Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.10.1931, Blaðsíða 14

Bjarmi - 01.10.1931, Blaðsíða 14
158 BJARMI Aðalfundur Frístafjelap Vestfjarða. Aðalfundur Prestafjelags Vestfjarða. Ár 1931, miðvikudaginn 2. sept., kom Prestafjelag Vestfjarða saman á Stað í Steingrímsfirði til að halda aðalfund sinn, sem er 4. fundur þess. Fundurinn hófst með guðsþjónustu í kirkjunni kl. 12,30 e. m. Sr. Helgi Konráðsson prjedikaði og lagði út af Gal. 4, 4—7. en sr. Sigurgeir Sigurðsson þjónaði fyrir altari. Allir prest- arnir, sem voru mættir, gengu til altaris, en þeir voru þessir: Stjórn fjelagsins: Form. sr. Sigurg. Sigurðsson próf. Isaf., sr. Böðvar Bjarnason Rafnseyri, sr. Ilalldór Kolbeins Stað í Súgandaf., og auk þeirra: sr. Sigtr. Guðlaugsson prófastur Núpi, sr. Jón Brandsson prófastur Kollafj.n., sr. Sveinn Guðmundsson Árnesi, sr. Jón N. Jóhannesson pastor loci, sr. Þorsteinn Jóhannesson Vatnsfirði, sr. Helgi Konráðsson Bíldudal. Að lokinni guðsþjónustu flutti formað- ur erindi í kirkjunni, þar sem hann beindi þeirri ósk til viðstadds safnaðar og um leið til safnaða yfirleitt, að starfa betur en hingað til með prestum sínum að kirkju- og kristindómsmálum. Þörfin væri senni- lega meiri nú en nokkru sinni fyr, þar sem erfiðleikar í kirkjumálum fara vaxandi og andúð gegn kristindómi eykst. Mundi vafa- laust mega bæta úr þessu með meira sam- starfi presta og safnaða, fegurri kirkju- húsum, o. fl. Gunnlaugur Magnússon, sóknarnefndar- formaður, ávarpaði fundarmenn nokkraum orðum á eftir og þakkaði þeim fyrir kom- una. Fundur fjelagsins hófst síðan í kirkjunni kl. 5 e. m. Setti formaður fundinn og stýrði honum. Var þá gengið til dagskrár: 1. Formaður las upp endurskoðaðan reikning Lindarinnar og skýrði frá hag ritsins. 2. Prestaskifti. Svohljóðandi tillaga var samþykt í einu hljóði: »Fundurinn telur æskilegt að prestar messi hver hjá öðrum og felur próföstum að beita sjer fyrir framkvæmdum þess meðal prestanna«. 3. Svohljóðandi símskeyti barst á fund- inn: »Formaður Prestafjelags Vestfjarða, Stað í Steingrímsfirði. — Stjórn Prestafje- lags Islands sendir fundinum kveðju og biður Guð að blessa gróanda og samhug í kirkjulífi Vestfjarða. Sigurður Sívertsen«. Eftir að formaður hafði lesið upp þetta símskeyti, fór hann nokkrum orðum um, hve mikilsvarðandi okkur væri samhugur og skilningur formanns Prestafjelags Is- lands, prófessors Sigurður Sívertsen, og bað fundarmenn að standa upp í virðing- arskyni við hann, sem og var gert. 4. Kristindómsfræðsla. Málshefjandi sr. Halldór Kolbeins. Taldi hann æskilegt að prestar hefðu á hendi kristindómsfræðslu í skólum, þó að til þess þyrfti að fjölga prestum, sem óhjákvæmilegt yrði a. m. k. í stærri kaupstöðum. Kristindómsfræðslan væri ekki fullnægjandi, sem sögulegt nám að eins, heldur einnig trúfræðilegt og sið- ferðilegt. Um kensluaðferð var hann mót- fallinn þululærdómi, en hjelt fram mikil- vægi endurtekningar þess, sem fegurst er og best. Sr. Sigurgeir Sigurðsson tók í sama strenginn og frummælandi og gat þess enn- fremur hve æskilegt það væri að samein- að væri í framtíðinni prestssetursbygging- ar og heimavistarskólar fyrir börn í sveit- um landsins, svo að prestar gætu haft fræðslustörf á hendi. Fleiri tóku til máls og snerust umræður um þessar þrjár spurningar frummælanda: Hver á að kenna? og hvernig á að kenna? Sr. Sig- tryggur Guðlaugsson bætti við þesari spurn- ingu: Hvenær á að byrja að kenna barn- inu kristinfræði? Taldi hann að það yrði

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.