Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.11.1929, Page 1

Bjarmi - 01.11.1929, Page 1
XXIII. árg. 1. nóv. 1929 25. tbl. Til kristniboðsvina. i. Samfjelag trúaðra. I dag, sunnudaginn 22. sept., erum við stödd um borð á þýsku skipi, langt austur í Miðjarðarbafí. Við er- um nýkomin frá samkomu, sem baldin var í borðstofunni á öðru farrými skipsins. Við böfum sungið sálma, sem mörg ykkar kannist við, þó þeir væru á útlendu máli. Sænskur kristniboði stje í stólinn og lagði út af texta dagsins. Þúsundir manna um alt fsland hafa um líkt leyti í dag reynt að sameina liugsanir sfnar um þenna sama kafla úr guðsspjöllunum, sem við nú fengum að heyra. f lútheasku kirkjunni um ailan heim og á kristniboðs-akrinum viða um heiðin lönd, hafa prestar og prjedikarar notað sama texta. Finst ykkur ekki uppörfandi að hugsa til þessa mikla mannfjölda »af alls kyns fólki og kynkvíslum og lýðum og tungum«, sem þannig er saman kominn hvern einasta sunnu- dag, til að hlýða á orðið frá Guði? — Ef nú þeir, sem lifa vilja án sam- fjelagsins við Guð, heyrðu lofsöngv- ana, sem trúað fólk um allan heim sameinast um, Jesú Kristi til dýrðar, hvað mundi fremur geta sannfært þál Er þá hugsanlegt að nokkur mundi fremur kjósa skammvinnan synda- unað heimsins en frið og gleði Guðs barna, eða leita ávinnings í beiminum, sem að lokum mun reynast einskis virði, fremur en sigurvinninga trúar- lífsins? Einangraða, veiktrúaða Guðs barnl Er þjer engin bughreysting að því, að vera þannig í samfjelagi við trúað fólk um allan heim, og eiga daglega kost á að sameinast með því i lof- söng og tilbeiðslu, frammi fyrir aug- liti Guðs! Finnur þú þá ekki til þess, að þrátt fyrir vanþroska og margs- konar ófullkomleika, unir þú þjer hvergi annarsstaðar en í samfjelagi Guðs barna? Þar áttu heima. Þar Dýtur þú þín. þar líður þjer vel. En hvergi annarsstaðar. Guð vill ekki að neitt barna sinna fari á mis við samfjelag heilagra. Við náum aldrei þeim þroska að við megum við þvi. Það skilst manni best i kristni- boðsstarfinu. Það er ófrávfkjanleg venja allra kristniboða í Kfna, sem jeg þekki til, að láta heiðingjana, er áunnist hafa og notið nokkurrar kristindómsfræðslu, sameinast á aðal- stöðvunum á tveggja til þriggja vikna námsskeiði, áður en þeir taka skírn.

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.