Heima er bezt


Heima er bezt - 01.06.1953, Qupperneq 23

Heima er bezt - 01.06.1953, Qupperneq 23
Nr. 6 Heima er bezt 183 afi séra Jakobs Jónssonar og Ey- steins Jónssonar ráðherra. Næst við Klippstað er höfuð- bólið Stakkahlíð og stendur fyrir botni fjarðarins norðanverðum. har býr núverandi hreppsstjóri, Stefán Baldvinsson, og á undan honum Baldvin heitinn Stefáns- son, sem einnig var hreppsstjóri Loðmfirðinga. Þar er stórt og reisulegt steinhús. Þrír bæir standa út með firð- inum norðanverðum, Seljamýri, Nes og Neshjáleiga. Nú er aðeins búið á einum þeirra, Nesi. Þar bjó Páll Ólafsson skáld um nokkur ár eins og áður segir. Áður fyrr var útræði frá sum- um bæjanna i Loðmundarfirði, enda þótt lendingarstaðir séu slæmir. Er þar beztur árósinn fyrir botni fjarðarins, en verður þó oft ófær. Miðlending heita klappir við sjóinn niður undan bænum Neshjáleigu. Þar er upp- sátur fyrir Nesbæina (Nes og Neshjáleigu). Árið 1914 vildi það til að rostungur lagðist upp á þessar Miðlendingarklappir. Þá bjó á Nesi Stefán Þorsteinsson (faðir greinarhöfundar). Fór hann ásamt vinnumanni sínum, Hallgrími heitnum Árnasyni og bóndanum í Neshjáleigu, Árna Einarssyni, og tókst þeim að skjóta rostunginn. Er mér tjáð, að það muni vera í síðasta sinn, að rostungur hefur verið skot- inn hér á landi. Núverandi bændur í Loð- mundarfirði eru, þegar þetta er ritað: í Stakkahlíð Stefán Bald- vinsson, hreppstjóri, Sigurður sonur hans og Magnús Sigurðs- son, tengdasonur, og er þar því þríbýli; á Sævarenda Trausti Stefánsson (sonur Stefáns Bald- vinssonar; á Úlfsstöðum Jón Þorsteinsson; á Klippstað Einar Sölvason og Friðbergur Einars- son, sonur hans; á Nesi Baldur Einarsson (sonur Einars Sölva- sonar). Hversu lengi tekst enn að halda þessum fimm bæjum í byggð, mun framtíðin skera úr. En hverjum þeim, sem átt hefur heima í Loðmundarfirði, eða jafnvel aðeins komið þangað, hygg ég að finnist illa farið, ef svo fögur sveit leggst að fullu og öllu í eyði, þrátt fyrir núverandi Vo, Nú lifnar mengi, því lífsins gengi nú lyftir önd. Á silfurstrengi er leikið lengi með léttri hönd. Og vorsins yndi nú vermir lyndi og vonin býr í brjósti manna með blessun sanna svo bölið flýr. Þú vorsins gyðja villt alla styðja í verki og leik. Um grund og voga þú lætur loga á lífsins kveik. Og lyng og víðir nú lautir skrýðir þar leikur blær og blómin anga um brekkuvanga og balinn grær. Nú elfur freyða — þær úr sér breiða og ymja hátt, og lindir fríðar um leiti’ og hlíðar sér leika dátt. / Nú endur vaka og álftir kvaka í auðnarkyrrð. Og eyru greina þá óma hreina úr órafirð. Við þrastaóðinn og lóuljóðin í lundi og mó er Ijúft að dreyma um dýrðarheima í djúpri ró. Nú sólin ljómar og söngur hljómar um sumardag, og list og blíða og lotning prýða því lífsins brag. Jórunn Ólafsdóttir Sörlastöðum. einangrun hennar og samgöngu- erfiðleika. Og hver veit nema eitthvað hvað það sé óskeð, sem verður þess valdandi, að Loðmundar- fjarðarsveit verði í byggð um aldur og æfi. Slóttugur biskup Einu sinni var biskup, sem var ókvæntur. Ungu stúlkurnar höfðu því eðlilega augastað á honum, þar sem hann var bæði ungur og föngulegur. Ein þeirra, sem var mjög hrifin af honum, heimsótti hann eitt sinn. Hún var ákaflega hátiðleg á svipinn og ekki laus við að vera feimin. Það var auðséð að hún var kom- in í einhverjum þýðingarmikl- um erindagerðum. Hinn kurteisi og góðviljaði kirkjuhöfðingi tók henni ákaflega ljúfmannlega, eins og honum var eðlilegt, en þó ekki laus við að vera dálítið kíminn. Hann bað stúlkuna að vera einlæga, eins og hún væri skriftabarn hans. Smám saman veiddi hann upp úr henni, að hana hefði dreymt undarlegan draum, eða öllu heldur fengið opinberun, að því er hún hélt, af himnum ofan. Hafði það opin- berast henni, að æðri máttar- völd hefðu ákveðið að hún skyldi verða kona biskupsins. Biskup- inn átti sízt von á þessu, enda var hann staðráðinn í að kvæn- ast aldrei. Hann lét sér þó ekki bylt við verða, og sagði mjög vin- gjarnlega við stúlkuna, að þessi opinberun væri án efa ákaflega þýðingarmikil, en þó væri hún ekki fullkomin, með því að hún hefði ekki birzt nema öðru þeirra. Hann kvaðst því vilja bíða eftir því, að áþekk opinber- un birtist sér líka og ef það yrði, skyldi hann strax láta hana vita það. -o- Ekkert alvarlegt Maður nokkur kom inn í bóka- búð og bað um einhverja skemmtilega bók. „Konan mín er veik, og ég þarf að fá eitthvað gott handa henni að lesa.“ „Er hún mikið veik?“ spurði búðarmaðurinn alvarlegur. „Já. Hún verður víst að liggja nokkuð lengi.“ „Vilduð þér þá kannske eitt- hvað trúarlegs efnis?“ Maðurinn ók sér og mælti: „O-nei, ég held það sé nú ekki svo alvarlegt.“

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.