Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.01.1984, Page 12

Bjarmi - 01.01.1984, Page 12
 Kristið uppeldi 6. Trúarleg uppeldismótun Sigurííur Pálsson er höf- undnr þessara fíreina. Hann er formaður KFUIVÍ í Reykjavík. í síöasta kafla var lítillega rætt um skírnina og henni m.a. líkt við ágræöslu á líkama Krists, fæöingu til nýs lífs o.s.frv. Með því var undirstrikað, aö trúin er gjöf Guös og líf í trú sömuleiðis. Þessi líking á ágætlega við það sem mig langar að ræða í þessum kafla, þ.e. trúarlega uppeldismótun. Þegar barn fæðist, vex það ekki og þroskast af sjálfu sér. Sú umönnun sem barnið fær andlega og líkamlega skiptir sköpum um farnað þess. Sama gildir um hið trúarlega. Barnið verðurekki kristið „af sjálfu sér“. Um leið og það er undirstrikað að Guð gefur líf í sér er jafnframt nauðsynlegt að undirstrika þá ábyrgð, sem foreldrar, skírnarfeðgin, aðstandendur og hinn kristni söfnuður ber á hinni trúarlegu fræðslu og uppeldismótun. Er trúhneigðin meöfædd? Mikið hefur verið rætt og ritað um það hvers eðlis trúhneigðin sé. Allar tilraunir til að sýna fram á að með barninu búi einhver náttúrulegur eiginleiki sem hið trúarlega spretti upp af sjálfkrafa hafa siglt í strand. Hins vegar er auðvelt að benda á þætti í veru barnsins sem gera það sérstaklega móttækilegt fyrir hvers konar trúarleg áhrif. Á grundvelli þessa hefur verið bent á að trúarlegur þroski barnsins og trúhneigð er fyrst og fremst háð áhrifum frá umhverfinu. Þetta má orða þannig, að hið trúarlega svari til einhvers í veru mannsins, en það, eins og ýmislegt annað í mannlegri veru, eins og t.d. málið, er háð því að barnið mæti því í umhverfi sínu svo það geti tileinkað sér það. Barniö hefur t.d. forsendur til þess aö læra að tala en til þess að barnið verði talandi þarf það að tileinka sér málið og læra að beita því með því að við það sé talað. Á hinu siðferðilega sviði er hið sama uppi á teningnum. Barnið hefur forsendur til að læra mun á réttu og röngu og bregðast á tilfinningalegan hátt við eigin athöfnum. En til þess að samviskan mótist, þroskist og hafi áhrif í lífi einstaklingsins þarf barnið að mæta siðrænum gildum í umhverfi sínu og tileinka sér þau. Samt sem áður hefur hið trúarlega sérstöðu með tilliti til málsins og siðgæðisins. Sú menning sem barnið vex upp í lýtur að öðru jöfnu ákveðnum lögmálum bæði málfarslega og siðferðilega, þannig að gera má ráð fyrir að öll börn fái tækifæri til að þroskast á þessum sviðum, þótt það kunni að vera með breytilegum hætti. Hins vegar er ekki jafnvíst að öll börn alist upp við þær aðstæöur að hinn trúarlegi þáttur sé hluti af daglegu umhverfi þeirra. Eins og áður var vikið að er ekki hægt að reikna með einhverjum sjálfgefnum trúarlegum þroska hjá öllum börnum. En jafnvel þótt umhverfið skapi skilyrði fyrir trúarlegan þroska og trúarlega uppeldismótun, er vert að gefa gaum að því aö forsendur barnanna til að tileinka sér hið trúarlega atferli og trúarlega þekkingu eru ólíkar eftir aldursskeiðum. Hér á eftir verður leitast við að gera nokkra grein fyrir hinni trúarlegu uppeldismótun með hliðsjón af því sem sagt var um tjáskipti barns og uppalanda í 4. kafla (Afstaðan til barnsins) og líkani af hlutverki fjölskyldunnar sem tveir norskir uppeldisfræð- ingar hafa sett fram. (Oddbjörn Evenshaug og Dag Hallen: Barnedáp og oppdragelse, Luther Forlag 1981). Mikilvægi reynslunnar Þegar hinum trúarlega boðskap er miölaö frá einum til annars er þaö gjarnan gert með hjálp ákveðinna tákna svo sem orða, mynda, fyrirmynda o.s.frv. Með hjálp þessara tákna er síðan ætlast til að barnið geri sér grein fyrir því í hverju hinn trúarlegi boðskapurerfólginn. Þegar barnið leitast við að skilja tákn sem það mætir, er það háð reynslu þess hver niðurstaðan verður. Tökum dæmi: Ef talað er við nútímabörn um bíla, er hægt að ganga aö því nokkurn veginn sem gefnu að þau hafi svipaðarhugmyndirum þessháttarfarartæki. Öll hafa séð bíla af ólíkum geröum og ferðast í þeim. Ef hins vegar er talað um Guö — um gæsku hans, kærleika, heilagleika o.s.frv. er ekki á sama hátt hægt að ganga að því sem gefnu að þær hugmyndir sem vakna með börnunum við slíkt tal séu allar eins og þaðan af síður að þær séu allar í samræmi við það sem verið er að reyna að koma til skila. Sú hugmynd sem þau kunna að gera sér er háð fyrri reynslu, bæði því sem þau kunna áður að hafa heyrt um sama efni og sömuleiðis margvíslegri reynslu annarri. Við getum til dæmis hugsað okkur börn, sem heyra um Guð sem kærleiksríkan og umhyggjusaman föður. í huga barns sem ætíð hefur notið kærleika og umhyggju foreldra sinna verður þetta strax skiljanlegt og sú tilfinning fyrir elsku og umhyggju foreldranna sem barnið ber með sér yfirfærist á þær hugmyndir sem barnið gerir sér um Guð. Barn sem einskis slíks hefur notið í nánasta umhverfi sínu á hins vegar erfitt með að fá þetta dæmi til að ganga upp og neikvæð ímynd foreldranna getur þannig yfirfærst á hugmynd barnsins um Guð. Reynsla barnsins er þannig veigamikill þáttur í því sem 12

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.