Bjarmi - 01.01.1978, Blaðsíða 15
t--------- ■'i
Um leið og BERKEMANN
töfflurnar eru
lieilsnsamlcgar
þá þykja þær
þægilegar
og eru
ávallt í tízkn
DDMUS MEDICA, EGILSGDTU 3, PDSTHÖLF 5G5G, SÍMI 1B519
í „dæmisögu“ í guðspekinni gæti
brotið gullílát sagt við sig sjálft:
„Ég var nú einu sinni fagurt
ílát. Nú hyggst ég vilja verða fall-
egur diskur. Ég ætla að íhuga og
breyta. sjálfum mér meö kraftinum
innra meö mér“.
En Biblían kennir, að skaparinn
verði að bræða gullilátið og mynda
það upp á nýtt.
Þegar ég áttaði mig á því, að ég
var úti á berangri, andlega talað,
og gat ekki breytt mér, þá sneri
ég mér í trú til Jesú Krists, og
hann frelsaði mig. Heilagur andi
tók sér bústað í mér.
Mikil er sú breyting, sem Krist-
ur kemur til vegar. Þó að ég kunni
að vera „öðruvísi en aðrir“, er ég
ekki lengur ein. Sektarkenndin varð
að engu í fyrirgefningu hans.
Hjónabandi mínu var borgið. Mað-
urinn minn tók líka trú á Krist.
Nú er ég að búa mig undir hið
fullkomna, eilífa líf, sem ég á fyrir
höndum með Guði, föðurnum, og
syni hans, Jesú Kristi, með því að
hann „verkar í mér bæði að vilja
og framkvæma, sér til velþóknun-
ar“ (Fil. 2,12-13).
Don Mainprize skráöi eftir N.N.
Ijuni
Út koma 12 tölublöð á ári, 1—2 tbl.
í senn. Ritstjóri Gunnar Sigurjónsson.
Afgreiðsla Amtmannsstíg 2B, pósthólf
651, 121 Reykjavík. Símar 17536 og
13437. Árgjald kr. 1.000. Gjalddagi
1. apríl. Prentað í Prentsm. Leiftri hf.
Efnisyfirlit
Ég var guðspekingur ............... 1
Ljós og skuggar á akrinum ......... 2
Jóhannes Ölafsson til Eþíópiu .... 3
Gjafir ............................ 4
Borðfánar ......................... 4
Hendur Guðs ....................... 5
Bezta óskin ....................... 5
„Hann leiddi þá úr angist þeirra".. 6
Síðara Korintubréf................. 8
Frá starfinu ...................... 9
Taktu heimili mitt ................ 10
Æskan kemur til Krists ........... 12
Til umhugsunar ................... 13
Um víða veröld...............2, 3, 13
Leiðrétting ...................... 14
Sumarstarfið ...................... 14
Orðsending til kaupenda ........... 15
Orðsending til kaupenda
BJARMI sendir kaupendum sínum
beztu kveðjur og óskar þeim allra
heilla á nýju ári. Blaðið þakkar göml-
um og nýjum lesendum trúfesti þeirra.
Það er ómetanlegur styrkur að eiga
tryggan hóp áskrifenda, sem bera hag
blaðsins fyrir brjósti og hafa trú á
því málefni, sem það vill vinna fyrir,
að efia kristilegt trúarlíf og starf, hér
heima og meðal heiðinna þjóða.
Blaðið er lílca í þakkarskuld við
útsölumenn fyrir starf þeirra. Einnig
skal þakkað fyrir gjafir, sem blaðinu
hafa borizt. Þá ber að nefna auglýs-
endur, og vill Bjarmi hvetja lesendur
til að beina viðskiptum sínum til
þeirra, sem auglýsa í blaðinu.
Mjög væri æskilegt, að áskrifend-
ur blaðsins yrðu fleiri en nú er. Vilji
lesendur stuðla að því, að svo verði,
er blaðinu mikil þökk í því, og einstök
blöð til kynningar verða þeim send,
sem þess óska.
Sú leiða og ljóta verðbólga, sem
kemur við á hverjum bæ á ferð sinni,
veldur því, að ekki verður hjá því
komizt að hækka árgjald blaðsins
upp í eitt þúsund krónur. Verð aug-
lýsinga mun einnig hækka nokkuð.
Minnt skal á, að skilvísi í greiðslu ár-
gjalds er höfuðnauðsyn. Gjalddagi er
1. apríl sem fyrr.
15