Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.10.1931, Side 1

Bjarmi - 01.10.1931, Side 1
XXV. árg. 1.—15. október 1931. 19.—20. tbl. Kiitjan o[ æsWjJáreyfiBíiii. Erindi flutt á trúmálafundi í Bólstaðalúíð af sr. Guðbrandi Björnssyni, Viðvík. Tilgangur samfundar okkar hjer í dag er að efla kirkjuna og kristindómslíf safn- aða þeirra, er vjer þjónum. Sú grein kirkjulegrar starfsemi, sem jeg vil hefja umræður um, er kirkjan og æskulýðshreyf- ingin. Pað hefir tíðkast, frá því að kirkjan hóf starfsemi hjer á landi, að þjónar kirkj- unnar hefðu á hendi kenslu í kristnum fræðum hjá börnum frá tíu ára aldri til fermingar. Fyrir liðugum 24 ár,um síðan, eða áður en gildandi lög um fræðslu barna voru samþykt, hvíldi uppfræðslan bæði í kristindómi og almenn fræðsla á prest- um og heimilum. Var þá' aðaláherslan lögð á 4 námsgreinar: kristindóni, skrift, lestur og reikning. Kristindómsfræðslan var þá í hugum margra aðalnámsgreinin, og víða lögð mikil áhersla á, bæði af heimilum og prestum, að sú fræðsla næði góðum tökum á börnunum og yrði hinn trausti grund- völlur til trúar og siðgæðis. Með lögunum frá 1907 breyttist þetta. Þá er námsgrein- um fjölgað, skólar rísa upp, áhrif presta og heimila.fara þverrandi og kristindóm- ur ekki framar skoðaður sem aðalnáms- grein, heldur settur við hlið annara náms- greina. Jeg ætla ekki hjer í dag að minnast frekar á hve holl þessi breyting hafi verið fyrir kirkju og kristindómslíf þjóðar vorr- ar; minni aðeins á þessa breytingu í sam- bandi við umtalsefni mitt, kirkjuna og æskulýðshreyfinguna. — Enn þá er krist- indómsfræðslan, að minsta kosti til sveita, aðallega í hendi presta og farkennara í fje- lagi. Kirkjan nýtur enn þess trausts frá hendi íslenskra foreldra, að þau treysta henni að flytja uppvaxandi æskunni fagn- aðarerindi Krists fram til fermingar. — Fátt er oss prestunum falið, sem ljúfara er að leysa af hendi, en að flytja ungri saklausri barnssál fagnaðarerindi Krists. Mun mörgum presti finnast þær stundir, er hann talar við fermingarbörn sín um Iírist, grópar inn í huga saklausrar æsku hinar göfugu hugsjónir Krists —, sem þær stundir sjeu dýrmætustu stundir prestsstarfsins, og fátt mun prestinum jafnvel þakkað frá foreldra hendi eins og fermingarundirbúningur. En hver verða svo afskifti kirkjunnar af hinum fermdu unglingum? Mun ekki mörgum presti hafa til hugar komið, að eftir ferminguna mætti hann vænta stuðn- ings í starfi sínu frá æsku, er elskaði kirkjuna og vígja vildi henni krafta sína.

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.