Bjarmi - 01.03.1927, Síða 8
60
B J A R M I
nefna svo, ef hinir fyrnefndu helgi-
siðir eiga að hafa verulega þýðingu.
Góð og göfug framkorna, hreinar og
sannar hugsanir, ástúð og kurteisi í
viðmóti, — þetta er meðal annars
það, sem jeg vil nefna hina helgu siði
hversdagslifsins. Og þetta eru þeir
helgisiðir er allir geta framkvæmt.
Það sem vantar inn í líf flestra, er
einmitt tilfinningin fyrir því, að lífið
sje heilagl, og því óendanlega vand-
farið með það. Það er hátiðin sem
flesta vantar inn í líf sitt.
Helgir siðir hjálpa til þess að skapa
þessa hátíð. t*eir veita lotningar- og
tilbeiðsluþörf manna fullnægju. Og á
því er enginn efi, að lotningarhæfi-
leikinn, er einhver dásamlegasti eðl-
iskostur mannssálarinnar. Pvi hvað
er lotningin ? Hún er ekki annað en
meira eða minna óljós meðvitund
um eitthvað, sem er miklu æðra, og
jafnframt meðvitund um eigin smæð
gagnvart því og löngun og þrá til að
líkjast því. Hún opnar því sálina fyr-
ir æðri áhrifum. Hún er sem hönd,
er seilist upp til hæða, og í þá hönd
er altaf tekið, og manninum lyft of-
urlítið upp, upp yfir smámuni hvers-
dagslífsins.
Bækur.
Dregist hetír vegna anna og rútn-
leysis að geta nánar um ýmsar bæk-
ur sem sendar hafa verið blaðinu:
Kongsdóttirin fagra, æfintýii eftir
Bjarna M. Jónsson er ætluð börnum
til að minna þau á bróðurást og
göfugar hugsunir, en sumstaðar mun
það nokkuð lorskilið börnunum.
Fjórtán dagar hjá afa. eftir Árna
lækni Árnason í Búðardal, eru í raun
rjettri ýmsar góðar heilbrigðis- og
siðareglur handa börnum. en svo vel
fyrir komið, að börn lesa bókina
sem skemtibók og muna efnið eins
vel og smellna sögu.
Vetrarbraut, eftir Ásgeir Magnús-
son er ekki barnabók, en rnikill er
þar fróðleikur samankominn um
stjörnuríkið og sjaldgæft að maður,
sem aldrei hefir sótt »æðri skóla«,
semji slíkl rit. er líklegt að fróðleiks-
fús alþýða taki þessari bók vel.
Söngvar fgrir atþgdu I. hefti, radd-
sett fyrir harmonium eða piauó, eftir
sra Halldór Jónsson á Reynivöllum.
Sra Halldóri er alvara að efla söng-
list þjóðarinnar. Óþreytandi hefir
hann verið í ræðu og riti, að efla
almennan safnaðarsöng, og nú koma
frá honum sönghefti hvert á eftir
öðru. í þessu fyrsta hefti eru 36 lög,
mörg við alkunn ljóð, og mun þvi
viða verða kærkomið. (Meira).
Vígsluræða sra Matthiasar Joch-
umssoaar, flutt 12. mars 1867, birtist i
jólahlaði Lögbergs í vetur. Er ræðan svo
skorinorð vakningarræða að mörgum
kirkjugesti myndi fínnast nóg um, væri
hún flutt nú. Sra Matthias hafði gefið Að-
alsteini Kristjánssyni frá Winnipeg dálít-
inn pakka af gömlum ræðum sinum árið
1915 og pví er ræðan komin vestur Hafi
sra Matthias látið eftir sig margar slikar
ræður, væri sannarlega vert að safna
þeim saman og gefa út úrvalsræður hans
engu síður en úrvalsljóð.
Prestskosningin í Fljótshlíðinni
fór svo að sra Sveinbjörn Högnason með
140 atkvæðum. Sra Eirikur Helgason 42.
Sra Gunnar Árnason 7 og aðrir 2 og 1,
Bestu þakkir til yðar allra sem
eruð að safna nýjum kaupendum að
Bjarma fjær og nær, og sömuleiðis til
þeirra, sem þegar hafa borgað þenna árg.
Vegna póstferða er þetta tölubl.
prentað viku fyr en dagsetning segir.
Útgefandi: Sigurbjörn Á. Gíslason.
PrentsmiOjan Gutenbcrg.