Heima er bezt


Heima er bezt - 01.06.1953, Blaðsíða 3

Heima er bezt - 01.06.1953, Blaðsíða 3
Nr. 6 163 Heima er bezt Sauðlauksdalur og Sauðlauksdalsprestar EFTIR SIGURÐ ÁRNASON i. Kanpstaðurinn Vatneyri og Geirseýri blasa við. Einnig sést vel niður í báða dalina, Kvíg- yndisdal og Sauðlauksdal, því að hálsinn er mjór að ofan og eggmyndaður. Dálítið óvanaleg sjón er að líta héðan, þar sem er hin gljáandi breiða skeljasandsins í Sauð- lauksdal, sem liggur óslitin yfir allan neðri hluta dalsins og upp í hlíðarnar beggja megin. Þarna er ekkert, sem truflar tilbreyt- ingarleysi þessarar sandauðnar, nema stauraröð símalínunnar, sem liggur þvert yfir dalinn. Þegar upp á hálsinn kemur er aðallega grjóturð yfir að fara, með einstöku grastó á milli. Um margt var rætt á leiðinni. Margt skoðað og víða numið staðar. Þarna benti félagi minn mér á rústir af gamalli tófugildru, sem þar er á háhálsinum, skammt frá veginum. Ég hafði aldrei séð tófugildru, og langaði til að skoða þessa rúst. Gengum við því þangað. Gildran hafði litið út eins og grjóthrúga að utan, en gegnum hana var þröngur gangur opinn í báða enda. Gangur þessi var á að gizka um 2 y2 metri að lengd, og fyrir annan enda gangsins var velt stórum steini, sem taka átti frá, þegar agnið var látið í gildruna og dýrið tekið úr henni. Inn í þennan gang var svo ætl- azt til að tæfa færi. En til þess, að svo mætti verða, var látið ýmiss konar góðgæti í enda gangsins rétt fyrir innan stein- inn. Helzt var til þess valið hrossakjöt eða annað, sem gaf frá sér ginnandi lykt. Nú kom tæfa. Var hungruð. Fann lyktina, og var þá ekki að sökum að spyrja. Hún tróð sér af öllum mætti jnn ganginn alla leið til að ná í þetta hnossgæti. En þegar veizlunni var lokið og hugsað til útferðar, gat hún naumast hreyft sig, og ekki með nokkru móti snúið sér við til út- göngu. Og þetta reyndi hún fyrst með hægð, en síðan hrædd með ofsafengnum æðisgangi. En árangurslaust. Og geta má nærri, hvílíkur ótti og skelfing muni hafa gripið þetta vesalings ó- tamda dýr, þegar það svo heyrði til manna og fann á sér, hvað það mundi eiga í vændum. Þegar við vorum komin þang- að á hálsinn, sem halla tók nið- ur í Sauðlauksdalinn, beindist Sigurbur heitinn Arnason var einn af ibessum fróbleiksfúsu alþýðu- mönnum, sem nota hverja frístund j til að sökkva sér niður í líf og háttu libLnna kynslóða. Þetta er kafli úr ' ferbasögu hans til æskustöbvanna eftir 45 ára burtveru. talið að þeim merka stað. Og sagði ég þá eitthvað á þá leið, að þeir í Sauðlauksdalssókn mættu vera skaparanum þakk- látir fyrir það, hve góðir prest- ar hefðu setið þar, að minnsta kosti allt frá tíð séra Björns Halldórssonar. Gamli maðurinn, sem var með mér, brást nokkuð önugur við og sagði: „Heldur þú, að séra Björn hafi verið nokkur merkismaður? Bölvaður kúgarinn sá!“ Þetta svar kom nokkuð flatt upp á mig. Ég minntist ekki að hafa heyrt það um séra Björn, að hann hefði sýnt neinn yfir- gang eða „kúgun“, eins og hann orðaði það. Og það lét ég í ljós. „Manstu ekki eftir „Rang- láti“?“ spurði hann. Þegar ég hugsaði mig betur um, mundi ég eftir grjótgarðs- leifum fyrir utan túnið í Sauð- lauksdal, sem kallaður var Ranglátur. En af því að ég mundi ekki sögu hans vel, lang- aði mig til að heyra hana. Og læt ég hana hér fylgja í frásögn Jóns. „Eins og þú manst, er mikið sandfok á nokkrum hluta túns- ins í Sauðlauksdal og mörg dags- verk á hverju vori að moka sand- inum saman og koma honum í burtu, svo að þar vaxi gras til sláttar. Þetta hafði gengið þann- ig frá ómunatíð. En þá var það, að þegar þeir voru hér, séra Björn og Eggert Ólafsson, kom þeim til hugar, að bæta mætti úr þessu með því að hlaða háan garð sjávarmegin við túnið, þaðan sem sandfokið kom. Og þá var það, að þeir skylduðu bændurna í sókninni til að hlaða þarna háan grjótgarð, endur- gjaldslaust, um hábjargræðis- tímann. Bændur voru í veriWið útræði og fannst súrt í broti að ganga frá skipum sínum til garðhleðslunnar. Samt urðu þeir að hlýða, því að lögmaður hótaði þeim ella öllu illu. Nú var hár og langur garður hlaðinn þarna, með miklum erf- iðismunum, því að flytja varð grjótið nokkuð langan veg að. Ekki minnkaðji sa'ndfokið á túnið við þetta, öllu fremur jókst það, því að fyrir innan garðinn komu svo stórir skaflar af sandi, að örðugt var að moka þeim í burtu. Næsta vor vildi prestur skylda bændurna til að rífa garðinn niður aftur. En nú dugðu hvorki hótanir né fagurmæli. Þeir þverneituðu að snerta frekar við garðinum. Varð því prestur að láta rífa hann, sem þó aldrei varð nema að nokkru leyti. „Og var Eggert virkilega að blanda sér inn í þetta mál með presti?“ spurði ég. „Já, ég held nú það. Bölvaður stoltagikkurinn sá!“ Mig langaði nú til að vita, hvað hann hefði fyrir sér í því, að Eggert hefði verið svo stolt- ur maður, þótt ég hefði heyrt eitthvað um hann, sem benti i þá átt. „Já, hann var mesti stolta-

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.