Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.01.1978, Blaðsíða 5

Bjarmi - 01.01.1978, Blaðsíða 5
HALLA BACHMANN: Hendur GuSs Eru hendur Guðs í þínu lífi? Hefur þú rétt út hendur þínar móti höndum hans? Drottinn sagði við ísrael: „Ég hef rétt út hendur mínar allan dag- inn í móti þrjózkum lýð.“ ísraels Guð er Guð alheimsins og því þinn Guð. Enn í dag eru hendur hans útréttar til þín, fyrir þig- Hann segir: „Er hönd mín svo stutt, að hún geti ekki frelsað, eða vantar mig mátt til að bjarga?“ (Jes. 50.2). Svarið er: „Sjá, hönd Drottins er eigi svo stutt, að hann geti ekki hjálpað — en það eru misgjörðir yðar, sem skilnað hafa gjört milli yðar og Guðs yðar“ (Jes. 59,1—2). Hendur Guðs eru enn þær sömu, reiðubúnar að frelsa og bjarga. Frelsa frá synd og dauða og feykja burtu misgjörðunum. Já, hendur Guðs kasta öllum misgjörðunum i djúp hafsins, ekki vegna þess að þær séu svo máttugar, heldur vegna þess að þær eru gegnum- stungnar. Það er vegna fómar- dauða guðssonarins, því að nú er hið eilífa mark kærleikans í hönd- um Guðs. Þess vegna er það, að hversu margar og stórar sem syndimar kunna að vera, þá mást þær út, þegar þær hafa farið um þessar heilögu hendur. Hendur Guðs em ávallt til reiðu, útréttar til að leysa hvem vanda. Hann getur greitt úr flækju, sem mannlega séð virðist óleysanleg. Ef það er í höndum hans, þetta mál, sem þú ræður ekkert við, seg- ir hann þér að taka hendur þínar burt og treysta sér einum. Og sá, sem treystir Drottni, verður ekki til skammar. Ef til vill stendur þú á vega- mótum og veizt ekki, hvert-skal halda. Þá er hönd hans enn útrétt til að leiða og benda. Hvar sem ég er og hvert sem ég fer, þá ert þú þar, „þótt ég settist við hið yzta haf, einnig þar myndi hönd þin leiða mig“ (Sálm. 139,10). Ef við höfum rétt hendur okk- ar móti höndum hans, þá láta þær okkur aldrei afskiptalausar, hend- ur Guðs. Þær eru sívinnandi okk- ur í hag. Þær móta okkur líka. „Eins og leirinn í hendi leirkerasmiðsins, svo eruð þér í minni hendi, ísraels hús, segir Drottinn“ (Jer. 18,6). Eru ekki margar misfellur í okk- ar lífi, sem þyrfti að laga, svo að úr verði ker til heiðurs, helgað ker og hagfellt húsbóndanum, hæfilegt til sérhvers góðs verks? Ef til vill þurfa þessar hendur að taka fastar á, ef til vill slá, ef mótspyrnan er mikil og efniviður- inn harður og óþjáll. ,,í reiði minni sló ég þig, en af náð minni misk- unna ég þér“, sagði hann við lýð sinn (Jes. 60,10). Það er sama höndin, sem særir og græðir. Það er hann, sem agar, af því að hann elskar. Það er blessuð höndin hans. Minnumst þess, að sá, sem faðir- inn sló þyngsta höggið, var sá, sem hann elskaði mest. Ef til vill læðist að okkur efi. Ögunin getur verið hörð og löng, og við spyrjum: „Hefur hann sleppt af mér hendinni?“ Jesús svarar: „Ég gef þér eilíft líf, og þú skalt aldrei að eilífu glatast, og enginn skal slíta þig úr minni hendi — og enginn getur slitið þig úr hendi föðurins." Okkar er að fylgja góða hirðin- um og hlýða raust hans. Orðið segir okkur, hvað þessar hendur hafa mesta unun af að gera. Það er að blessa. „Og Guð blessaði þau.“ Það voru okkar fyrstu foreldrar. Enn segir: „Guð blessaði Nóa og syni hans.“ „Guð blessaði Abra- ham og hann sagði: Ég skal ríku- lega blessa þig — og af þínu af- kvæmi skulu allar þjóðir jarðar- innar blessun hljóta.“ Og fyrirheitið rættist í Orðinu, sem varð hold. Og við sjáum mynd- ina fyrir okkur: Jesús er um- kringdur af börnum, og hann — lagði hendur yfir þau og blessaði þau. Ef til vill er langt síðan þú hef- ur beðið um blessun handa hans. Þú segir þá: „Hann hefur gleymt mér.“ Þá svarar hann: „Hvort fær kona gleymt brjóstbarni sínu, að hún miskunni eigi lífsafkvæmi sínu? Og þó að þær gætu gleymt, þá gleymi ég þér samt ekki. Sjá, ég hef rist þig á lófa mína“ (Jes. 49,15—16). Já, Guði sé lof fyrir það, að þótt við séum ótrú, þá er hann samt trúr. Hendur Guðs — getum við kom- izt af án þeirra? Þegar okkar hendur eru mátt- vana, finnum við gleggst, hve hendur hans eru máttugar. Þegar hendur okkar fálma og flækja, finnum við bezt, hve mikil list og hagleiki býr í höndum hans. Hefur þú rétt hendur þínar móti þessum höndum? Eru hendur Guðs í þinu lífi? HaTla BacTimann. Bezta óskin Danski rithöfundurinn H. C. Andersen heimsótti einhvem tíma sálmaskáldiö Ingemann. Skáldið spuröi gestinn: ,fHvers mundir þú óska þér, ef þú mœttir fá þrjár óskir upp- fyUtar?“ Andersen svaraöi: ,fÉg mundi óska þess, aö ég yröi mikiö skáld, aö mér tækist aö umbreyta mönn- unum í samræmi viö þá mynd, sem ég ber í brjósti mér, og aö þjóö mín minnist mín ávallt meö kær- leika í huga. — En hversu mundir þú óska þér, Ingemann?“ Ingemann svaraöi: „Ég mundi óska mér þess eins, aö vilji Guös yröi í öllum greinum í Itfi minu“. ,fÞú hefur rétt fyrir þér“, mælti Andersen. „Ósk þín er miklu betri en minar þrjár“. 5

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.