Bjarmi - 01.03.1927, Side 3
B J A H M I
55
ar. Það er þó ekki mælskan, sem lað-
ar mest, heldnr hinn hispurslausi og
einarðlegi vitnisburður hans um
frelsarann.
K. Vold er prófessor í Gamlatesta-
mentisfræðum. Hann er rithöfundur
og allvel mælskur. í fyrirlestrum sín-
um er hann svo hnittin og gaman-
yrtur að vart verður hlátri varist.
Um alla prófessorana má segja, að
þeir gera sjer far um að beina stúd-
eutunum leið til sjálfstæðrar þekk-
ingar og vilji engan veginn að þeir
»fylgi í blindni kenningum lærifeðra
sinna«. En umfram alt leitast þeir
við að leiða stúdentana til trúarinn-
ar á Jesúm og leiða þeim fyrir sjón-
ir, að án þessa sjeu þeir ekki hæfir
til prestþjónustunnar. þeir grundvalla
námið á fagnaðarerindinu og mark-
miðið er, að prestaefnin skuli geta
boðað hinn krossfesla og upprisna
Jesúm Krist með lifandi sannfæring
og óbilandi trúnaði.
í bókasafninu má ekki einungis
finna öll hin helstu rit eldri stefn-
unnar, heldur og fjölda mörg af rit-
um hinnar nýrri stefnu. Og í fyrir-
lestrunum er lekið tillit til skoðana
nýguðfræðinga og þær hraktar með
rökum, er þær koma í bága við ritn-
inguna og trúarreynslu kirkjunnar.
Nemendur fá að kynnast báðum
stefnum.
t»ó mikið sje annríki, er fjelags-
lífið við skólann í raesta blóma og
alt miðar það að efliug trúarlífsins
meðal nemendanna. Kristilegt stúd-
entafjelag hefir fundi sína í skólan-
um í hverri viku. Ávalt eru þeir vel
sóltir enda eru þeir bæði hvetjandi
og skemtilegir. Er á mörgum góðum
ræðumönnum völ. Nefna má Halies-
by prófessor, hinn mælska og guð-
hrædda Ósló-biskup, Jóhann Lunde
og hinn hærukrýnda prófessor Od-
land. Einu sinni í viku safnast stúd-
entarnir lil bibliulestra, með liku
sniði og í K. F. U. M. heima. Nem-
endur hafa einnig smá fjelög, sem
veita æfingar í að skýra ritninguna.
Er það góð hjálp við námið og fje-
lög þessi hjálpa til að knýta nem-
endurna þeim bróðurböndum, sem
seint rofna. Fjelagsmenn taka sig oft
sainan um að vera til allaris. — Á
sunnudögum sækja nemendur auð-
vitað kirkju eða önnur samkomuhús
og njdega hefi verið komið á lítilli
kirkju handa stúdentum.
í sumarfríunum eru haldin kristi-
leg 'túdentamót. Fyrir nokkrum ár-
um mundu eigi margir hafa haft trú
á, að hægt væri að safna saman
stúdentum til slíkra funda, sem líkj-
ast mest vakningasamkomum, og
baldnir eru um hásumar, þegar hit-
inu er mestur. Nokkrir trúaðir menn
tóku sig þá saman og báðu Guð,
sem alt megnar, að greiða leið. Og
nú eru mót þessi haldin sumar eflir
sumar og mjög fjölsótt, eigi að eins
af norskum stúdentum, heldur einnig
dönskum og sænskum. Efla þau
mjög samúð hjá stúdentum, en trú-
arlifið þó mest. Á ýmsutn stöðum eru
haldin guðfræðingamót og eru þau
einnig vel sótt. Háskóldeildin hefir
reynt að korna á samskonar fund-
um handa ný-guðfræðingum, en eigi
lánaðist að fá svo marga þátttak-
endur að hægt væri að koma þeim
við.
Prófessorarnir taka mjög þált i
fjelagslífi nemendanna. Hallesby er
jafnan einn af ræðumönnunum á
stúdentafundum. Og vor og haust
halda þeir öllum nemendum sam-
sæti í skólanum; en auk þess bjóða
þeir þeim heim til sin einu sinni
eða tvisvar á óri. Sjerstaklega verða
stúdentunum minnisstæðar heitn-
sóknirnar bjá Hallesby og samræð-
urnar viö hann. Einn stórbóndi í ná-