Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.01.1973, Page 9

Bjarmi - 01.01.1973, Page 9
verk. — Biðjið Herra uppsker- unnar að senda verkamenn til uppskeru sinnar, bæði innlenda starfsmenn og kristniboða. Þetta var bæn kristniboðanna til ykk- ar, kristniboðsvinir. Við þökk- um Guði fyrir hvern einstakan kristniboðsvin, sem stendur að baki okkur og ber með okkur gleði og þjáningu köllunarinnar og gerir okkur kleift að flytja eþíópsku þjóðinni hjálpræðis- boðskap Guðs. Slcúli Svavarsson. Nýtt svæöi opnað kristniboöinu Úr bréfi frd Jóhannesi Ólatssyni Það hefur komið fram í einka- bréfum frá Jóhannesi Ólafssyni, lækni, að þau hjón eru ekki enn komin til Arba Minch til starfa þar. Ríkissjúkrahúsið, sem þar er í smíðum og Jóhannes á að veita forstöðu, er enn ófullgert, og virðist svo sem verktaka gangi erfiðlega að fá greiðslu fyrir vinnu sina og manna sinna. Á meðan hefur Jóhannes m. a. kynnt sér sjúkrahúsrekstur í Addis Abeba. f bréfi því, sem hér birtist, greinir Jóhannes frá því, að hann muni hefja starf í sjúkrahúsi í landi Gúdjimanna, meðan hann bíður þess, að lokið verði byggingu sjúkrahússins í Arba Minch. g& Irgalem, 15. des. 1972. Kæri vinur. Þakka ykkur innilega fyrir samveruna á síðastliðnu sumri. Flyttu kristniboðsvinum inni- lega kveðju okkar hjónanna. Við erum stödd í Irgalem, þegar þetta er ritað. Hér fædd- ist okkur dóttir 21. nóvember s.l. Við búum hér í ágætri gesta- ibúð. Hún verður reyndar þröng, þegar bömin koma heim frá Addis Abeba á morgun í jóia- leyfi. Eftir jólin er ráðgert, aö viö flytjum sunnar í landið. Miðja vegu milli Irgalem og Neghelli er Kebre Mengist. Þar hafa finnskir kristniboðar hafið starf. Á því svæði og reyndar suður undir Neghelli og vestur til Hagere Mariam, býr Gúdji- fólk. Sá þjóðflokkur er mjög móttækilegur fyrir fagnaðar- erindið núna. Helgi Hróbjarts- son hefur sagt mikið frá því fólki eftir reynslu sinni í Wad- dera. Tuttugu kílómetra frá Kebre Mengist er gullnámubœrinn Sha- kiso. Námusvæðið er um það bil 70 km langt og 50 km breitt. Það hefur verið algjörlega lok- að og þess gætt af fjölmennri iögreglusveit. Þetta svæði opn- aðist fyrir okkar starfi, eftir að Emanúel Abraham, forseti kirkjunnar okkar, varð ráðherra námumála. Pi’edikarar fá að ferðast þar um, eins og þeim sýnist. Yfirvöldin hafa gefið Mekane Yesus kirkjunni (lúth- ersku kirkjunni) lóð fyrir kristniboðsstöð, og það er rek- ið á eftir okkur að byrja strax. Okkur fannst þetta liggja þann- ig við, að Finnarnir ættu ekki að taka þetta að sér, enda eru þeir hikandi, vegna þess að fjár- hagur þeirra leyfir það tæpast. Nú er sjúkrahús í námubænum. Ráðherrann hefur sótt það fast, að kristniboðið útvegaði trúað- an lækni að sjúkrahúsinu. Við reyndum fyrst að fá lækni frá Finnlandi, en án árangurs. Nú mun vera fundinn læknir í Nor- egi, sem vill taka þetta starf að sér. Ráðherrann sér gagnsemi þess fyrir báða aðila að fá trú- aðan lækni til þessa sjúkrahúss. Hann tryggir með því, að sjúkra- húsreksturinn kemst í gott horf, og jafnframt yrði það styrkur fyrir kirkjuna, söfnuðina, sem eru að myndast á þessu svæði. Á nveðan við bíðum eftir pví, að smiði sjúkrahússins í Arba Minch verði lokið, ætlum við hjónin að vera í Shakiso. Kristniboðsráðstefna var haldin við Awasa í vikunni, sem leið. Kom enn fram, að verkefn- in eru miklu meiri en við ráð- um við. Frá mörgum stöðvum var sagt, að ný svæði bæðu um predikara og kennara. Víða er fjöldi manns, sem hefur afneit- að Satan og bíður eftir, að ein- hver kenni þeim kristin fræði. Biðjið um, að Guð veki unga menn hér i landi til að ganga inn í predikunarstarfið. Beztu kveðjur, Áslaug og Jóhamies. f--------------------------------------------------------------------s Dregið í liappdrættí nrállur liríur fnriA frnni ■ lin|i|>rælli KrÍNlnibuiVsfélags kvrunn n Akuroyri. 'Viiiniii|‘nr kumu n i-flirlnliu uúme: 171, 535, 1405, 009, 004, 704, 115, 54, 300, 1201, 1430, 042, 1200, 1359, 290, 70, 1302, 459, 1437, 1910, 1390, 1037, 1342, 1031. llnmliinfnr frnmnugreinilrn miiln getn vitjnil vinuingn siunn ■ AAnlskrifstiifuun. Amtmnnnsslíg 211, IIi’vkjnvík. Iljnrtnns |inkkir fieriim viil ölliini |ieim, iuiinn félngs sem utnn, er nilstoiluAu vii> sölu liu|>|tilru-lIisniiöniinn. Ouil lilessi vkkur öll. lirisiiiiliHilsii'liif) ffi’cnnu n AUureyri. s____________________________________________________________:_______i 9

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.