Bjarmi - 01.01.1973, Qupperneq 12
FRA STARFINU
Æskulýðsviku
„Mannleg þörf — máttur Jesú
Krists“, það voru einkunnarorð
æskulýðsviku KFUM og K í
Reykjavík, sem haldin var 19.
—26. nóvember s.l. Vikur þess-
ar hafa verið fastur liður í vetr-
arstarfi félaganna um árabil.
Óvenju margir lögðu hönd á
plóginn að þessu sinni. Auk aðal-
ræðumanns fluttu tvö eða þrjú
ungmenni stuttan vitnisburð á
hverju kvöldi. Þá var margs
konar söngur, einsöngur og tví-
söngur, einnig söng kvartett,
ýmist einfaldur eða tvöfaldur,
svo og fjölmennur æskulýðskór
félaganna. Bænastund, öllum op-
in, var hálftíma á undan hverri
samkomu, og kom trúfastur hóp-
ur og bað fyrir æskulýðsvik-
unni.
Aðsókn var mjög góð að
fyrstu samkomunni, en síðan
minni fyrri hluta vikunnar og
jókst svo aftur, og þurfti að
opna svonefndan endasal síðustu
kvöldin.
Seinni sunnudaginn var guðs-
þjónusta í Neskirkju, með alt-
arisgöngu, í tengslum við æsku-
lýðsvikuna, og gengu 70—80
manns til altaris. Prestur var
séra Frank M. Halldórsson.
Það var áberandi, hversu ungt
fólk var í miklum meirihluta á
samkomum æskulýðsvikunnar.
Góður andi ríkti þessi kvöld.
Samkomunum stjórnaði Gísli
Arnkelsson, kristniboði.
Kaffisala
Kaffi var selt til ágóða fyrir
kristniboðið á tveim stöðum
laugardaginn 19. nóvember s.l.
Kristniboðsfélagið í Keflavík
gekkst fyrir árlegum haustbasar
og kaffisölu þennan dag í Tjam-
arborg. Áður en salan hófst, var
haldin samkoma, og töluðu þar
Katrín Guðlaugsdóttir og Gísli
Arnkelsson. Kristniboðinu gáf-
ust þarna kr. 58.400.
Þá efndi Kristniboðsfélag
karla í Reykjavík til kaffisölu í
Betaníu þennan sama laugar-
dag, og urðu tekjur hennar kr.
45.745.
Afmæli
KFUK á Akureyri varð 20
ára 13. nóvember nú í haust.
Var afmælisins minnzt á hátíða-
fundi daginn eftir, og gengu þá
þrjár stúlkur inn í aðaldeild fé-
lagsins. Fyrsti formaður félags-
ins var Bryndís Böðvarsdóttir,
en núverandi formaður er Þórey
Sigurðardóttir. KFUM á Akur-
eyri er einu ári eldra en systur-
félagið. Bæði félögin halda fundi
sína í kristniboðshúsinu Zion á
Akureyri.
Fjáröflunarsamkomur
Kristniboðsfélag kvenna í
Reykjavik hélt fjáröflunarsam-
komu í Kristniboðshúsinu Bet-
aníu laugardaginn 4. nóvember.
Þar talaði Katrín Guðlaugsdótt-
ir, og kristniboðinu áskotnuðust
kr. 38.800.
Kristniboðsfélagið hefur
stúlknastarf í Betaníu. Eru
stúlkumar vanar að búa til
ýmsa muni og selja þá síðan til
ágóða fyrir kristniboðið. Þær
héldu ,,jólabasar“ hinn 25. nóv.
og buðu þá muni sína. Þeir seld-
ust vel, og kom inn fyrir þá um
40 þús. kr.
Unglingadeild KFUK í Hafn-
arfirði hefur svipaðan hátt á:
Nokkrar stúlkur deildarinnar
vinna að því að gera ýmsa muni,
og síðan eru þeir seldir á
,,mæðrafundi“ — fyrir kristni-
boðið. Slikur fundur var haldinn
30. nóv. s.l. Ekki skorti góða við-
skiptavini, enda urðu tekjurnar
af sölunni tæplega 25 þús. kr.
IlappilræÉti
Kristniboðsfélag kvenna á Ak-
ureyri efndi til happdrættis í
haust til ágóða fyrir kristniboð-
ið. Voru gefnir út 2000 miðar,
og kostaði miðinn 50 krónur.
Gengu konurnar vasklega fram
við að selja miðana, og er
skemmst frá því að segja, að
þeir seldust allir. Dráttur fór
fram í desember, og eru vinn-
ingsnúmerin birt hér á bls. 9.
Fcrðastarfið
Starfsmenn Kristniboðssam-
bandsins tóku þátt í unglinga-
móti að Hólavatni, sumarbúðum
KFUM og K á Akureyri, sem
efnt var til helgina 4.—5. nóv.
s.l. Þátttakendur voru um 50
talsins og var samveran öll mjög
ánægjuleg. — Þá um helgina
hófst einnig kristniboðs- og
æskulýðsvika, sem kristniboðs-
félögin og KFUM og K á Akur-
eyri stóðu fyrir. Voru starfs-
menn Kristniboðssambandsins
aðalræðumenn á samkomimum.
Gísli Arnkelsson, kristniboði,
sýndi einnig myndir frá kristni-
boðsstarfinu í Konsó fyrri hluta
vikunnar. Samkomusókn var
nokkuð jöfn og góð, einkum var
áberandi fleira ungt fólk en oft
áður. I lok vikunnar var tekið
á móti gjöfum til kristniboðsins,
og komu inn rúmlega 26 þúsund
krónur. — Bjarni Guðleifsson
stjórnaði samkomunum. Síðasti
dagur vikunnar var kristniboðs-
dagurinn. Prédikaði Benedikt
Arnkeisson við guðsþjónustu í
Akureyrarkirkju. Var þar einn-
ig tekið við gjöfum til kristni-
boðsins.
Að lokinni samkomuvikunni
á Akureyri fóru þeir Benedikt
og Gunnar til Ölafsfjarðar,
Siglufjarðar og Sauðárkróks og
héldu þar nokkrar samkomur
fyrir fullorðna og auk þess tvær
barnasamkomur á hverjum stað.
Auk þess heimsóttu þeir hús-
mæðraskólann að Löngumýri.
Veður og færð voru mjög slæm
um þetta leyti, oft stórhríð, svo
að samkomusókn var dræm.
Bömin létu þó veðrið ekki aftra
sér. Nokkuð safnaðist til kristni-
boðs á hverjum stað.
12