Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.10.1931, Blaðsíða 15

Bjarmi - 01.10.1931, Blaðsíða 15
BJARMI 159 aldrei of snemma byrjað, en þó væri nám- ið þýðirxgarmest, er þarnið væri komið um og yfir fermingaraldur, þar af leiðandi væri aldrei rjett að sækja um fermingar- leyfi fyrir ófullaldra börn. Sr. Halldór Kolbeins kom fram með svohljóðandi til- lögu er samþykt var í einu hljóði: »Fundurinn skorar á kenslumálastjórn landsins að hlutast til um það, að kristin- fræði sjeu kend í öllum þeim skólum, sem njóta opinbers styrks og sjá um að hæfar kenslubækur verði gefnar út á íslensku í kristinfræðum«. 5. Um kirkjurækni flutti sr. Jón Brands- son erindi, og spunnust út af því umræð- ur. Sr. Sigurgeir Sigurðsson benti á að prestar ættu jafnyel ekki að gjöra messu- fall þótt enginn kæmi til kirkju. Sr. Hall- dór Kolbeins skýrði írá, að hann hefði þeg- ar tekið upp þann sið að messa ávalt, ef hann hefði auglýst messu. I sambandi við þetta var kosin nefnd til þess að gera til- logur um helgisiðamálið og leggja fyrir fundinn næsta dag'. I nefndina var stjórn fjelagsins kosin. 6. Sálmabókarmálið. Sr. Sveinn Guð- mundsson flutti inngangserindi um málið. Svohljóðandi tillaga kom fram: »Fundurinn skorar á kirkjustjórn Is- lands að vinda sem bráðastan bug að end- urskoðun sálmabókarinnar«. — Till. bor- in undir atkv. og- samþ. með 6 atkv. gegn 3, sem aðeins óska viðbætis við núverandi sálmabók. Var því næst fundi frestað til næsta dags. Fimtudaginn 3. sept. hófst fundur að nýj.u kl. 8. f. m. með því að sunginn var sálmurinn: »Þann signaða dag vjer sjáum enn«. Form. las upp Ef. 3, 14.—21. og flutti bæn. Var þá tekið fyrir: 7. Handbókarmálið. Form. flutti inn- gangserindi og kom með svohljóðandi til- lögu: »Fundur Prestafjelag-s Vestfjarða telur æskilegt, 1) að textaröðum verði fjölgað og pistlar og kollektur verði end- urskoðuð og endursamin og að meiri fjöl- breytni komi í g,uðsþjónustuformið, eftir því hvenær guðsþjónusta er flutt, og' 2) að sjerstakt ritual verði samið fyrir guðs- þjónustur þær, sem presturinn einn eða með örfáum safnaðarmeðlimum gengur í kirkju til guðsþjónustu eða fyrirbænar fyrir söfnuði. Tillagan var borin undir atkv. í tvennu lagi, og var fyrri liður hennar samþyktur með 9 atkv. og sá síðari með 8 atkv. Þá skýrði sr. Böðvar Bjarnason frá ýmsum breytingartillögum, sem hann hef- ir gert við ýms atriði helgisiðabókarinnar og sem hann ætlar sjer að senda nefnd þeirri, sem fjallar um breytingar á helgi- siðum kirkjunnar, kosinni af synodus. — Svohljóðandi tillaga var borin fram: »Fundur Prestafjelag's Vestfjarða beinir þeirri áskor.un til helgisiðabókarnefndar- innar, að hún taki til rækilegrar yfirveg- unar breytingartill. sr. Böðvars Bjarna- sonar, Rafnseyri, og' telur þær yfirleitt stefna í rjetta átt«. — Tillagan var borin undir atkvæði og- samþykt í einu hljóði. 8. Fundurinn samþykti í einu hljóði að senda svohljóðandi símskeyti: »Formaður Prestafjelags Islands, vígslu- biskup Sigurður Sívertsen, Reykjavík. — Prestafjelag Vestfjarða þakkar yður, há- æruverðugi hr. vígslubiskup, fyrir hlýja kveðju og árnaðaróskir frá yður og' Presta- fjelagi Islands og óskar yður heilla og blessunar í framtíðarstarfi yðar fyrir kirkju og kristindómsmál með þjóð vorri. Sigurgeir Sigurðsson«. 9. Stjórnarkosning. Stjórnin var end- urkosin í einu hljóði. 1 varastjórn til eins árs voru kosnir sr. Sigtryggur Guðlaugs- son og sr. Helg'i Konráðsson. 10. Endurskoðandi var kosinn til eins árs sr. Páll Sigurðsson. Niðurlag,

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.