Bjarmi - 01.11.1929, Blaðsíða 8
196
BJARMl
Haust.
Bækur sendar Bjarma.
Sumartiðin enduð er,
að oss kviðinn vetrar fer,
Drottinn blíði þökk sje þjer,
þyrm nú lýði, biðjum vjer.
Góðan vetur gef nú senn,
gjör við betur þína menn,
til vjer getum unnið, enn
á þig setja von oss kenn.
Bæn í hjarta hreyflr sig,
hef jeg margt að biðja þig,
veika kvarta veistu mig
veran bjarta guðdómleg.
Gef þá tið, sem gleður dátt,
gef oss blíða suðurátt,
gef þú lýðum geðið kátt,
gef þjer hlýðum meður sátt.
Gef í haginn hverja tíð
hvað sem nægir þínum lýð
oss þin vægi forsjón fríð
þó föður agi höndin blið.
Til þín hrjáðir vonum vjer,
veik er dáðin, alt þú sjer.
Eiiif náðin aldrei þver,
eru ráðin nóg hjá þjer.
Ó, jeg kvaka, Kristur minn,
kross að baki fyrir þinn
afmá sakar iðgjöldin
að þjer tak vor málefnin.
Oss þin græði ástsemin
oss þin fæði miskunnin
oss þín fræði alspekin
oss þin klæði nálægðin.
Víkjum inn á veturinn
með vonarinnar friðskjöldinn
að þin minnist miskunnin
mildi þinnar heitorðiu.
Gegnum tið og táradal
trú því blíð og vonin skal,
biðja um friðast fylgdarval
og fagna prýði í dýrðarsal.
Bergljót á Bergi.
y>Presiafjelagsrilið<t, 11. ár 1929 flytur
margar góðar og fróðlegar ritgerðir, þótt
meir en lítil nýguðfræðisþoka sje yfir er-
indi síra Jakobs Jónssonar á Norðfirði
um »»Faðir vor« sem merki kirkjunnar#.
Fyrsta erindið t. d. »Krafa kristindóms-
ins um iðrun og afturhvarf«, eftir ritstjór-
ann Sig. P. Sivertsen, er ágætt það, sem
það nær, og væri óskandi að honum tæk-
ist að gera þá kröfu að hjartansmáli
prestsefnanna.
Fræði Lúthers 400 ára, eftir sira Bjarna
Jónsson og Kirkja Englands á 19. öld eftir
Jón Helgason biskup, eru bæði mjög
fróðleg erindi og læsileg, eins og ýms
fleiri erindin.
yyAndi hinna óbornu«, ritað af tveim
starfsmönnum, þýtt af Svövu Pórhalls-
dóttur. Margt er vel sagt í þessari bók
um siðferðileg efni, en endurholdgunar-
kenning, guðspekileg »meistaratrú« og
indverskar siðareglur um mat og ónot til
grundvailarskoðunar lútherskrar trúar
um rjettlætingu af trúnni, munu valda,
að góðu ráöleggingarnar njóta sin ekki
sem skyldi hjá þeim, sem ella mundu
liklegastir til að verða vinir bókarinnar.
Bókin er of alvarleg Ijettúðinni og of
kröfuhörð því »víðsýni«, sem gleypir við
margorðum iýsingum af samförum karlaog
kvenna i nýþýddum bókum eftir frú Maríu
Stopes.
Væri holt hr. E. M. »Strauma«-ritstjóra
og öðrum aðdáendum þeirra bóka, að
lesa með gaumgæfni kaflann um »iausn
frá ástríðum« í þessari bók.
Gjafir.
Til Bjarma: Skaftfellingur 5 kr.
Til presllaunasjóðsHólakirkju: Skipstjórí,
Vestljörðum, afh. at H. G. vígslubiskup
50 kr., áheit 2 kr. frá R. B. Saurum.
Til kristniboðs: Ó. S. Gaul. 6 kr., Seyð-
firðinpi 20 kr., Árnesingi 20 kr., Skaflfell-
ingi 15 kr., »við vetrarkomu« 5 kr.
Til Elliheimilisins: Nokkiir safnaðar-
fundarmenn 34 kr., 4 systkini (i Rvik og
Vestm eyjum) til minningar um foreldra
sína 200 kr.
Til starfs heima fyrir: 112 kr. frá G. E.
Chicago.
Útgefandi: Sfgorbjörn Á. Gislason.
Prntesmiðjan Gulenborg.