Heima er bezt - 01.01.1954, Blaðsíða 17

Heima er bezt - 01.01.1954, Blaðsíða 17
Nr. 1 Heima er bezt 13 asti bletturinn á kristinni kirkju. Galdrabrennurnar fóru eins og logi yfir akur um alla Evrópu á seytjándu öldinni. Galdratrúin var ekki ein- göngu bundin við alþýðuna, sem á þessum tíma var lítið upp- frædd, heldur náði hún jafnvel enn meiri tökum á menntuðu stéttunum. Og galdramennirnir létu sér ekki nægja að ráðast á einstaklinga, heldur lögðu þeir til atlögu við her og stjórnendur þjóðanna. Þrívegis var hinn dansk-norski stríðsfloti stöðvað- ur af galdranornum. Árið 1566 sukku 10 skip úr flotanum með allri áhöfn, og að sjálfsögðu var galdrakonum um kennt. Þær voru auðvitað brenndar. Eftir að galdraæðið var liðið hjá, er eins og mannkynið hafi varpað léttar öndinni. Farg hel- vítiskenningarinnar varð smám saman léttara, og missti loks tökin, að mestu, á öldinni sem leið. En alltaf öðru hverju komu nýir trúflokkar, sem tókst að blása nýju lífi í þessa kenningu um stundarsakir. En nú lýstu menn eilífum kvölum Helvítis á nokkuð annan hátt en áður. Nú voru syndararnir ekki lengur klipnir með glóandi töngum, heldur var framhald lífsins til- vera í synd, þar sem refsingin lá í, að sálin var fjarlægð frá aug- liti guðs. Það er erfitt fyrir nútíma- manninn, að skilja þá þýðingu, sem helvítistrúin hafði fyrir fólk fyrri tíma. Þá er kristin- dómurinn sigraði yfir heiðnum trúarbrögðum, fóru gömlu goðin beina leið til Helvítis og héldu áfram að lifa þár, sem árar og púkar. Þessi trú sézt víða í ís- lenzkum fornritum. En fyrir þann tíma var orðið þéttbýlt á neðri stöðum, því að Lúcifer og allir englar hans voru þar fyrir. í Biblíunni sjálfri er margt, sem ímyndunaraflið getur aus- ið af. Má þar nefna Opinberun- arbók Jóhannesar, sem, eins og nú er vitað, á ekkert skylt við Jó- hannes postula. Hið óhugnan- lega, myndríka mál á spádóm- um hennar, talaði til ímyndun- arinnar. Auk þess trúðu menn þá, að dómsdagur væri í nánd. Skáldin sóttu yrkisefni sín í þessi rit. Dante og Milton voru meðal þeirra frægustu. Rit þeirra höfðu sterk áhrif á hugmyndir fólksins. Eftir þá komu minni skáld og spámenn, sem útmáluðu lýsingar þeirra í smáatriðum. Já, það var meira að segja reiknað út vísindalega af þýzkum guð- fræðingi, að tala smádjöflanna væri 2 triljónir, 665 billjónir, 866 milljónir, 746 þúsund og 664! í samanburði við þetta verða árar Miltons í Paradísarmissi smá- ræði. Palladíus biskup sagði, að djöflarnir væri eins margir og sandkornin á Sjálandsströnd. Það var því eigi undarlegt, þótt kölski birtist víða og í allskonar myndum, enda var ára hans að finna í hverjum krók og kima. Myrkhræðslan fylgdi djöfla- trúnni eins og skuggi. Kirkju- garðar og aftökustaðir voru hættulegustu staðirnir. Víða eimir enn af þessari hjátrú. Af- tökustaðurinn minnti breyskar manneskjur stöðugt á synd og refsingu. Nú á dögum er erfitt að skilja, hvernig hægt var að koma Hel- víti fyrir, eins og raunverulegum stað í landfræðilegum skilningi. Það lá langt niðri í jörðinni. Allir hugsuðu sér það sem „þarna niðri“, eða „norður og niður“, eins og íslenzka máltækið segir. Hinsvegar var himinninn alltaf „þarna uppi“. Hann var saman- settur af sjö þrepum eða himn- um. Þar af kemur máltækið „að vera í sjöunda himni“. í Divina Comedia gefur Dante góða hugmynd um, hvernig fólk á hans dögum hugsaði sér Hel- víti. Lýsir hann því sem risavax- inni'trekt niðri í jörðinni. í hlið- um trektarinnar eru þrep, og á þessum þrepum dvelja hinir fordæmdu í hlutfalli við stærð synda sinna. En niðri á botni trektarinnar situr Lúcífer í hlekkjum, og í kjafti hans allra verstu syndararnir. Hreinsunar- eldurinn er gagnvart kvala- staðnum. Þá er kaþólska kirkjan varð að víkja með siðaskiptunum, breytt- ust viðhorfin til refsistaðarins að miklum mun. Nú fóru menn að leggja stund á stjörnuspá- dóma. Veraldleg og kirkjuleg lífsskoðun fóru saman í mörg- um atriðum. Vinur og samverka- maður Lúthers, Melankton, fékkst við stjörnuspádóma. Uppgötvun Kóperníkusar, að jörðin væri ekki miðpunktur al- heimsins, varð til þess, að við- horfin breyttust. Brúnó var brenndur á báli, af því að hann dró rökréttar afleiðingar af kenningum Kóperníkusar. Þann dag má segja, að hin gamla heimsskoðun hafi tekið síðustu krampateygj urnar. Vér, sem nú lifum, lítum öðru- vísi á þetta. En vér getum þó skilið, að það var í raun og veru ekki nema eðlilegt, að menn þeirra tíma vildu leggja allt í sölurnar til að verja heimsskoð- un sína, enda þótt aðferðirnar hafi verið aðrar en vér myndum kjósa. Hin nýja heimsmynd varð ekki eign almennings fyrr en eftir langan tíma, og er það ekki enn, því að vísindin eru stöðugt að bæta nýjum uppgötvunum við hana. Vegna þessa lifa helvítis- kenningarnar enn góðu lífi með- al sumra þjóða. En afleiðing vís- indarannsóknanna hefur orðið sú, að Helvíti er orðið að dauðra- heimi í kristnum trúarbrögðum, eins og Hades var í grísku goða- fræðinni.

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.