Heima er bezt


Heima er bezt - 01.06.1953, Blaðsíða 24

Heima er bezt - 01.06.1953, Blaðsíða 24
184 Heíma er bezt Nr. 6 VISNAÞATTUR Ur vísnasafni Sigurðar Jónssonar frá Haukagili Vorvísur. Vonin fumar að því ein á sem lumir sálin, að opnist brum á ungri grein eftir sumarmálin. Fanna dróma hjaðni hjóm hlíðarblómin fæðist, vorsins hljómar auki óm, allt í ljóma klæðist. Hugann mikið þyngir þá þokuryk og vafi vor ef hikar vetri frá viðsjár blika í hafi. Koma þrestir, langþreytt lið lágum sezt hjá meiðum, heillagestir hafa bið hér á vesturleiðum. Fögur veitir fyrirheit fljótt mun breyting verða. Gæsasveit í landaleit lúður þeytir ferða. Fuglinn bjó við fagran skóg, flýgur þó að vanda út að snjó í yztu kró Eskimóa stranda. Fim þar syndir háloftshind, hefir vind um kinnar, brimar yndis unn um tind oddamyndar sinnar. Skýja-hranna skrifað. blað skýrir sanninn betri þeim sem kann að kveða að klósiganna letri. Norðri sáttur læðist lágt leiks af þátta sviði, sunnanáttin setur hátt sína máttarviði. Frosta völdin felld i grunn fegin öld má skoða sumartjöld frá árdags unn út að kvöldsins roða Stikar klaka storkuspor strauma vakið gaman, fuglar kvaka von og vor, vögnum aka saman. Söngva hvatning fuglar fá (fannir sjatna á heiðum), hafa natnar njósnir á norður vatna leiðum. Hugann þindur hljómsins Iind, hátt við tindinn flýgur svana yndis engilmynd, upp í vindinn stígui. Fram á hreiðurhólmann þinn hugann seiðir þráin, frjálsar leiðir fuglinn minn fljúgðu heiðan bláinn. Heklubáls við storku stáls stýrðu frjálsum önnum, sveigðu hálsinn svana máls silungs-áls á hrönnum. Lífsins kliður eykur önn elfar nið og flauminn. Jökulsskriðu hnígur hrönn hægt í iðustrauminn. Veizlur standa vors í lund, vonir andann draga Atlanz handan yfir sund allra stranda Braga. Ströndum skóga fangin frá flýgur ióa af hafi þegar móinn örlar á upp úr snjóa kafi. Kveður gaukur ösp og eik út við laukavelli, til að auka ástaleik undir haukafelli. Hungursveltu hjaðna ský, hjörð úr meltu dalsins gróður eltir grænan í grasakeltu fjallsins. Vakið frjó í 'röðul ró réttir mjóa fingur, vori þó er um og ó unz að spóinn syngur. Hljómar gjalla hafs og lands, hverfur allur vafi þegar bjallan hringir hans hretin falla í stafi. Söngva prýði fjarru frá frónskar hlíðar draga, vetrar kvíðann andai á unun blíðudaga. Hlákan flytur þýðan þyt, þánar fit og veita, yfir titrar týbrárglit töfra litum sveita. Konan svitnar klaka falds, kinnin hitnar mjúka, tuskur slitnar vetrarvalds veðurbitnar fjúka. Vaka kvæði blika blöð bjarma hæða ljósum. Taka flæðibakkar böð, barma klæða rósum. Dagsins blíðu daggar skúr dofnar þýðir rætur. Vetrar hýði allir úr ormar skríða á fætur. Þá sem fanga þjakar lás, þreyta langar stundir, leyfð er ganga burt af bás, bjartar anga grundir. Nægta fóðurs gróa grös, glansa rjóðar kinnar. Kjarna flóði fyllir glös fóstra þjóðarinnar. Beita sundi brims frá strönd, bröttum dunda í giljum, ástum bundin bliki og önd, bleikjan undir hyljum. Rjúpan neitar Ijósum lit líkt og beitar tóin, hauksins þreytir veiðivit villuleit um móinn. Hjörðin valin unir yl ofar dala flæði, þar sem smalinn telgir til tímadvalar kvæði. Lambið fráa kemst á kreik, kiðin smáu bröita full af þrá í frjálsum leik folöld hjá þar tölta. Yfir stokka, steina, dý, starar dokk og meiða allra lokka litum í lötra, brokka, skeiða. Þorna tár um barna brár, bjartar spár þau dreyma. Þulur hár og húðarklár heltisárum gleyma. Sólargangan hækkar hring, hljómar fanga dalsins. Vorsins angar umbreyting undir vanga fjallsins. Vökvatær á vogum hlær, vetrar snærinn flúni. Fjólu hrærir friðar blær. Fífill grær í túni. Flest er kátt um lög og láð leiðir sátta runnar, mýkstu háttum hefur náð harpa náttúrunnar.

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.