Bjarmi - 01.12.1997, Qupperneq 21
vikulega í eftirlit, síðan hálfmáinaðarlega
og nú fer ég einu sinni í mánuði og kem
áfram til með að þurfa á reglulegu eftir-
liti að halda. Það þarf stöðugt að fylgjast
með „statusnum" á höfnunarfyfjunum.
Með timanum get ég kannski losnað við
sterana en ég kem alltaf til með að þurfa
að vera á höfnunarlyfjum. Það hefúr líka
verið ómetanlegt hvað margir hafa lagst
á eitt að hjálpa okkur, til dæmis við að
standsetja nýja húsið.
En meðgangan, hvernig gekk hún
Edda?
E: Hún gekk mjög vel. Óneitanlega
var ég orðin svolítið þreytt um miðjan
febrúar þegar við náðum að flytja hingað
inn en Berglind Elva fæddist 1. mars,
tveimur dögum fyrir afmælið hans Silla.
S: Ég var náttúrulega að sigta upp á
sama dag. En eftir á að hyggja þá er
betra að fá tvær veislur!
Bjargfast akkeri
Að lokum: Hvað stendur upp úr í huga
ykkar eftir ykkar erfiðu lífsreynslu?
S: Það hefur verið alveg ómetanlegt að
finna allan þann stuðning sem við höf-
um fengið. Símhringingar, heimsóknir,
bréf, kveðjur, fyrirbænir og margvislega
hjálp. Við höfum fundið svo glöggt að
við höfum ekki staðið ein í baráttunni. í
huga mér býr innilegt þakklæti fyrir að
hafa í raun fengið lífgjöf, þakklæti til
Guðs, til lækna, hjúkrunarfólks, fjöl-
skyldna og vina. Ekki má gleyma
ómetanlegum stuðningi vinnufélaga
okkar beggja, bæði fyrir og eftir aðgerð.
Mér finnst líka að erfiðleikarnir hafi
styrkt mig í trúnni og fært mig nær
Guði. Ég hef stundum spurt sjálfan
mig: Hvað ætlast Guð fyrir með mig?
Hvert er hlutverk mitt í ríki hans?
E: Eftir á að hyggja flnn ég svo glöggt
hvað trúin hefur verið okkur mikils
virði, eins og bjargfast akkeri. Ég get
ekki útskýrt á hvem hátt en það hefur
verið mér svo mikilvægt að flnna návist
Guðs og vita að ég hef getað lagt allt
fram fyrir hann. Hann hefur verið með
okkur í erflðleikunum.
„MiJcilvægt að hirhjan
starfræki bóVzantgáfn “
Rætt við Eddu Möller
umjólabækumar hjá
Skálholtsútgáfunni
Jólabókaílóðið er skollið á. Bókastöflum í
bókabúðunum hefur fjölgað jafnt og þétt og
bókaauglýsingar dynja á okkur í öllum fjöl-
miðlum. Skálholtsútgáfan er ein af mörgum bóka-
útgáfum í landinu. Bjarmi hafði samband við framkvæmdastjórann, Eddu Möller, og
spurði tiðinda af útgáfunni í ár.
- Fýrst er að nefna nýja útgáfu Sálmabókar kirkjunnar. Hún er með nótum og í
tónhæð sem miðast við almennan salnaðarsöng. Helsta markmið með útgáfunni er að
auka og sfyðja við og hvetja til þátttöku i almennum safnaðarsöng í kirkjunni.
Af nýútkomnum bamabókum hjá Skálholtsútgáfunni má nefna bókina Músin og
eggið. Sagan segir frá þvi þegar afl varð þreyttur á því að fá alltaf egg í matinn.
„Getum við ekki fengið eitthvað annað betra að borða?" segir afl einn dag við ömmu.
Og þá fer nú ýmislegt að gerast í litla húsinu. Meistaraleg frásögn og frábærar myndir
fléttast saman í þessari hugljúfu sögu.
Nóttin sem stjömumar dönsuðu af gleði er jólabókin fyrir bömin. Sagan segir frá
hirðinum, konu hans og syni þeirra sem höfðu lagst fyrir uppi á hæðinni þegar
vinnudagur var að kveldi kominn. Þá grúfði nóttin sig yflr borgina Betlehem og
sveipaði sig um hæðimar kringum
hana. Þetta virtist ætla að verða eins
og hver önnur nótt. En þess var ekki
langt að bíða að einmitt þessi nótt
yrði þeim ógleymanleg.
Þá er ný Bamabiblia komin út. Hún
endursegir á lifandi hátt meginefni
Gamla og Nýja testamentisins. Hún er
prýdd fjölda glæsilegra mynda eftir
listamanninn Ulf Löfgren. Þessar
myndir eru ekki síður frásögn út af
fyrir sig og fléttast listilega við endur-
sögn biblíutextanna.
Næst er að nefna tvær fallegar
bækur, Speki Jesú Krists og Speki
Davíðssálma. Báðar em þær hugsaðar
sem hjálp við íhugun og skiptast niður í þijátiu stutta kafla þar sem hver kafli gefur
lesandanum andlegt nesti fyrir hvem dag mánaðarins.
Skálholtsútgáfan hefur undanfarin ár haft með höndum útgáfu á kórbókum fyrir
bamakóra við kirkjur og skóla. Ein slík kom út í vor og heitir Te deum - 50 kirkju-
legir söngvar. Einnig hefur verið gefin út kórbók fyrir blandaða kóra sem ber nafnið
Dýrð vald virðing - 50 kirkjulegir söngvar. Þá er nýútkominn geisladiskur sem ber
sama nafn, Dýrð vald virðing. Kór Akureyrarkirkju flytur þar ásamt einsöngvurunum
Sigrúnu Hjálmfýsdóttur, Óskari Péturssyni og Sigrúnu Ömu Amgrímsdóttur nítján af
fjölmörgum perlum kirkjutónlistarinnar.
Loks má nefna að ellefta bókin í Ritröð Guðfræðistofnunar - Oss langar að sjá Jesú -
afmælisrit sr. Jónasar Gíslasonar f.v. prófessors og vigslubiskups, er komin út.
Hvemig gengur litlu og sérhæfðu forlagi að vekja athygli á þvi sem það gefur út?
- Það væri kannski betra ef einhver annar svaraði þvi en ég. En við reynum að vera
með og notum vitanlega sömu aðferðir og aðrir, s.s. kynningu í blöðum og
auglýsingar. Árangurinn er misjafn en mikilvægast er þó að kirkjan starfræki
bókaútgáfu sem gefur út bækur á kristnum gmnni á almennan markað.
Hafa íslendingar áhuga á kristilegum bókum?
- Ég flnn fyrir miklum áhuga á öllu sem snýr að bömum. Sumar bækur fyrir
fullorðna ganga líka sérlega vel en annað tekur tima að selja.
Hver er óskabók framkvæmdastjórans í ár?
- Ég les nú næstum allt sem ég kemst í og veiti mér jafnvel þann munað að kaupa
mér bækur fyrir jólin. Ég verð þó að viðurkenna að þegar ég vil hafa það verulega gott
í jólafriinu þá næli ég mér í góða sakamálasögu!
GJG