Bjarmi - 01.01.1973, Side 3
EN MEÐAN FOLKfÐ SVAF
5. sunnudag eftir þrettánda: Matt. 13, 21/—30.
I ofangreindum texta bregður Jesús upp
mynd af einkennilegum atburði, og hann
lyftir honum upp á það svið, að hann öðlast
ekki aðeins djúpa merkingu, heldur varpar
Jesús með þessari dæmisögu skýru ljósi yfir
lífsvandamál, sem er staðreynd í lífi okkar
manna.
Jesús sáir hinu góða sæði út yfir mann-
kynsakurinn, og fyrir þann kraft, sem býr í
sæðinu, sem er Guðs orð, skapar hann akur
guðsríkis á jörð. En séreinkenni guðsríkis á
meðal okkar mannanna er trúin, sem kemur
af boðuninni, en boðunin byggist á orði Krists,
eins og Páll postuli kemst að orði í Róm-
verjabréfinu. Fyrir trúna verðum við hluttak-
endur í guðsríki, erfingjar eilífs lífs. En það,
sem Jesús vill segja okkur hér og vara okk-
ur við, er þetta: Þar sem guðssæði er sáð,
þar eru öfl að verki, sem vilja fyrir hvern
mun eyðileggja og að engu gera vöxt og efl-
ingu guðsríkis. „En meðan fólkið svaf, kom
óvinur hans og sáði illgresi meðal hveitisins
og fór síðan burt.“ Lúther hefur sagt: „Þar
sem Guð reisir sína kirkju, þar reisir djöfull-
inn jafnharðan sína bækistöð við hliðina."
Og það er vitað, að sá höfuðfjandi yfirgefur
ekki staðinn og ann sér ekki hvildar, unz
hann hvílir í glötuðu mannshjarta. Hann sáir
sínu sæði, sem við gefum ekki gaum, fyrr en
það fer að vaxa.
Við getum safnað í lófa okkar ólíkustu
fræjum. Og við vitum það eitt, að í hverju
agnarsmáu korni eru hulin sérkenni og ólíkir
eiginieikar hverrar jurtar fyrir sig. Sé þess-
um fræjum sáð, fara þau að spretta, og frá
þeirri stundu heldur vöxturinn áfram, þang-
að til ávextirnir eru fullþroskaðir.
Nú vitum við, að akurlendi Guðs góða sæð-
is eru hjörtu og sálir mannanna. Og hið innra
með okkur er aldrei kyrrstaða, — þar er
vöxtur, þi’oski. En í rauninni er aðeins um
tvennt að ræða varðandi vöxt og þroska
hverrar mannssálar: Illgresi eða hveiti. Ann-
aðhvort einkennir sálarakur minn og þinn.
Lífið er alvara. Sérhvert augnablik hefur
sína þýðingu. Hér varðar öllu, að við getum
haidið vöku okkar. Horfum í eigin barm og
rannsökum og prófum okkur sjálf frammi
fyrir augliti Guðs; læðist ekki efi inn í bæna-
lífið og sjálfsánægja inn í góðverkin og hálf-
velgja í iðrun og hégómi í starfið fyrir Guð?
Gefðu gaum að orðum Jesú: „En meðan
fólkið svaf ...“ Þessi svefn, þetta ábyrgðar-
og andvaraleysi, sem er svo áberandi á meðal
f jöldans, er okkar óhamingja. Þessi svefn rif j-
ast upp við sérhverja freistingarsögu mann-
legs hjarta. Hver svaf, þegar unglingurinn,
sem fjölmiðlarnir greina frá, fór á barnsaldri
að drekka, stela eða neyta deyfilyfja? Þegar
fólkið svaf, þræddi óvinurinn leiðina inn á
akurinn. Þegar vökumenn þjóðanna sofa,
kemur óáran og erfiðleikar. Þegar prestar og
söfnuðir sofa, sáir óvinurinn sæði efasemda,
vantrúar og afneitunar í akur kirkjunnar.
Þegar foreldrar sofa, kemur óvinurinn og sá-
ir illgresi í sálarakur barnanna.
Það er sagt, að upprunalega hafi engir þistl-
ar vaxið í Ástralíu. Skota nokkrum datt í
hug að senda vini sínum nokkur fræ, þar
sem þistillinn er þjóðartákn Skota. Tollvörð-
urinn, sem vissi hvað í pakkanum var, vildi
ekki, að þistlar yrðu fluttir inn í álfuna. En
þetta eru aðeins fáein, saklaus fræ frá gamla
landinu! Og leyfið fékkst. Nú berjast bændur
þar við þennan versta óvin akurlendisins, þrot-
lausri og árangurslítilli baráttu. Þekkjum við
ekki okkur sjálf í þessari sögu? Byrjunin var
aðeins fá og smá syndafræ — áframhaldið
kunnum við.
Hallgrímur Pétursson segir: Sáð hef ég
niður syndai’ót, svívirðing mín er mörg og
Ijót, uppskerutímann óttast ég, angrast því
sálin næsta mjög.
Uppskei’utíminn kemur, hugleiðum það. En
hugleiðum áður en hann kemur, hvar við er-
um á vegi stödd í ljósi oi'ðanna: „En meðan
fólkið svaf kom óvinur hans og sáði líka ill-
gresi meðal hveitisins og fór síðan burt.“
Hvar vorum ég og þú? Hvar voru kennarar
og prestar? Hvar voru foreldrar og fjölskyld-
ur? Er ekki bezt, að við göngum í dóm við
okkur sjálf og viðui’kennum, að við höfum
sofið. Við sofum svo oft á verðinum, sofum
á bænavaktinni, sofum meðan Guðs orðið
rykfellur af notkunarleysi.
En Guði sé lof, að enginn þekkir okkur bet-
ur en Jesús Kristur, og til hans hefjum við
hug og hjarta og segjum: Hjálpa okkur, með-
an enn heitir í dag, að vaka og halda vörð
um Guðs orð, sem sáð hefur verið í hjörtu
okkar, að hið illa sæði verði því ekki yfir-
sterkara. Hjálpa okkur til þess að treysta
þér, sem hefur byrjað hið góða vei'k í hjört-
um okkar. Hjálpa okkur til þess að efast
ekki um hreinsandi og frelsandi kraft og sig-
ur þíns góða sæðis. Hjálpa okkur til þess að
sá hinu góða sæði i trú. Hjálpa okkur til
þess að vaka í trú, þá má uppskerutíminn
koma — hann kemur þá sem fagnaðai’rík
sigurhátíð, þar sem unnið er í trú. — Amen.
Jóhann S. Hlíðar.