Bjarmi - 01.03.1998, Blaðsíða 31
Spurt og svarað
Lesendum Bjarma gefst nú tækifæri til að senda blaðinu spurningar um trúmál. Oft
brjótum við heilann um ýmis atriði sem varða kristna trú, Biblíuna og boðskap hennar
eða önnur trúarleg málefni. Dr. Sigurbjöm Einarsson biskup hefur nú tekið að sér að svara
spumingum lesenda Bjarma frá og með næsta tölublaði. Lesendur em þvi hvattir til að senda
blaðinu spumingar sem þeir vilja fá svarað á síðum blaðsins. Bréfln skulu merkt:
Bjarmi, tímarit
„Spurt og svarað"
Pósthólf 4060
124 Reykjavik
Til lesenda Bjarma
Með þessu tölublaði Bjarma hefst
enn einn árgangur blaðsins. Blaðið
hefur nú komið út í yfir 90 ár. Miklar
breytingar hafa orðið á blaðinu á þessum
langa tima enda eðlilegt þar sem tímamir
breytast og jafnframt kröfurnar sem
gerðar eru til tímarita. Þær breytingar
sem gerðar hafa verið á undanförnum
misserum hafa almennt fallið í góðan
jarðveg þótt auðvitað séu skiptar
skoðanir um sumt meðal lesenda
blaðsins. Það er þó gleðilegt að yngra fólk
hefur lýst ánægju með blaðið og gefur
það vonir um að unnt verði að fjölga
áskrifendum á komandi ámm. Markmið
ritnefndar hefur verið að höfða til stærri
og breiðari hóps og taka þátt í umræðum
um mál sem em í brennidepli á hveijum
tíma og hafa þannig áhrif.
Á síðasta ári hætti Henning E.
Magnússon i ritnefnd Bjarma. Em hon-
um færðar þakkir fyrir fórnfúst starf í
þágu blaðsins. Ritnefnd Bjarma skipa nú
Guðmundur Karl Brynjarsson og Kjartan
Jónsson auk ritstjóra.
Áskrifendur Bjarma em enn of fáir til
að fjárhag blaðsins sé borgið. Núverandi
áskrifendur eru því hvattir til að taka
höndum saman og kynna blaðið fyrir
vinum og kunningjum og afla því fleiri
áskrifenda.
Árgjaldið fyrir árið 1998 verður kr.
2.800 og verður það innheimt með
gíróseðli á næstunni. Áskrifendur sem
nota greiðslukort eru þó hvattir til að
hafa samband við afgreiðslu blaðsins í
síma 588 8899 og gefa heimild til að inn-
heimta árgjaldið á þann hátt þar sem það
er ódýrari innheimtumáti. Þeir sem kjósa
að greiða með greiðslukorti geta einnig
skipt greiðslunni í tvennt ef þeir vilja og
greitt helminginn núna og afganginn í
haust. Skilvísum áskrifendum eru hér
með færðar þakkir og þeir sem enn
skulda árgjald síðasta árs eru hvattir til
að gera skil hið fýrsta.
Það er von þeirra sem standa að útgáfu
Bjarma að blaðið geti um ókomin ár verið
öflugt kristilegt tímarit og boðberi
fagnaðarerindisins um Jesú Krist.
GJG
Vertu áskrifandi að Bjarma!
Áskriftarverð kr. 2.800,-
Nafn:
Kennitala:
Heimilisfang:
Póstnr. og staður:
] Vinsamlegast skuldfæriö Kortanúmer: [
á greiðslukort mitt
Vinsamlegast innheimfið með gíróseðli 1 .......
Kristllegt tfmarlt
Póstfang: Bjarmi - kristllegt tímarlt
Pósthólf4060 124Reykjavík