Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 15.02.1926, Blaðsíða 12

Bjarmi - 15.02.1926, Blaðsíða 12
‘18 BJARMI (eyðing) bókstaflega, og ætlar að þar sem talað er um eilífan dauða, eða »annan dauða« (sbr. Opinb. 20, 14) sje átt við gjöreyðingu. Hallesby prófessor segir í trúfræði sinni um þessa skoðun meðal annars: »Enda þótt skilja megi orðin ánojkdu og oh&Qog bókstaflega eða sem gjör- eyðingu, þá eru þau ekki svo notuð í nýja testamentinu. Oss er nú kunn- ugt að rjett fyrir og um daga Krists trúðu Gyðingar að kvalir óguðlegra væru endalausar, Kristur hefir staðfest þá skoðun (sbr. meðal annars Matt. 25, 46.). Frumsöfnuðurinn kristni hefir þvi hlotið að hafa þá skoðun. I’egar svo höfundar nýja testam. tala um »glötun» og »eyðingu« án þess að ympra á, að þeir viki frá almennri skoðun Gyðinga, sem Kristur hafði slaðfest og almenn var í söfnuðinum, þá hljótum vjer að telja þá sammála samtið sinni í þessum efnum«. Oss þætti ekki ólíklegt að ein- hverjir lesendur hugsi: »Pví er verið að skrifa um þetla í blaðið? Allir eru hættir að tala um djöful og helvíti, og nú trúir enginn þeim ósköpum að nokkur maður lendi þar. — Og Bjarmi fær mig ekki til að fallast á neitt þvilíkt«. Þú ræður því, lesari minn, hvort þú vilt fallast á það, sem hjer er sagt eða ekki; en hitt lelur ritsijór- inn skyldu sína að minna lesendurna á aftur, að enginn talar i bibliunni jafn oft og ákveðið um eilífa glötun og djöfulinn eins og Jesús Krislur sjálfur. Gagnvart þeim ummælum hans er ekki um margt að velja: Annaðhvort eru þau sönn eða ósönn. Sjeu þau ósönn, þá hefir annaðhvort Kristi skjátlast, eða höfundar guð- spjallanna fært orð hans úr lagi, og eignað honum sinar skoðanir. Sjeu þau sönn, þá haggar þeim engin vantrú, hvorki einstaklings nje mill- jóna. Ef þú heldur að Kristur hafi vilj- andi eða óviljandi sagt rangt frá þessu, — hvernig getur þú þá treyst honum í öðrum efnum? Og hvað verður um kristindóm þinn ef þú vantreystir Kristi? Ef þú heldur, að öll ummæli Krists um glötunina sjeu eignuð honum ranglega, hvaða tryggingu hefir þú þá fyrir því, að nokkuð sje rjett eftir honum haft í guðspjöllunum? Von- andi hugsar þú ekki svo barnalega, að það, sem þér sjálfum fellur best úr ræðum hans, sjeu hans orð, en alt hitt »viðbætur og rangfærslur«. — Kristur hefði ekki verið krossfestur, et fólkinu hefði fallið flest eða all vel, sem hann sagði. — Menn reið- ast heldur ekki þeim ræðumanni, sem hvergi særir tilfinningar áheyr- enda sinna. Hafi Kristi ekki skjátlast, og sjeu orð hans rjett flutt í n.-testam., er þá ekki blátt áfram fásinna og ógæfa að loka augum sínum fyrir ægileg- ustu slaðreyndum tilverunnar, þóll þjer eða mjer falli þær ekki? — — Að lokum má minnasl á fáeinar almennar mótbárur gegn eilffri van- sælu. 1. »Pað er óhugsandi«, segja menn, »aö kærleiksrlkur og rjetllátur Guð kvelji verur um eilifð, honum marg- fall minni máttar, enda þólt þær hafi óhlýðnasl honum þelta örslutta jarð- líf«. Þessi almenna mólbára styðst við tóman misskilning. Það er ekki Guð, sem rekur mennina út í eilífa van- sælu; fari þeir þangað, þá eru það þeir sjálfir, sem kjósa sjer þar stað. Það er því í raun og veru »villandi« að tala um »útskúfun«. Það er eng-

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.