Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.03.1927, Qupperneq 3

Bjarmi - 01.03.1927, Qupperneq 3
B J A H M I 55 ar. Það er þó ekki mælskan, sem lað- ar mest, heldnr hinn hispurslausi og einarðlegi vitnisburður hans um frelsarann. K. Vold er prófessor í Gamlatesta- mentisfræðum. Hann er rithöfundur og allvel mælskur. í fyrirlestrum sín- um er hann svo hnittin og gaman- yrtur að vart verður hlátri varist. Um alla prófessorana má segja, að þeir gera sjer far um að beina stúd- eutunum leið til sjálfstæðrar þekk- ingar og vilji engan veginn að þeir »fylgi í blindni kenningum lærifeðra sinna«. En umfram alt leitast þeir við að leiða stúdentana til trúarinn- ar á Jesúm og leiða þeim fyrir sjón- ir, að án þessa sjeu þeir ekki hæfir til prestþjónustunnar. þeir grundvalla námið á fagnaðarerindinu og mark- miðið er, að prestaefnin skuli geta boðað hinn krossfesla og upprisna Jesúm Krist með lifandi sannfæring og óbilandi trúnaði. í bókasafninu má ekki einungis finna öll hin helstu rit eldri stefn- unnar, heldur og fjölda mörg af rit- um hinnar nýrri stefnu. Og í fyrir- lestrunum er lekið tillit til skoðana nýguðfræðinga og þær hraktar með rökum, er þær koma í bága við ritn- inguna og trúarreynslu kirkjunnar. Nemendur fá að kynnast báðum stefnum. t»ó mikið sje annríki, er fjelags- lífið við skólann í raesta blóma og alt miðar það að efliug trúarlífsins meðal nemendanna. Kristilegt stúd- entafjelag hefir fundi sína í skólan- um í hverri viku. Ávalt eru þeir vel sóltir enda eru þeir bæði hvetjandi og skemtilegir. Er á mörgum góðum ræðumönnum völ. Nefna má Halies- by prófessor, hinn mælska og guð- hrædda Ósló-biskup, Jóhann Lunde og hinn hærukrýnda prófessor Od- land. Einu sinni í viku safnast stúd- entarnir lil bibliulestra, með liku sniði og í K. F. U. M. heima. Nem- endur hafa einnig smá fjelög, sem veita æfingar í að skýra ritninguna. Er það góð hjálp við námið og fje- lög þessi hjálpa til að knýta nem- endurna þeim bróðurböndum, sem seint rofna. Fjelagsmenn taka sig oft sainan um að vera til allaris. — Á sunnudögum sækja nemendur auð- vitað kirkju eða önnur samkomuhús og njdega hefi verið komið á lítilli kirkju handa stúdentum. í sumarfríunum eru haldin kristi- leg 'túdentamót. Fyrir nokkrum ár- um mundu eigi margir hafa haft trú á, að hægt væri að safna saman stúdentum til slíkra funda, sem líkj- ast mest vakningasamkomum, og baldnir eru um hásumar, þegar hit- inu er mestur. Nokkrir trúaðir menn tóku sig þá saman og báðu Guð, sem alt megnar, að greiða leið. Og nú eru mót þessi haldin sumar eflir sumar og mjög fjölsótt, eigi að eins af norskum stúdentum, heldur einnig dönskum og sænskum. Efla þau mjög samúð hjá stúdentum, en trú- arlifið þó mest. Á ýmsutn stöðum eru haldin guðfræðingamót og eru þau einnig vel sótt. Háskóldeildin hefir reynt að korna á samskonar fund- um handa ný-guðfræðingum, en eigi lánaðist að fá svo marga þátttak- endur að hægt væri að koma þeim við. Prófessorarnir taka mjög þált i fjelagslífi nemendanna. Hallesby er jafnan einn af ræðumönnunum á stúdentafundum. Og vor og haust halda þeir öllum nemendum sam- sæti í skólanum; en auk þess bjóða þeir þeim heim til sin einu sinni eða tvisvar á óri. Sjerstaklega verða stúdentunum minnisstæðar heitn- sóknirnar bjá Hallesby og samræð- urnar viö hann. Einn stórbóndi í ná-

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.