Heima er bezt


Heima er bezt - 01.06.1953, Blaðsíða 22

Heima er bezt - 01.06.1953, Blaðsíða 22
182 Heima er bezt Nr. 6 Friðjón Stefánsson: Loðmundarfjörður Norðan við Seyðisfjörð gengur stuttur fjörð- ur inn í landið, sem heitir Loðmundarfjörður, og ber sveitin umhverfis hann sama nafn. Þetta er undrafögur sveit, og það svo mjög, að ekki mun þeim úr minni líða, sem hana hafa augum litið um lengri eða skemmri tíma. Inn af fjarðarbotninum gengur láglendi nokkuð, nánast allbreiður dalur og fer mjókkandi inn að hálendinu, sem rís upp á milli Loðmundar- fjarðarsveitar og Fljótsdalshéraðs. Sunnan fjarðarins er nær eingöngu brattlendi, en norðan megin er undirlendi nokkurt. Sveit þessi er grösug mjög og land kjarngott fyrir búpening. Eigi alls fyrir löngu voru 10 bæir í byggð í Loðmundarfjarðarhreppi. Nú er aðeins búið á 5, og mun Loð- mundarfjarðarhreppur vera fá- mennasti hreppur landsins. Það sem háir þessari fögru og annars búsældarlegu sveit er samgönguleysið og hafnleysið. Fjörðurinn, svo stuttur sem hann er, liggur opinn fyrir öld- um Atlantshafsins og afdrep engin teljandi. Ehda er algengt, að þarna sé vikum saman ekki lendandi, sökum brims. Loðmfirðingar hafa lengst af haft aðalviðskipti sín við Seyðis- fjörð. Heitir Hiálmardalsheiði leið sú, sem jafnan er farin yfir fjallgarðinn milli fjarðanna, og er fjögra til fimm tíma gangur. Annars munu aðdrættir á og margt annað. Þetta em heil ósköp. Það er lifandi og( hugs- andi þjóð, sem kemur þessu í verk og ógrynni annarra menn- ingarstarfa, auk stritsins fyrir lífi sínu. Þessi verk eru vitan- lega firna misjöfn að gæðum, sum ómerkileg, önnur snilldar- leg og svo allt þar á mili. En allt þetta hélt sálarlífinu í þjóðinni um langar óaldir kúgunar og fátæktar. Það væri saga til næstu kynslóðar og næsta lands ef við kynnum ekki að meta þenna arf. Við eigum að virða þessa menningu og haga nútíð- armenntum okkar í samræmi við það bezta af því eldra — eftir listarinnar reglum. Sveinbjörn Benteinsson Draghálsi. þungavöru yfirleitt hafa verið gerðir sjóleiðis. En volksamt hef- ur oft verið í slíkum aðdráttar- ferðum. Hlunnindi eru nokkur tilheyr- andi þeim tveimur bæjum, sem standa fyrir botni fjarðarins, sem sé æðarvarp og nokkur reki. Þá er og lítils háttar silungsveiði í á þeirri, sem rennur fram sveit- ina og fellur í botn fjarðarins. Hins vegar hefur fiskisæld aldrei verið mikil í firðinum sjálfum. Bendir og til þess vísa eftir Pál Ólafsson skáld, en hann bjó um skeið á Nesi í Loðmundarfirði og samdi ekki nema miðlungi vel við suma sveitunga sína. Vísan er svona: Það er enga þorska að fá í þessum firði. Þurru landi eru þeir á og einskis virði. Vil ég nú til þess að gefa lítið eitt gleggri lýsingu á þessari fá- mennu sveit, geta hvers býlis hennar með nokkrum orðum. Sunnan megin fjarðarins er nú ænginn bær í byggð. Þar var einu sinni býlið Hjálmarsströnd, en fór í eyði fyrir síðustu alda- mót. Sævarendi heitir bærinn fyrir botni fjarðarins sunnan- verðum. Þar er nú nýlegt stein- steypt íbúðarhús. Er þetta talin góð bújörð, enda tilheyra henni hlunnindi eins og áður er á minnst. Upp frá Sævarenda ligg- Frá Loðmundarfirði. ur leiðin yfir Hjálmardalsheiði til Seyðisfjarðar. Talsvert innar í sveitinni, sunnan árinnar, stóð bærinn Árnastaðir, sem nú er I eyði. Innsti bærinn og norðan árinnar er Bárðarstaðir. Hann fór í eyði fyrir þremur til fjór- um árjrm. íbúðarhúsið, sem er allreisulegt- timburhús, stendur þó enn. Bárðarstaðir er góð hey- skaparjörð eins og raunar flest- ar hinar jarðir sveitarinnar. Þaðan liggur leiðin yfir Tó, en svo nefnist fjallvegur, sem oft er farinn milli Loðmundarfjarðar og Héraðs. Næsti bær utan við Bárðarstaði er Úlfsstaðir og er hann enn í byggð. Þar er svo sem á Sævarenda nýtt steinsteypt í- búðarhús. Þar næst kemur kirkjustaðurinn, Klippstaður. — Þar var og lengi vel prestssetur og Loðmundarfjarðarsveit ásamt Húsavík (það er lítil vík norðan við Loðmundarfjörð) sérstök kirkjusókn. Mun þá Húsavík, en þar er kirkja, og lengst af verið þar tveir eða þrír bæir í byggð, verið annexía undir Klippstað. Á kaþólskum tíma voru bænahús fleira en eitt í sókninni, og er þá búsettur á Klippstað djákni, auk prestsins. Bendir það til þess, að á þeim tíma hafi trúarlíf eigi verið alllítið í þessari fámennu sveit. Á ofanverðri síðustu öld var hins vegar Loðmundarfjarð- arkirkjusókn gerð að annexíu undir Dvergastein í Seyðisfirði. Síðasti prestur sem sat á Klipp- stað, var séra Finnur Jónsson,

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.