Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.12.1927, Side 1

Bjarmi - 01.12.1927, Side 1
BJARMI —KRISTILEGT HEIMILISBLAÐ XXI. árg. Reybjavík, 1. des. 1927 30. tbl. „Sælir eru þeir, sem hungrar og þyrstir eftir rjettlætinu, því að þeir munu saddir verða“. Sóknarnefndafundurinn í ReykjaYÍk 18.-20. okt. 1927. [Niðurl ]. Á rimtudagsmorguninn flutti sra Bjarni dómkirkjuprestur gott erindi uin altarisgöngur, og urðu um það töluverðar umiæður, er meðal ann- ars fóru í þá átt, að ekki mundi eins erfilt og sumir bjeldu að auka altar- i göngur, ef prestar gerðu sjer veru- legt far um það. T. d. gat sjera Magn- ús í Ólafsvík þess að altarisgestum hefði fjölgað að mun i sínu presta- kalli, er hann hefði farið að hafa altarisgöngu á sjómannadaginn. Aðr- ir minntust á, að sumum væri ljúf- ara að liafa sjerstakar guðsþjónustur fyrir altarisgesti eina, eins og farið er að tíðkasl í dómkirkjunni. Safnað- arfulltrúi MarteinátuDgusóknar, Árni Árnason, skýíði og frá að prófastur- inn í Fellsmúla hefði tekið upp sama sið. Altarisgestir kæmu þar til kirkju á undan öðru messufólki svo altar- isgangan væri um garð gengin áður en almenn guðsþjónusta byrjaði. Tveim öðrum málum var bætt við dagskrána þann morgun og afgreidd fyrir hádegið. 9. Um sumardaginn fgrsta talaði Ein- ar Ásgeirsson sóknarnefndarmaður frá Akranesi. Vildi hann láta það verða fasta venju um alt land, eins Ó, mikll Guð. Ó, mikli Guð, pú lífs og ljóssins faðir sem látið hefir gegnum aldaraðir út um geymsins ómælanda djúp sólna og stjarna sömu ljósin skína sem oss birta mátt og speki þína, þú ert engum huliðsvafinn hjúp. Jeg sje þig, Guð, í sollnnm hafsins hárum, jeg sje þig líka í unga barnsins tárum, er hallast mildrar móður brjóslum að. Náttúran þig einum lofar ómi, eitt er nafn á hverju vorsins blómi. Lífsins faðir, þú ert einn um það. Þótt jeg sólar sýnar njóti eigi, er sveipar liún gulli dagsins fjöldans vegí, heilagt ljós frá himni við mjer skín. Lát mig þú Drottinn hinsta stríðið héyja i hreinni trú á þig og síðast deyja felandi önd i föður umsjá þín. • Guðl. Guðmundsson. og þegar er sumstaðar, að guðsþjón- usta fari fram þann dag og allir hlut- aðeigendur reyndu að koma því svo fyrir að verkafólk, sem aðrir, gælu sólt hana. — Var því máli vel tekið og tillaga samþykt, sem siðar verður skráð. 10. Um leikmannastarfsemina talaði Árni Jóhannsson bankastarfsm., taldi hann og 3 aðrir, sem til máls tóku, harla æskilegt að hún gæti aukist að miklum mun, bæði með ferðaprjedik- urum og einkum þó heima í hverj- um söfnuði, eins og tillagan sýnir, er samþykt var síðar um daginn.

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.