Bjarmi - 01.12.1997, Side 29
Jesús Kristur
- Von dýrðarinnar
Eins og Jóhannes guðspjallamaður lýsir
jólaatburðunum miklu var Drottinn í
Jesú Kristi að koma til eignar sinnar en
hans eigin menn tóku ekki við honum.
En öllum, sem tóku við honum, gaf
hann rétt til að verða Guðs börn, þeim
er trúa á nafn hans og eru af Guði
fæddir. Þessara miklu atburða minn-
umst við á jólum, hátíðar ljóssins. Við
minnumst þess að „ljósið sanna sálum
manna“ kom, kemur og mun koma. Við
gleðjumst yfir því að fá að tilheyra
Drottni dýrðarinnar. Við fögnum í ljós-
inu hans og í þeirri staðreynd að við
fáum að tilheyra honum að
eilífu - við erum eilíf
eign hans. Eins og
segir í fyrra
J óhannesarbréfi
þá er fyrir
Jesú Krist
myrkrið að
hverfa og
hið sanna
ljós er þegar
farið að skína
og syndir
ljóssins barna
eru fyrirgefnar
fyrir sakir nafns
hans. Sannleikurinn
er sá að nafnið Jesús er
öllum nöfnum æðra því ekkert nafn
er annað til sem frelsar, aðeins nafnið
sem hann ber. Eins og segir í
Orðskviðunum: „Nafn Drottins er sterk-
ur tum, þangað hleypur hinn réttláti og
er þar óhultur” (18.10). Hann birtist til
að taka burt syndir og bijóta niður verk
óvinar Guðs. Hann er leyndardómur
Guðs og í honum eru allir fjársjóðir
spekinnar og þekkingarinnar fólgnir.
Hann er von dýrðarinnar (Kól. 1:27).
Hann sem sagðist vera kominn til að
varpa eldi á jörðu (Lúk. 12:49) og óskaði
þess að hann væri þegar kveiktur. Vita
skulum við að hann mun opinberast af
himni með englum máttar síns. Hann
mun koma í logandi eldi (II. Þess. 1:7-8).
Mætti hann kveikja í okkur þennan
heilaga eld og kveikja hann í hjörtum
allra íslendinga svo að við mættum að
sönnu vera ljóssins og kærleikans þjóð,
nú um þessi jól og alla tima.
Jesús Kristur - Höfundur
og fullkomnari trúarinnar
Biðjum góðan Guð að gefa okkur visku.
Við þörfnumst hennar á þessum tímum
sem við nú lifum: Þar sem fréttir af
hernaði og ófriði berast okkur reglulega;
þar sem lögleysi í ýmsum myndum
hefur magnast víða um heim þannig að
kærleikur margra virðist hafa kólnað; á
tímum þar sem þjóðir rísa gegn þjóðum
og ríki gegn ríkjum; þar sem fréttir ber-
ast reglulega af landskjálftum og hungri
á ýmsum stöðum; á tímum þar sem
fagnaðarerindið um ríkið hefur líklega
verið predikað um mestalla heimsbyggð-
ina öllum þjóðum til vitnisburðar. Bein-
um sjónum okkar án afláts til
Drottins Jesú Krists,
höfundar og full-
komnara trúar-
innar. Verum
vör um okkur
og gætum
að okkur
sjálfum, að
kærleikur
okkar kólni
ekki - að
olíuna á
k æ r 1 e i k s -
eldinn vanti
ekki. Biðjum
heilagan Guð að fylla
okkur stöðuglega
heilögum anda sem er ljós af
hans ljósi, kærleikur af hans kærleika,
þá mun hjartað reiðubúið þegar
Drottinn kemur. Munum orð Salómons:
„Varðveit hjarta þitt framar öllu öðru,
því að þar eru uppsprettur lífsins“
(Orðskv. 4:23). Biðjum Drottin um að
styrkja hjörtu okkar, hugi og sálir svo
við megum réttilega lofa hann og elska
og þrá það eitt að vera verkfæri vilja
hans. Vörpum allri áhyggju okkar á
hann því hann ber umhyggju fyrir
okkur hverju og einu. Öll höfum við
okkar verk sem hann hefur áður fyrir-
búið að við legðum stund á. Verum trú-
fastir verkamenn í víngarði hans - nú
um þessi jól og alla tíma. Leggjum okkur
öll fram við að „endumæra hjörtu hinna
heilögu", eins og Páll segir Fílemon hafa
gert (Fil. 1:7). Biðjum algóðan Guð að
gefa okkur enn meiri kærleika hveiju til
annars á þessari helgu jólahátíð sem
framundan er. Verum óþreytandi að
biðja hvert fyrir öðm, að lyfta hvert öðm
upp fram fyrir Drottin í heilögum kær-
leika, sönnum velvilja og einlægri von
um að við megum hvert og eitt vera
álitin af Guði makleg köllunarínnar (sbr.
II. Þess. 1:11). Biðjum þess að hann
megi fullkomna allt hið góða, sem hann
hefur þegar hafið í okkur, svo að nafn
Jesú verði dýrðlegt í okkur fyrir náð
Guðs vors og Drottins Jesú Krists. Biðj-
um þess að hann megi færa kærleika,
frið og gleði inn í allt samfélag trúaðra.
Biðjum fyrir öllum Guðs börnum um
víða veröld og fyrir heilagri kirkju hans.
Munum að Kristur hefur kraftinn til að
leggja allt undir sig (Fil. 3:21).
Jesús Kristur - Hinn sanni
fögnuður jólahátíðarinnar
Við verðum inn i Guðs ríki að ganga í
gegnum margar þrengingar eins og Páll
áréttaði á sínum tíma (Post. 14:22).
Þess vegna er svo mikilvægt að biðja
Drottin stöðuglega um að við megum
vera staðföst í trúnni og bæninni, lestri
Guðs orðs og tilbeiðslunni svo að við
séum rótföst i Kristi Jesú. Einkenni
þessa er trú sem starfar í kærleika. Ég
bið þess því, eins og Páll forðum, að
elska okkar allra, hvers og eins, megi
aukast enn þá meir og meir að þekk-
ingu og allri dómgreind svo að við get-
um metið þá hluti rétt sem máli skipta
og séum hrein og ámælislaus til dags
Krists, auðug að réttlætis ávexti þeim er
fæst fyrir Jesú Krist til dýrðar og lofs
Guði. Megi jólahátíðin verða okkur sönn
gleðihátíð og megi hún jafnframt vera
okkar kyrrðardagar þar sem við gefumst
Guði enn á ný, endumýjum heit okkar
við hann, tökum daglega okkar kross
án þess að mögla og fylgjum honum
hvert sem hann vill. Megi jólin einnig
verða okkur sönn friðarjól þar sem við
fyllumst af friði hans. Mættum við einn-
ig verða sannir friðflytjendur, þ.e. færa
þennan dýrmæta frið til annarra þannig
að hinn sanni fögnuður jólahátíðar-
innar, Jesús Kristur, megi fá rúm í
hjörtum sem allra flestra. Góður Guð
gefl okkur til þessa náð sína.
Mynd: Gömul mosaíkmynd frá 11. öld.
Hún er í grísku klaustri og sýnir Krist hinn
alvalda (pantokrator).