Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.01.1978, Blaðsíða 11

Bjarmi - 01.01.1978, Blaðsíða 11
Fagnaðarerindið um Krist kemur alls staðar með birtu og hjólp í lífsbarótt- unni. Því œtti fólk að skipa frelsaranum í heiðurssœti á heimilum sínum, er það stofnar til hjúskapar, — og íhuga, hvort það getur ekki gefið öðrum hlutdeild í þeirri blessun, sem Kristur veitir því á heimilum þess. — Greinin hér á opnunni segir frá kristnum hjónum, sem opnuðu heimili sitt fyrir unglingum, er þurftu sérstaklega hjálpar við. Þar nutu þeir kœrleika og öryggis. an veðurdag að þau giftust og stofnuðu heimili. Þau voru mikl- ar andstæður. Leonard var opin- skár, aldrei feiminn, og sífellt fullur af orku. Muriel var hlé- dræg og varð óstyrk í hnjálið- unum, þegar fólk leit inn til þeirra. Af þessu varð hún önug í lund, og hún varð að læra að leyfa fólki að vera eins og því var eðlilegt, án þess að mögla eða kvarta. ,,Fyrsta íbúðin okkar var ekki nema tvö herbergi", segir hún. ,,Húsgögnin voru gömul og vegg- fóðrið svart á litinn, en við vor- um staðráðin í að nota hana i þjónustu Drottins, og við gerð- um það“. [ þá daga var ekki til rieitt sjúkrasamlag. En Leonard hafði sótt stutt læknisnámskeið, og því kornu grannarnir til hans út af alls konar vandamálum og erfiðleikum. Hann minnist konu einnar. Hún kom með barn sitt, sem hafði gleypt prjón. Leonard og Muriel voru vingjarnleg við alla sem bar að garði, og hjálp- uðu þeim, ef þau máttu. ÞRJÁTÍU OG FJÖGURRA MANNA FJÖLSKYLDA ,,Leonard var alltaf að fara út í skemmtigarðinn til þess að leika knattspyrnu við börnin í hverfinu", segir Muriel hlæjandi. ,,Hann eignaðist nokkra góða kunningja, og þegar okkur fædd- ust sonur og dóttir, komumst við að því, að við áttum heilmarga vini fyrir þeirra tilstilli". Lífið gekk sinn vanagang um skeið. En Drottinn hafði aðrar fyrirætlanir í huga með ungu hjónin. Leonard kynntist manni einum. Sá var að leita að hjón- um, sem vildu ganga nokkrum piltum ,,i foreldra stað“. Þeir voru nemendur úr skóla fyrir vandræðapilta. Þeim var nauð- syn á að komast á heimili, þar sem þeim væri hjálpað til þess að lifa í sátt og samlyndi við þjóðfélagið. Og fyrr en varði voru Williamshjónin orðin ,,pabbi og mamma" þrjátíu pilta í stóru húsi. Þau tóku við húsinu af fólki, sem hafði geymt alla hluti í lok- uðum hirzlum og herbergjum. Þessu var fljótlega breytt, og stefnt var að því, að allt væri með eðlilegum heimilisbrag. Aldrei var nokkru stolið, eftir að auðvelt var að nálgast það, og hjónin sáu, að sú breyting, sem þau höfðu gert í þessu efni, hafði örvandi áhrif á piltana. Muriel játaði, að í fyrstunni hefðu þau hugsað sér að veita börnum sínum fullkomna vernd — miklu meiri en nauðsynlegt var, einkum dótturinni, þar sem sumir drengirnir höfðu gerzt brotlegir gagnvart stúlkum. ,,En við komumst fljótlega að raun um, að traust kallar á traust í þessum efnum, og piltarnir lærðu að bera virðingu fyrir henni, og þeir gættu jafnvel tungu sinnar, þegar hún var náiægt. Við urð- um líka að reyna að vera al- gjörlega réttlát og forðast að afsaka okkar börn fremur en hin — en um tíma var það mjög erfitt", segir Muriel. Hjónin höfðu hluta hússins út af fyrir sig, einkum til þess að börn þeirra hefðu næði til náms. Samt læstu þau aldrei dyrun- um, og drengirnir máttu koma inn, hvenær sem þeir vildu. Sum- ir komu af sjálfsdáðum til þess að spjalla við þau, og Muriel fann, að þeim líkaði vel að tala við hana í eldhúsinu. Þeir gátu trúað henni fyrir tilfinningum sín- um og lesið fyrir henni bréfin, sem vinkonur þeirra skrifuðu þeim. ,,Við urðum að vera við því búin að hlusta með þolinmæði, þó að okkur virtist þeir fara með eintómt rugl. Það var drengjun- um hjálp til að létta á sér og losna við byrðarnar", segir hún. Framhald. 11

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.