Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 15.02.1926, Blaðsíða 3

Bjarmi - 15.02.1926, Blaðsíða 3
B J A R M I 3ð mæla með, því ýmsar ástæður geta verið fyrir hendi, er orsaki það, að einstaklingnum finnist annar biblíu- kafli frekar ná til bjarta síns, eitt- livert skifti öðru fremur, heldur en sá sem tiltekinn er í leiöarvisinum þennan eða binn mánaðardaginn. Jeg vil tilfæra það sem dæmi, að á sorgar- og saknaðarstundum veit jeg ekki annan húslestur er betur mundi hugsvala harmandi sálum, en einmitt skilnaðarræða frelsarans, sem er að finna í guðspjalli Jóhannesar 14.—16. kapitula, að viðbættum þeim 17., er hefir inni að halda æðstapreslslegu bænina er svo er nefnd. Eins virðist mjer að við missira- og áraskifti sjeu margir af lofgerðarsálmunum í Da- viðssálmum heutugur og vel tilfallinn húslestur. Auk þessa gela fjölmargir aðrir bibliukaflar komið lil greina við áðurgreind tækifæri, því heilög rilning hefir það fram yfir allar húslestrar- bækur, hvort sem þær nefnast »hug- vekjur« eða »postillur«, að þar sem efni þeirra er tœmandi, þá er hún ótæmandi, þvi að hún ein er i sann- leika Guðs opinberaða orð, en hug- vekjur og postillur að eins mannleg skilgreining þess orðs, og hún oft mis- jafnlega Ijós. Að jeg nú ekki tali um það, þegar slíkar bækur hafa í raun og sannleika alt annað inni að halda en bibliulegan kristindóm. Er ekki laust við að slíkra bóka hafi orðið vart hjá okkar þjóð uú á siðustu ár- um. Virðist mörgum að sem dæmi mætti nefna »Árin og eilífðin«, þó ekki verði farið lengra úl í það mál að sinni. Enginn má skilja það sem hjer er ritað svo, sem jeg lelji hug- vekjur og prjedikanasöfn alls ónot- hæfar bækur til guðræknisiðkana í heimahúsum, siður en svo, að eins að slikar bœkur tali máli bibliulegs kristindóms, það er aðalatriðið, Jeg vil ekki skilja svo við þetta mál, að jeg ekki um leið skýri frá því, hvaða húslestrarbækur aðrar en biblían hafa komið mjer best að andlegum notum sem einstaklingi, ef verða mætti, að þaö gæti fyrir Guðs náð orðið ein- hverjum til gagns og leiðbeiningar. Á bernskuárum minum var Vídalíns- postilla eingöngu notuð til húslestra á helgum dögum á heimili minu. og á fullorðinsárum minum helir sú skoðun fest rætur hjá mjer, eftir tölu- verl náin kynni af þeirri bók, að hún eigi enn allmikið erindi til nútíðar- fólks, væri hún gefin út á ný. Er lengra leið, voru helgidagaprjedikanir Pjeturs sáluga biskups hafðar til hús- lestra á helgum dögum, en lengst þó helgidagaprjedikanir Helga sáluga Hálfdánarsonar og »Guðspjallamál« sra Jóns sáluga Bjarnasonar, silt árið hvor bókin, og svo er enn. Um tvö síðastnefndu prjedikanasöfnin vil jeg segja það, að prjedikanir Helga sál. Hálfdánarsonar virðast mjer hæfilega langar, mjög ljósar og innihaldsríkar, þrungnar af trúaralvöru og sannfær- ingarkrafti, og flytja i sannleika biblíu- legan kristindóm, og skiftir það mestu máli. Aftur á mót finnast mjer prje- dikanirnar i »Guðspjallamálum« sra Jóns sál. Bjarnasonar heldur langar, en þrungnar eru þær sem hinar af trúaralvöru og sannfæringarkrafti, og ekki er það að efa, að biblíulegan kristindóm flytja þær. Einnig hjálpar heimfærsla ýmsra dæma úr daglegu lífi i fortíð og nútíð, og tilvitnanir í mörg merk ljóð mikið til þess, að gefa þeim gildi og auka ágæti þeirra. Væri snjallræði fyrir presta að taka slíka heiinfærsluaðferð upp til eftir- breytni, án þess þó, að setja sjálfa »bók bókanna«, heilaga ritningu, til hliðar, því það gerði sjera Jón sál. Bjarnason aldrei. — Til kvöldlestra á rúmlielgum dögum voru er jeg fyrst man eflir notaðar á minu heimili svo

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.