Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.04.1929, Síða 5

Bjarmi - 01.04.1929, Síða 5
B J A R M I 73 eftirsóknarverðasta. Vjer sjálfír höfum svo lítið að miðla öðrum — en kraftur upprisunnar er svo mikill, að það er hægt að sækja nóg af krafti handa sjálfum oss og öðrum — og ef vjer notum þenna kraft, þá verðum vjer bornir uppi, fyltir nýrri, himneskri gleði, og vjer finn- um, að oss langar til að segja öðr- um, hvar kraft og fjársjóð er að fínna. Mig langar til að tala við yður, segja yður frá þessu. Ó. að jeg gæti talað við einn og einn, að hver og einn fengi nýjan páskakraft, og að jeg yrði fyltur meiri djörfung og gleði vegna páskatrúarinnar. í sjálfum oss höfum vjer lítinn mátt. Dagarnir bætast við, kraftar þverra. En krafturinn mun sigra. Lesum 15. kap. í I. Kor. — og sjá- um lýsingu á þessum upprisukrafti. Hvað gerir til, þó að líkamans tjald- búð hrörni. Dauðinn er uppsvelgdur í sigur. Sáð verður — og það ef til vill innan skamms — forgengilegu, en upprís óforgengilegt. Sáð er í vansæmd, en upprís í vegsemd, sáð er í veikleika, en upprís í styrkleika. Hvílik páskadýrð, er dýrðarlíkam- inn á fullkominn kraft hins eilífa lífs á hinum mikla páskamorgni. Leyfum nú þegar kraftinum frá hin- um upprisna að streyma inn í hjarta vort, svo vjer getum haldið gleðilega páska. Amen. íhngunnrvert. Nýir kaupeudur Bjarma geta fengiö ókeypis mánaðardaga meö biblíu-litmyndum, meöan nokkuð er eftir af þeim hjá afgreiöslunni eöa útsölumönn- um. — Peir hafa verið seldir á 2 kr. — En þar sem nú eru 3 mánuðir liðnir af árinu, geta allir eldri skuldlausir kaup- endur Bjarma fengiö þá á 1 kr., og þeir nýju ókeypis, um leið og þeir borga árganginn. Jakobína S. Sther. Um 10 ára skeið vor kaupendur Bjarma á Siglufirði 2 eða 3, og eng- in von sögð til að þeim mundi fjölga. Var mjer þá bent á að reynandi væri að biðja frú Jakobínu Sther, ljós- móður, fyrir blaðið, jeg gerði það, þótt hún væri mjer ókunnug, og þá brá Frú Jakobína S. Sther. svo við að þeir urðu brátt yfir 30 kaupendurnir. Síðan er mjer svo vel kunnugt um frábæran dugnað hennar, að mjer þótti mjög vænt um að sjá langa grein um hana, eftir Ó. x G., í »19. júní« i janúar s. 1. Er það sem hjer verður sagt þaðan tekið. Frú Jakobína er fædd að Ási á Þelamörk árið 1867. Foreldra sína, hjónin Jens Sther, danskan garð- yrkjumann, og Rósu Sveinsdóttur, misti hún ung, og ólst úr því upp hjá Halldóri Stefánssyni á Hlöðum. 19 ára gömul varð hún Ijósmóðir í Fnjóskadal, en árið 1890 var henni veitt ljósmóðurstarfið í Siglufjarðar- umdæmi, Hjeðinsfjörður, Siglunes og Dalir fylgja, og eru þar afarervið

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.