Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.10.1931, Side 3

Bjarmi - 01.10.1931, Side 3
BJARMI 147 miklu góðu til vegar komið. Hann gæti fylt kirkjur vorar með söng glaðlyndrar æsku. Hann gæti gjört æskuna að djörfum vormönnum hins kristilega frelsis. þar sem hófsemd. prúðmenska og göfuglyndi skip- aði æðstan sess, hann gæti gefið þjóðlífi voru þann mátt, sem kærleiki Krists vek- ur í saklausri sál.u. Slík æska væri væn- leg til andlegrar menningar, til að vekja tápmikið trúarlíf og skapa hreinan, sann- an kristindóm. Greinin, sem ekki ber ávöxt, hún verður af sniðin. — Sú æska, sem að vísu rjettir Kristi hendina fermingardaginn með hollustu og ást í huga, en er svo hrundið út í þann straum, þar sem tískan er drotn- ingin, danssalurinn takmarkið og ljettúðin andinn sem ræður, hún á á hættu að missa lífsvökvann frá liminu góða, á á hættu að visna upp. Mikli mannfjöldi! Jeg legg þetta mál fram fyrir ykkur með mestu auðmýkt. Jeg sje framundan mjer hið mikla verk- svið, sem bíður æskunnar í íslenskum sveitum. Jeg veit að í sveitinni lærir æsk- an að iðja og þarf því að njóta skemtana. En jeg held að danssalir fullnægi eigi ung- lingshjarta. Æskan þarf Krists. Enginn þarf frekar að eiga Krist að einkavin en æskan, sem er að mótast. Hin unga grein myndi þá bera mikinn ávöxt. En hver er reynslan? Hvað hefir ungmennafjelag's- skapurinn gert fyrir kirkjuna? Hvernig gengur. samstarfið? Þar, sem jeg þekki til, - það er auðvitað yfir lítið svæði —, hef- ir.ekkert varanlegt samstarf orðið á milli kirkjunnar og hans. Prestinum er boðið upp á að vera með, en annars hefir áhrifa hans orðið lítið vart. Aðalstarf ungmenna- fjelaga, er jeg þekki, er að skemta með- limum sínum með dansi eða ferðalögum, halda uppi vinnuflokkum til þess að afla fjejaginu tekna. Nú fellur svo, að sá dag- urinn, sem slík fjelög hafa til yfirráða, að minsta kosti á sumrin, er sunnudagur- in einn. Verður þá raunin sú, að í stað þess að efla kirkjurækni, glæða áhuga æskunnar á jboðskap Krists, þá dregur þessi fjelagsskapur hug æskunnar burtu frá kirkjunni til danssalsins eða annara skemtana, sem engin trúarleg eða sið- ferðileg áhrif flytja. Hjer virðist mjer að sje um mikið öfug- streymi að ræða. Vill íslensk æska útiloka kristileg og kirkjuleg áhrif frá fjelags- skap sínum? Jeg trúi ekki þeirri ásökun. Það er ekki hennar sök, verði fjelagsskap- ur hennar fráhverfur kirkju og kristin- dómi. Sökin er okkar, fullorðna fólksins, presta og æskulýðsleiðtoga. Vjer kunnum ekki að vinna saman, sjáum ekki ráð til að samræma hið uppbyggilega og- skemti- lega. Hjer er mikið og þarft umhugsunar- og viðfangsefni, bæði fyrir foreldra, kennara, presta og ung'mennafjelags for- menn. Jeg- vona því að mistök þau, sem kunna að vera á samstarfi voru, kirkjunn- ar þjóna og leiðtoga æskulýðshreyfingar- innar megi bætast og' samtarf aukast, er gjöri hvortveggja, að efla kirkjusókn yngra fólks og' göfga hugsunarhátt þess fyrir áhrif bins sanna vínviðar. Guð blessi húnverska og- skagfirska æskumenn og gefi þeim g'iftu til þess að fyllast Krists anda. Þýðing sænsku erindanna í greininni um Söder- blom erkibiskup 1. sept. þ. á. ó, þjer til dýrðar Drottinn sje dagleg breytni mín; öll verk þess beri vottinn, þau vitni um ást til þín. Mig ljúfri hendi leiddu um lífsins kaldan ál og faðm út, faðir, breiddu er flytur hjeðan sál. Þjer jeg, Jesú, þakka af hjarta þina kvöl og- sára neyð. G. Jóli.

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.