Heima er bezt


Heima er bezt - 01.06.1953, Side 7

Heima er bezt - 01.06.1953, Side 7
Nr. 6 Heima er bezt 167 „Ranglátur“ sr. fíjörns Halldórssonar er hruninn og sandur heflar rústirnar. í Sauðlauksdal á þeim árum er hið sorglega Sjöundármál var á döfinni. Hann fékk nokkurt á- mæli af afskiptum, eða öllu heldur afskiptaleysi sínu af því máli, þar sem honum var brugð- ið um, að hann hefði ekki gætt skyldu sinnar i því, að það væri tekið fyrir, og jafnvel hindrað rannsókn. En gæta verður þess, að sóknarbörn hans áttu í hlut, sem honum, vegna stöðu sinnar, hefur fundizt hann þurfa að vernda, og þar sem maðurinn var að upplagi mildur í lund, og tók létt á yfirsjónum annara, mun hann hafa aumkast yfir þessar ólánssömu persónur. Hann var líka orðinn gamall maður, En ég held, að hin milda skapgerð hans hafi hér mestu um ráðið. En víst er um það, að séra Jón hefur notið mikillar virðingar og trausts hjá háum sem lág- um, sem marka má af því, að þrátt fyrir þetta, fékk hann að halda prestskap og prófasts- embætti. Það er sagt, að séra Jón hafi verið þjóðskáld á latínuskáld- skap. En ekki er gott að vita hvað meint er með því. Sá skáldskapur fyrritíðarmanna hefur aldrei verið almennings- eign, til þess skildu hann of fáir. En sálmar séra Jóns þóttu góðir. Og sálmur hans „Þér einum braut ég móti mest“, no. 144 í sálmabókinni frá 1859, og mikið var sunginn í mínu ungdæmi, mun vera einhver sannasti iðr- unarsálmur, sem til er á ís- lenzkri tungu. ★ Séra Gísli Ólafsson, sem prestur varð í Sauðlauksdal eft- ir séra Jón Ormsson, er fæddur 1777. Faðir hans, Ólafur Ólafs- son og móðir Guðrún Einars- dóttir, er sagt að hafi verið mjög fátæk. En Gísli var ungur tekinn til fósturs af séra Bene- dikt Pálssyni presti að Stað á Reykjanesi, sem kom honum í Hólaskóla 18 ára gömlum. Gísli útskrifaðist árið 1800. Hann varð síðan aðstoðarprestur hjá fósturföður sínum, séra Bene- dikt. Og Espolín segir, að á Stað hafi hann kvænzt konu þeirri, er Ingveldur hét Magnúsdóttir, og eignazt með henni einn son, Ólaf að nafni. En Sighvatur G. Borgfirðingur dregur þetta í efa og segist hvergi hafa fund- ið sannanir fyrir því. 4 ár var hann aðstoðarprestur hjá séra Sæmundi Hólm. Að Sauðlauksdal kom séra Gísli 1820 með konu sinni Sig- ríði Magnúsdóttur að nafni og 5 börnum þeirra. Prestur var hann í Sauðlauksdal 32 ár. Dó 1861, 84 ára að aldri, og hafði þá alls verið prestur í 59 ár. Hann eignaðist 16 eða 17 börn. Sighvatur G. B. lýsir séra Gísla þannig: „Gáfaður vel og lipur prédikari, snotur í öllum prestsverkum, hraustur að afli, góður skrifari, hagorður og hef- ur ort tvenna vikusálma. Lítt stilltur í allri hegðun, þess vegna ekki vel þokkaður. Blakk- ur á hörund og ekki fríður sýn- um. Fjáður vel.“ Það má víst með sanni segja, að séra Gísli hafi verið fjáður vel. Og það heyrði ég um hann sagt, að hann sæti staðinn með mestu prýði. Eg hef séð skýrslu, með hans eigin hendi, yfir heim- anmund þann, er hann lét fylgja dætrum sínum, þegar þær giftu sig eða fóru að heim- an. Hann átti, eins og áður er sagt, mörg og mannvænleg börn. Kom hann einum syni sínum til mennta, en 3 kostaði hann til iðnnáms erlendis. í skýrslu þeirri, sem áður er getið, eru líka tilfærðir peningar þeir, er hann lét hvern sona sinna fá til siglingar, og er þetta saman- lagt æði mikil upphæð. Sagt er líka, að séra Gísli hafi verið öflug stoð og styrkur sveitunga sinna, og hverjum manni ráðhollari. Fyrir yfir- gangi og í málaferlum var hann örugg stoð allra lítilmagna, og rétti eftir megni hlut þeirra. Um ósamlyndi og málaferli hans og séra Sæmundar Hólm, ganga miklar sögur. En allar þær, sem ég hef heyrt, eru séra Gísla i vil. Mál það hið mikla og illræmda, sem nefnt hefur ver-

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.