Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.01.1978, Blaðsíða 2

Bjarmi - 01.01.1978, Blaðsíða 2
BREF FRA ELSU JACDBSEN Ljós og skuggar á akrinum Arba Minch, 19. nóv. 1977. Kæru kristniboðsvinir. Mig langaði til að senda ykkur kveðju. Það var mér óblandin ánægja að hitta ykkur svo mörg á íslandi síðastliðinn vetur, og vil ég þakka ykkur aí hjarta fyrir alla umhyggju og kærleika, sem ég naut af ykkar hálfu. Guð blessi ykkur öll í þjónustunni, sem þið innið af hendi, bæði heima og ytra. Ég flyt ykkur þakkir, ykkur, sem minnizt mín enn þá í bæn, þó að ég sé ekki í Konsó að þessu sinni. Ég var sett til starfa í Abra Minch, eins og þið vitið mörg ykk- ar, og var fengið hlutverk hér við sjúkrahúsið. Arba Minch er ykkur íslendingum ekki ókunnur staður, enda störfuðu Áslaug og Jóhannes Ólafsson hér um langt skeið, og hefur staðurinn því á sérstakan hátt verið umvafinn fyrirbæn kristniboðsvinanna. — íslenzku kristniboðarnir, sem hafa verið í Gídole og Konsó, hafa líka haft náið samband við Arba Minch. FYRIRBÆN VEITIR STYRK Hér er gott að vera, og mér þykir vænt um að vera hér. Ýmis konar vandamál hafa komið upp, bæði fyrr og nú, en Guð hefur ver- ið nálægur með sérstæðum hætti í öllum erfiðleikum. Mér hefur sjálfri fundizt, að mjög margir hafi beðið fyrir mér að þessu sinni. Ég þakka ykkur öllum innilega. Sjötíu rúm eru á sjúkrahúsinu, Berisha Húnde er stöðvarstjóri í Konsó og hefur á hendi yfirumsjón með starf- inu i héraðinu. og þau eru alltaf fullskipuð. Auk þess koma um það bil 100 manns daglega á varðstofuna. Nú eru hér tveir læknar að störf- um, og um þessar mundir erum við fjórar hjúkrunarkonur, tvær norskar, ein dönsk og ég. Áður hafa verið hér þrjár hjúkrunar- konur. Við erum fegin, að við er- um svona vel mennt. Það eru miklir möguleikar að boða fagnaðarerindið á sjúkra- húsinu. Á hverjum morgni, áður en störfin hefjast, er flutt hug- vekja við anddyrið fyrir sjúkling- unum, sem eru komnir ásamt fylgdarfólki. Þeir, sem eru rúm- liggjandi, heyra líka í hátalaran- um. Predikarinn á sjúkrahúsinu gengur um og ræðir við sjúkling- ana. Á kvöldin gefast okkur líka tækifæri til þess að hafa hugvekj- ur inni á stofunum. Fólkið gefur gaum að fagnaðarerindinu, og marga hungrar beinlínis eftir að heyra orð lífsins. Það er mikið spurt um Biblíur, og fjölmargar Biblíur hafa verið seldar ódýrt. Þá höfum við einnig dreift ógrynni af góðum smáritum, og þeim er veitt viðtaka með þakklæti. ÆSKAN FYLKIR LIÐI Kristnir menn í landi hér búast við þrengingum vegna Krists, og margir hafa þegar fundið fyrir þeim. Margir kaupa Biblíur til að fela þær í jörðu. „Ef þeir taka Biblíu frá okkur, er gott að eiga aðra falda,“ segja þeir. Annars er margt gleðilegt hér í Arba Minch. Guð er að verki, og við undrumst og þökkum. Hans er dýrðin, nú og um alla eilífð. Stóra, fallega kirkjan á kristni- boðsstöðinni er nú troðfull á hverj- um sunnudegi, þegar guðsþjónust- ur eru haldnar. Þetta er mest- megnis skólaæska. Margir koma líka úr bænum. Niðri í bænum hefur Mekane Jesús kirkjan líka samkomuhús. Þar er fullt hús síðdegis á laugar- dögum og sunnudögum. Bændafélagið hefur margsinnis lagt hald á húsið og bannað, að haldnar séu kristilegar samkomur. Það hefur líka hótað að taka Biblíumar af kristnum mönnum og brenna þær. Kristna fólkið ræddi við yfir- völd hér á staðnum, og hefur það nú fengið húsið sitt aftur, og sam- komurnar hafa haldið áfram. Fyrir nokkrum vikum kom hóp- ur unglinga aftur á sunnudegi og truflaði samkomuna. Þeir tóku lykilinn og lokuðu húsinu einu sinni enn. Enn er farið að semja. Samkvæmt landslögum er trúar- bragðafrelsi í landinu. Ríki Guðs eflist í erfiðleikum. FRÉTTIR FRÁ KONSÓ. Okkur kristniboðunum líður vel, og við erum frísk. Hér í Gamu Gofa er enn rólegt. Við verðum ekki beinlínis vör við stríðið, að öðru leyti en því, að einnig héðan er fólk sent austur á bóginn. Við gerum okkur ljóst, að við dvelj- EÞÍÓPÍA: KFUM „þjóðnýtft" Herstjórnin í Eþíópíu hefur „þjóö- nýtt'' KFUM-hreyfinguna i landinu, eins og komizt er að oröi f frétt- um frá KFUM í Þýzkalandi. Hefur stjórnin lagt hald á allar stofn- anir, starfslið og œfingabúöir hreyfingarinnar í Addis Abeba, höfuöborginni. KFUM í Eþíópiu er því ekki lengur til. Hvergi í Afríku var KFUM eins öflugt og í Eþíópíu. 2

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.