Bjarmi - 01.10.1931, Blaðsíða 16
160
B J ARMI
Til vina Bjarma.
Pað er sárt að þurfa að segja yður það, sem
sýnt hafið Bjarma'fórnfúsa trúfesti mörg ár og
sumir áratugi, að blaðiö verður að hætta, ef það
íær ekki það, sem úskrifendur skulda því eða
þn allstóran hóp nýrra, skilvísra kaupenda.
Vafalaust þættu það góð tíðindi sumslaðar, »að
Bjarmi væri hættur«, en þeir skifla mörgum
hundruöum, sem þættu þaö alt annað en góð tíð-
indi, og þar á meðal ýmsum, sem vanrækja að
borga blaöið, gleyma því af þvi að þeir hafa
vanist að fá stjórnmálablöð ókeypis. Hvernig
sem á því stendur hefir tvö undanfarandi ár
borgast mikið minna fyrir blaðið en ella, án þess
þó að kaupenda tala hafi verulega minkað, og
hefir ritstjóri Jivi orðið að gefa nokkur hundruð
krónur fyrir að fá að skrifa blaðið! Nú er kreppan
að byrja og þá bersýnilegt, að annaðhvort verða
áhugasamir vinir blaðsins að leggja fram kraffa
sína i fjelagi, eða kveðja þetta trúmálablað alveg
og sætta sig við að hafa ekkert málgagn, sem
tekur að sjer hlutverk Bjarma.
Jeg trúi því ekki fyr en jeg má til, að þeir
kjósi það úrræði. Þeim mun ljóst, að aldrei
er fremur ástæða til að starfa að kristindóms-
málum, en þegar ýmiskonar neyð steðjar að.
Jeg er ekki að mælast til gjafa til blaðsins,
en jeg mælist til fullrar skilvísi allra kaupenda
þess og vinsamlegs samstarfs við vini þess. Þaö
samstarf gæti t. d. verið á þessa leið:
Áhugasamir trúmenn gjöri sjer far um að ú!t-
vega nýja kaupendur, og kaupi sjálfir blaðið
handa fátækum og sjúklingum. Kristileg fjelög
taka til umræðu, hvað þau geti gjört blaðinu til
stuðnings og útbreiðslu.
Hver einasti kaupandi gjörir sjer að reglu að
borga blaðið árlega fyrir fardaga.
Hins vegar býðst útgefandi til að gefa öllum
gömlum kaupendum, sem borga næsta árgang
fyrirfram eða í siðasta lagi i febrúar í vetur, eitt
af þrennu: Dagatal fyrir 1932 með litmyndum
og ritningarorðum, eða bókina Vitranir eftir
Sundar Singh, eða bókina Páll Kanamori, postuli
Japana (kostar hvert annars 1,50). Burðargjald,
25 aurar í frimerkjum, fylgi um leið, ef senda
þarf í pósti.
Nýir kaupendur, er borga árg. 1932 fyrir 1.
mars n. k., geta fengið stærri bók gefins, sem sje
I skóla trúarinnar, minningarritið um ólafíu Jó-
hannsdóttur, en bæta þá 50 aurum við, ef senda
þarf i pósti. -— Hún kostar annars 3 kr. 50 aura.
Fjelög eða einstaklingar, sem kaupa fleiri en 3
eintök til útbreiðslu, geta fengið hvert eintak á
4 kr., ef þeir fremur kjósa en kaupbætir.
IHns yegar verður Jólablað Bjarma um 50
bis. með mörgum myndum og sögum ekki sent
skuldugum kaupendum íyr en þeir borga.
íhugið þetta og látið nú sannast, að þjer viljið
láta Bjarma halda áfram.
S. Á. <j! ísluson.
----------------
Aiþjóðajttiig' li. P. V. M. var hfið síöustu viku
í Júlí s.l. I Toronto 1 Canada. Sóttu þangað 1400
fulltrúar úr 47 löndum — þó enginn væri frá
íslandi —. Voru fundahöldin flest í tvennu lagi,
lalað i öðrum staönum um starfið meðal ungra
manna (18—25 ára), en á hinum staðnum meðal
»drengjanna«, yngri en 18 ára. Eðlilega er margt
ólíkt um starfsaðferðir og leiðtoga I slíku al-
þjóðafjelagi, en þingin eru til þess ætluð að
menn kynnist og læri hverjir af öðrum.
Siinnudugaskólaþiilg fyrir Norðurálfu var hald-
ið í Budapest 11. 16. ág. í sumar. Fáeinir full-
trúar komu úr öðrum álfum, en alls voru erlendir
fuiltrúar þessir, aö því er ungversk blöð herma:
Frá Algier 1, Austurríki 8, Belgíu 1, Búlgaríu 24,
Ceckoslovakíu 16, Danmörku 6, Eistlandi 7, Finn-
landi 13, Frakklandi 2, Grikklandi 1, Hollandi 4,
íslandi 1, Italíu 5, Júgóslavíu 22, Lettlandi 10,
Norvegi 19, Palestínu 1, Póllandi 4, Rúmeniu 16,
Stórabretlandi 20, Sviþjðð 16, Sýrlandi 1 og
Þýskalandi 25. Eini fulltrúinn frá islandi var
Valgeir Skagfjörð guðfræðiskandídat, sendur
þangað af sunnudagaskólanum í Rvík. Hann sótti
auk þess um leið kristilega fundi í Danmörku og
Noregi og mun segja les. Bjarma frá þeim.
Sjóiiianiiustofu hafði Jóhannes Sigurðsson á
Siglufirði í sumar, eins og tvö undanfarin sumur.
Hún var opin 9 vikur, og komu þar um 1700
gestir, er skrifuðu um 1250 brjef í stofunni.
Síðdegis á sunnudögum hafði Jóhannes samkom-
ur i kirkjunni á Siglufirði. - Bæjarstjórn Siglu-
fjarðar styrkti þetta starf, enda er það haria vin-
sælt og nauðsynlegt.
Eðlilegast væri að sóknarnefndir hefðu sjó-
mannastofu 1 öllum þeim kaupstöðum, þar sem
margt er heimilislausra sjómanna einhvern hluta
árs.
útgefandi: Slgurbjörn Á. Gíslason.
P»-entsmiðja Jóns Helgasonar.