Bjarmi - 01.12.1927, Qupperneq 1
BJARMI
—KRISTILEGT HEIMILISBLAÐ
XXI. árg. Reybjavík, 1. des. 1927 30. tbl.
„Sælir eru þeir, sem hungrar og þyrstir eftir rjettlætinu, því að þeir munu saddir verða“.
Sóknarnefndafundurinn
í ReykjaYÍk
18.-20. okt. 1927.
[Niðurl ].
Á rimtudagsmorguninn flutti sra
Bjarni dómkirkjuprestur gott erindi
uin altarisgöngur, og urðu um það
töluverðar umiæður, er meðal ann-
ars fóru í þá átt, að ekki mundi eins
erfilt og sumir bjeldu að auka altar-
i göngur, ef prestar gerðu sjer veru-
legt far um það. T. d. gat sjera Magn-
ús í Ólafsvík þess að altarisgestum
hefði fjölgað að mun i sínu presta-
kalli, er hann hefði farið að hafa
altarisgöngu á sjómannadaginn. Aðr-
ir minntust á, að sumum væri ljúf-
ara að liafa sjerstakar guðsþjónustur
fyrir altarisgesti eina, eins og farið
er að tíðkasl í dómkirkjunni. Safnað-
arfulltrúi MarteinátuDgusóknar, Árni
Árnason, skýíði og frá að prófastur-
inn í Fellsmúla hefði tekið upp sama
sið. Altarisgestir kæmu þar til kirkju
á undan öðru messufólki svo altar-
isgangan væri um garð gengin áður
en almenn guðsþjónusta byrjaði.
Tveim öðrum málum var bætt við
dagskrána þann morgun og afgreidd
fyrir hádegið.
9. Um sumardaginn fgrsta talaði Ein-
ar Ásgeirsson sóknarnefndarmaður
frá Akranesi. Vildi hann láta það
verða fasta venju um alt land, eins
Ó, mikll Guð.
Ó, mikli Guð, pú lífs og ljóssins faðir
sem látið hefir gegnum aldaraðir
út um geymsins ómælanda djúp
sólna og stjarna sömu ljósin skína
sem oss birta mátt og speki þína,
þú ert engum huliðsvafinn hjúp.
Jeg sje þig, Guð, í sollnnm hafsins hárum,
jeg sje þig líka í unga barnsins tárum,
er hallast mildrar móður brjóslum að.
Náttúran þig einum lofar ómi,
eitt er nafn á hverju vorsins blómi.
Lífsins faðir, þú ert einn um það.
Þótt jeg sólar sýnar njóti eigi,
er sveipar liún gulli dagsins fjöldans vegí,
heilagt ljós frá himni við mjer skín.
Lát mig þú Drottinn hinsta stríðið héyja
i hreinni trú á þig og síðast deyja
felandi önd i föður umsjá þín.
• Guðl. Guðmundsson.
og þegar er sumstaðar, að guðsþjón-
usta fari fram þann dag og allir hlut-
aðeigendur reyndu að koma því svo
fyrir að verkafólk, sem aðrir, gælu
sólt hana. — Var því máli vel tekið
og tillaga samþykt, sem siðar verður
skráð.
10. Um leikmannastarfsemina talaði
Árni Jóhannsson bankastarfsm., taldi
hann og 3 aðrir, sem til máls tóku,
harla æskilegt að hún gæti aukist að
miklum mun, bæði með ferðaprjedik-
urum og einkum þó heima í hverj-
um söfnuði, eins og tillagan sýnir,
er samþykt var síðar um daginn.