Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 15.02.1926, Blaðsíða 9

Bjarmi - 15.02.1926, Blaðsíða 9
B JARMl 45 um byggt hans heilaga nafni — og helgað með öllum okkar bestu og göfugustu tilfinningum, má ekki af- rækja að heldur, Munu þeir og helst þangað koma, sem innilegast tala við Guð í heimahúsum eða undir blá- hvelfing alheimsmusteris hans. En þrátt fyrir mörg messuföll og fáa kirkjugesti, hefir Skeiöflatarkirkja dregið til sín hugi manna. Hún hefir að eðlilegum hætti orðið miðdepill hinna andlega strauma hjer í s. 1. 25 ár. Hjer hafa prestarnir flutt lær- dóminn um Frelsarann og vísað mörgum ungling leiöina til hans og vors algóða Föðurs. Þeir liafa frætt ungdóminn og fermt hjer mörg börn á hverju ári. Hjer hafa einnig krop- ið við altarið inörg hjón er bundust trygðaböndum og meðtóku blessun frá Drottni. Hjer hafa margir — en þó alt of fáir — minst Frelsara síns í hinni heilögu kvöldmáltið. Og tekið sjer göfuga og góða ásetninga við náðannáltíð hans. Hjer hafa einnig að síðustu numið staðar vinir og vandamenn margra þeirra er hvíla nú undir grænum leiðum hjer i garð- inum úti fyrir. Því í þessi 25 ár, hafa myndast hjer rúm 50 leiði. margir liggja nú þar, að líkama til, er ernir voru og á besta skeiði þegar þessi kirkja var bygð. Þannig eru nú lilfinningastundir vorar allmargra, yngri og eldri búndnar hjer. Og þetta hús er að ávinna sjer þá hlýju í hugum sóknarmanna, sem ætti að hvetja þá til að vera hjer sem oflast við lielg og hátiðleg tækifæri. Þá verður kirkjan okkar vörm. Þá verður hún vel útlitandi, og enginn dregur sig þá í hlje, að rjetta henni hjálpar hönd. Við höfum nú í dag numið staðar i Guðshúsi, til þess að ryfja upp með okkur 25 ára tilveru þess. Um leið ryfjum við upp með okkur gleði- stundirnar þar, sorgarsporin, sem við eigum hjer, bænastundirnar og ár- angur þeirra. Og okkur finst þetta hús vera vígt okkar helgustu áhrifa- stundum. Þegar við svo göngum hjeðan, skulum við sameiginlega biðja góðan Guð, að glæða kirkjurækni okkar, því við þurfum þess sannar- lega með að koma hjer saman oftar en verið hefur, til þess að nálgast okkar himneska Föður í einingu andans. Og við munum sanna, að því oftar, sem við komum hjer til þess, því farsælla verður okkur líf- starfið heima og því innilegra sam- talið við Guð í heimahúsum. Leggj- um því ekki kirkjuræknina á högg- stokk tísku og tómlætis. — Leggjum eigi niður góðar og gamlar feðra- venjur, eins og uppfræðslu barnanna í kirkjunni og altarisgöngur. Komurn með börnunum okkar þangað, en sendum þau ekki ein inn að borði Frelsarans. Vermum kirkjuna meö lieitum tilfinningum og bænaranda, svo vjer sjeum lifandi steinar and- legs musteris, sem uppbyggist hjer í Jesú nafni og tökum undir með trú- arskáldinu: »Indælan blíðan, bless- aðan fríðan bústaðinn þinn« o. s. frv. Drottinn, blessa þú okkur öll þessa stund, og styrktu hverja þá og hugga, sem á næstu 25 árum vinna til við- reisnar kirkju þinnar hjer. Láttu lákn krossins, ekki gnæfa hjer í framtið- inni yfir beinagrindum einum, heldur og yfir þeim lifandi mönnum í and- anum, sem í alvöru — þó í veik- leika sje — starfa fyrir eilífðarmálin í nafni Frelsarans Jesú Krists. Þá munu eftirkomendurnir Iíta með vel- þóknun á slarfið og minnast með hlýju leiðanna, sem fjölga hjer fyrir utan, og faðirinn algóði gjalda launin í sínu dýrðar musteri fyrir náð og friðþægingu Jesú Krists. Eyjólfur Guðmundsson.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.