Bjarmi - 01.01.1973, Side 14
VELA- OG
ItAFTÆKJASALAN hf.
Akureyri
Pósthólf 285 - Símai 11253 og 12939
Höfum oftast mjög gott úrval af
loftljósum, veggljósum, borðlömpum,
gólflömpum
og amerísku loft - og gólflömpunum.
Einnig heimilistæki, sem eru
viðurkennd gæðavara.
Félagsmerkin tala sínu máli
um tilgang félaganna. 1 þeim
báðum er þríhyrningur, sem á
að minna á líkama, sál og anda.
Flestir hugsa aðeins um líkam-
ann — eða líkama og sál. And-
inn má samt ekki gleymast, því
að hjarta mannsins verður allt-
af órótt, unz það hvílist í Guði.
Þríhyrningurinn minnir okkur
einnig á þríeinan Guð, sem elsk-
ar hverja mannssál og telur
hana dýrmæta. Á þennan Guð
vilja félögin benda börnum,ungl-
ingum og fullorðnum. Sunnu-
dagaskólar eru fyrir yngstu
börnin, yngri deildir fyrir 9—12
ára, unglingadeildir fyrir 13—17
ára og eldri deild sameiginleg
fyrir bæði kynin á aldrinum 15
—20 ára.
Fastir fundir í hverri deild eru
vikulega yfir vetrartimann.
Fundirnir í hinum einstöku
deildum eru ákaflega mismun-
andi að allri tilhögun, en reynt
er að sníða þá að áhugamálum
og þroska þess aldurskeiðs, sem
viðkomandi deild starfar á
meðal.
Fyrir nokkrum árum fól
æskulýðsráð félögunum leiktæki
ýmiss konar til notkunar og
varðveizlu. Félögunum hefur
verið mikill akkur í þessum
tækjum og þau mikið notuð og
njóta sívaxandi vinsælda. Nú í
vetur hefur verið rekið „opið
hús“ til notkunar þessara tækja
bæði fyrir unglinga og börn. Er
það mjög fjölsótt.
Sumarbúðastarf hefur ekki
verið rekið á vegum félaganna
hér, en veruleg þátttaka er héð-
an í sumarbúðunum í Vatna-
skógi, Vindáshlíð og í ölver.
Fjöldi unglinga hefur sótt
unglingamót í Vatnaskógi um
verzlunarmannahelgina, að ó-
gleymdum skólamótunum, sem
þar eru haldin um bænadagana
ár hvert á vegum Kristilegra
skólasamtaka.
Á hverju vori er farið með
yngri deildirnar í ferðalag. Síð-
astliðið vor fóru á annað hundr-
að börn á fjöldafund KFUM og
K í Laugardalshöllinni. Var það
mjög ánægjuleg ferð og ógleym-
anleg. Félögin hafa áhuga á að
auka sumarstarfið, t. d. með
auknu tómstundastarfi og ferða-
lögum.
Félögin hafa frá fyrstu tið
haft starfsaðstöðu að Vestur-
götu 35 og notið þar sérstakrar
fórnfýsi og velvildar Kristrún-
ar Ólafsdóttur, sem hefur stutt
starfið með ráðum og dáð.
Fyrir nokkrum árum réðust
félögin í það stórvirki að festa
kaup á neðstu hæð hússins.
Þessi kaup og ýmsar breytingar
sem gerðar hafa verið á hús-
rýminu síðar, binda félögunum
nokkuð þungar fjárhagsbyrðar.
Aðaltekjulind félaganna hefur
verið sala fermingarskeyta, og
er sérstök ástæða til þess að
þakka Akurnesingum þann
stuðning, er þeir í æ ríkara mæli
hafa sýnt félögunum með því
að nota fermingarskeyti þeirra.
Bæjarstjórn Akraness hefur
einnig tvö undanfarin ár veitt
félögunum 15 þúsund kr. á fjár-
hagsáætlun, og ber einnig að
þakka það. Að öðru leyti er
starfið borið uppi af frjálsum
framlögum félaga og annarra
velunnara þess.
Á síðastliðnu ári var eitt her-
bergi innréttað að nýju, og er
nú verið að búa það húsgögnum.
Gefur það aukna möguleika til
smærri funda.
Félagsstarfið hefur nú þegar
sprengt utan af sér það húsrými,
sem félögin hafa yfir að ráða að
Vesturgötu 35, og er félögunum
mikil þörf á auknu húsrými. Það
segir sig sjálft, að þrengsli eru
orðin gífurleg, þegar yfir 100
börn eru saman komin í fundar-
salinn í einu, eins og t. d. er fund
eftir fund hjá yngri deild KFUK
í vetur. Félagsstarfið er einnig
orðið það fjölþætt, að erfiðlega
gengur að finna hentuga funda-
tíma, vegna þess, hve húsið er
ásetið.
Ekki er fjarri lagi, að milli
350 og 400 börn og unglingar
taki á viku hverri þátt i fund-
um og starfi félaganna, að visu
misjafnlega reglulega, þannig að
þátttökuhópurinn verður all-
miklu stærri.
Heitasta framtíðarvon KFUM
og K er sú, að sú alda trúar-
vakningar, sem nú fer víða um
lönd meðal ungs fólks, megi
einnig berast til okkar í æ rík-
ara mæli, svo orðið um Jesúm
Krist verði rótfest í lifandi trú
á meðal æsku þessa bæjar.“
Því má bæta við, að á afmæl-
isfundi félaganna 16. nóv. s.l.
gengu þrír piltar og f jórar stúlk-
ur inn í aðaldeildir félaganna.
Formaður KFUK á Akranesi
er Sigurbjörg Jónsdóttir.
14