Bjarmi - 01.03.1927, Qupperneq 1
BJARMS
= KRISTILEGT HEIMILISBLAÐ
XXI. árg. Reykjavík, 1. mars 1927. 8. tbl.
Kenn þeim ungu þann veg, sem þeir eiga að ganga.
Safnaðarprestaskólinn.
FJestir lesenda Bjarma munu kann-
ast við Safnaðarprestaskólann i Os-
ló, enda hefir hans verið getið í blað-
inu. Tilefni slofnunar hans var bar-
áttan gegn nýguðfræðinni. Undir alda-
mótin síðustu ruddi sjer stefna þessi
enn öflugar braut inn í hina norsku
kirkju en áður.
Einstaka prestar áttu þar hönd í
bagga, en einkum var það þó verk
guðfræðisdeildarinnar. Flestir pró-
fessóranna voru mjög fjdgjaudi hinni
nýju stefnu og þeir drógu brált ineð
sjer allan fjölda stúdentanna, Þá átti
þó eldri stefnan einn duglegan fylg-
isrnann við skólann, dr. Sig. Odland,
próf. í ný-testamentlegum fræðum, hinn
lærðasta mann. Hann andæfði hinni
nýju stefnu bæði í ræðu og riti.
Ástandið við háskólann varð nú
trúuöu fólki um land alt efni mikill-
ar sorgar og margir bjuggust til
varnar hinni götnlu trú. Frægastur
allra er hinn gamli biskup á Krist-
jánssandi J. C. Heuch.
í bók sinni »Móti straumi« (1902)
tók hann ómjúkum höndum á hinni
nýju »skynsemistrú«. Orðrómurinn
um hina drengilegu sókn og vörn
hans barst víða um lönd.1)
1) Bók hans var prentuð 6 sinnum á
2 árum, og væri enn stuðningur fyrir þá,
sem nú viija verja trú sína hjerlendis.
Ritstj.
Fylgifiskar nýju stefnunnar urðu
vitanlega óðir og uppvægir við slík-
ar viðtökur og einkum höfðu þeir
horn í síðu hins djarfmælta biskups.
Hófst nú hin mesta kirkjudeila. Og
er ráðgert var að gjöra nýguðfræð-
inginn Jóhannes Ording að prófess-
or í trúfræöi, harðnaði baráttan enn
meira. Hin svo nefnda »prófessor-
deila« hófst, en endir hennar varð
sá, að Ording var gjörður professor,
en Odland mat meira trú sína og
sannfæring en stöðu og sagði af sjer.
Nýguöfræðingar rjeðu nú lögum og
lofum við háskólann og prestaefnin
voru i greipum þeirra. Fað var þvi
mest um vert að koma á annari guð-
fræðisdeild, er skipuð væri prófess-
orum, sem kendu samkvæmt hinu
nýja testamenti og trúarjátning kirkj-
unnar. Reyndi nú á dugnað og sam-
tök hinna trúuðu manna, ef koma
skyldi á slíkum skóla. Brautryðjand-
inn var Odland, hinn gamli og guð-
hræddi prófeseor. Hann ferðaðist um
landið og skoraði á menn að stofna
prestaskóla óháðan allri nýguðfræði.
Var því hvervetna vel tekið og safn-
aðist allmikið fje til skólastofnunar.
Að tilhlutun Odlands og fjölda mætra
manna hóf svo Safnaðarprestaskól-
I inn slarf sitt 1908.
Byrjunin var þó ekki stór. Híbýl-
in, sem tekin voru á leigu, voru bæði
óhentug og ónóg og gátu auðvitað
hvergi jafnast við byggiugu háskól-
ans. Skólinn hafði hvergi nærri full
rjettindi á við háskóladeildina. Tala