Bjarmi - 01.12.1997, Side 28
Sigríður Halldórsdóttir
Jesús Kristur - Ljósiö sanna:
Hann sem er
og var og kemur
vílíkir atburðir voru það sem
gerðust fyrir hartnær tvö
þúsund árum í kringum fæð-
ingu „hins sanna ljóss, sem
upplýsir hvern mann“, inn í þennan
heim. Þeir sem næstir honum stóðu
fylltust heilögum anda og englar vitjuðu
þeirra.
Lúkas guðspjallamaður byrjar frásögn
sína af þessum miklu atburðum á því
að lýsa Elísabetu og Sakaria sem bæði
voru réttlát fyrir Guði og lifðu vamm-
laus eftir öllum boðum og ákvæðum
Drottins. Þegar Sakaría var að gegna
helgri þjónustu birtist Gabriel erkiengill
honum til að flytja honum gleðifregn, að
honum myndi fæðast sonur sem þegar
frá móðurkviði myndi fyllast heilögum
anda og verkefni hans frá Guði væri
m.a. að búa Drottni altygjaðan lýð (sbr.
Lúk. l:17b). Þegar Jóhannes er fæddur
og Sakaría faðir hans segir hvert nafn
hans skal vera fyllist hann heilögum
anda og mælir ffam lofsöng af spámann-
legri andagift.
Jesús Kristur
- Sonur hins hæsta
Nokkru eftir að Gabríel birtist Sakaría
birtist hann Maríu frændkonu Elísa-
betar og bar henni þá fregn að hún
hefði fundið náð hjá Guði. „Þú munt
þunguð verða og son ala, og þú skalt
láta hann heita JESÚ. Hann mun verða
mikill og kallaður sonur hins hæsta.
Drottinn Guð mun gefa honum hásæti
Davíðs föður hans og hann mun ríkja
yfir ætt Jakobs að eilífu og á ríki hans
mun enginn endir verða ... Heilagur
andi mun koma yfir þig og kraftur hins
hæsta mun yfirskyggja þig. Fyrir því
Sigríður Halldórsdóttir er forstöðumaður
heilbrigðisdeildar Háskólans á Akureyri.
mun og barnið verða kallað heilagt,
sonur Guðs (Lúk. 1:31-33,35). Þegar
Maria síðan heimsækir frændkonu sína
fyllist Elísabet af heilögum anda og
hrópar hárri raustu: „Blessuð ert þú
meðal kvenna og blessaður ávöxtur lífs
þíns,“ og María miklar Drottin í einlægri
lofgjörð. Við sjáum þær fyrir okkur,
þessar tvær helguðu konur sem Drott-
inn Guð kallaði til svo ábyrgðarmikilla
hlutverka. Þær dveljast saraan í þrjá
mánuði, efalaust í lofgjörð og bæn.
Jesús Kristur
- Sá sem frelsar
Hálfu ári síðar gerist undrið. Ljós
heimsins fæðist inn í þennan heim.
Engill Drottins kunngjörir gleðitíðindin
miklu: „Ég boða yður mikinn fögnuð,
sem veitast mun öllum lýðnum: Yður er
í dag frelsari fæddur, sem er Kristur
Drottinn.“ Með englinum er fjöldi
himneskra hersveita sem lofar Guð fyrir
kærleiksverk hans. Drottinn hafði gefið
fyrirheit sín um að frelsa lýð sinn und-
an oki myrkurs og synda og leiða hann
til síns undursamlega ljóss. Góður Guð
stendur við hvert fyrirheit. Munum það.
Jesús Kristur
- Sigurhetjan
Sigurhetjan Jesús Kristur, sem farið
hefur í gegnum himnana (Hebr. 4:14),
er konungur ljóssins barna. Það er
vegna komu hans sem við höldum
heilög jól. Það er honum til heiðurs sem
við tendrum ljós og köllum jólin ljóssins
hátíð því hann er hið sanna ljós sem
upplýsir hvern mann (Jóh. 1:9). Það
þýðir að sérhver sá sem hefur í sér ljós
hefur það frá honum. Hann er viska
Guðs og speki. Eins og Sakaría sagði
fylltur heilögum anda, þá tengist koma
hans til jarðarinnar hjartans miskunn
Guðs sem vildi að allir kæmust til þekk-
ingar á hjálpræðinu sem er fyrirgefning
syndanna. Guð faðir sendi son sinn til
að vitja okkar og vera okkur sól af
hæðum sem lýsir þeim sem sitja í
myrkri og skugga dauðans. Hann sendi
Jesú Krist til að beina fótum okkar á
friðarveg (Lúk. 1:78-79). En hvernig
getur Jesús Kristur lýst upp okkar innri
mann? Hvernig getur hann umbreytt
myrkri i ljós? Hvemig getur hann um-
breytt hjörtum okkar, hugum og sálum
til sinnar myndar? Fyrst og fremst með
þvi að gefa lif sitt til lausnargjalds fyrir
marga. Hann ítrekaði einmitt að enginn
tæki líf sitt frá sér, hann legði það
sjálfur i sölurnar. En hver á að vera
okkar hlutur í hjálpræðisverki Guðs?
Hugleiðum það á þessari jólahátíð með
hjálp ritningarinnar. íhugum hvernig
við segjum „já" við Drottin, „ég vil þiggja
gjöf eilífs lífs úr hendi þinni."