið, verð- um við að taka tillit til reynslu ann- ara, Reynslan er óvilhallur dómari. Og í þessu máli hefir hún marg- endurtekið úrskurð sinn nú í rúm 120 ár, svo ótvíræðan úrskurð, að daufir gætu heyrt og blindir sjeð. Það hefir ávalt verið óbrigðull vor- boði er kirkjan tók að gegna kristni- boði; það hefir markað merkustu tímamót sögu hennar, og jafnvel sögu þjóðarinnar, sem hún tilheyrðí. »Hinu öfluga kristniboði Bandaríkjamanna fylgdi lausn svertingja úr þrældómi«. Er það eftirtektavert, að lönd þau, sem mestum mannafla og meslu fje hafa varið til kristniboðs, standa öll- um öðrum ofar hvað þjóðþrif og kirkjulegt líf snertir. »í enska kristni kom nýtt líf og eldlegur áhugi eftir að kirkjan fór að sinna kristniboöi. Með kristniboði Þjóðveaja fylgdi end- urvöknun trúarlífsins og kristilegur fjelagsandicc. »Krislniboðsfjelögin hafa verið fyrirmynd og frumkvöðlar alls annars kristilegs fjelagsskapar með Norðmönnumcc, ritar merkur prestur í Björgvin. Kafli sá í trúboðsfræðum, er fjallar um endurverkun krislniboðsins, hefir ekki enn þá verið skráður á okkar lungu. Tröllauknar hugmyndir höf- um við um erfiðleika og kostnað sem kristniboði eru samfara. En að því fylgi blessunarrík endurverkun, guð- dómlegt endurgjald, sem kirkjan má ekki án vera, ef hún á lífi að halda, hefir fæstum okkar í hug komið. En hvað sem því líðar, þá mun ókom- inn tími sanna það, engu síður en fortíðin, að vöxtur og andlegt gengi hvers einasta kristins safnaðar er undir afstöðu hans til kristniboðs- skipunarinnar komin. Og enginn svíki sjálfan sig með fögru heiti um að hefjast handa þegar búið er að koma öllu í gott horf heima fyrir. Á móti því mælir reynsla postulakirkjunnar og allra styðjenda seinni tíma kristni- boðsins. Á móti því mæla kristin trú og kristinn kærleikur, því trúin hlýðir tafarlaust, og Drottinn ryður veg allra þeirra, sem í trausti hans hjeldu af stað. Iíærleikurinn til Krists og bræðr- anna knýr til hlýðni, til fórnfúsrar þjónustu án nokkurs tillits til endur- gjalds. En aftra má trúnni að hlýða, og setja má kærleikanum takmörk, en þá er jafnframt kveðinn dauða- dómur yfir kristilegu lífi. Kristnir íslendingarl Hefjumst nú handa í Drottins nafni. Fátækir er- um við og fáir, en gefi Guð oss í ríkum mæli kristilega trú, von og kærleika, höfum við bæði aflið og auðinn, sem til þessa skal. Ef vjer unnum islenskri kristni, hlýtur það að hryggja oss, að hún hingað til hefir farið á mis við blessunarríka endurverkun kristniboðsins. Fyrir löngu ritaði merkur prestur heima í »Kirkjublaðið« langa og góða grein um kristniboð. Hann kemst svo að orði: »Ef vjer eigi gerum skyldu vora að boða heiðingjum kristni, þá er viðbúið, að dauði og afturför komi yfir kirkjulíf vort. — Trúboðið úti í löndum mundi reynast eitthvert besta ráð til að fullkomna trúarlífið heima fyrir og útrýma úr því heiðindómicc. Því »kristindómur er vara, sem eykst við úlflutningcc. Rað eykur víð- sýni vort, að vinna að kristniboði úti í heimi; það styrkir bróðurkær- leikann, svo vjer ávalt minnumst, að vjer erum »í skuld við allacc, af því oss er trúáð fyrir fagnaðarerindi, sem heimurinn getur ekki án verið. Það eykur hjálpfýsi og fórnfýsi einstakl- inga og safnaða. Það sameinar starfs- krafta, sem starfinu heima fyrir veit-

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.