Heima er bezt - 01.03.1955, Qupperneq 2

Heima er bezt - 01.03.1955, Qupperneq 2
66 Heima er bezt Nr. 3 (wlbmH HEIMA ER BEZT . Heimilisblað með mjndum . Kemur út mánaðar- legra . Áskriftagjald kr. 67.00 . Útgefandi: Bókaútgáfan Norðri . Heimilisfang: blaðsins: Pósthólf 101 Rcykjavík . Prentsm. Edda h.f. i Abyrgðarmaður: Albert J. Finnbogason . Ritstjóri: Jón Björnsson . Efnisyfirlit Bls. 67 Einn á jaka norður í Dumbshaf, eftir Kristmund Bjarnason. — 69 Móðurminning, eftir Jón Skíða. — 71 Ást og hatur, eftir Olaf Gunnarsson. — 75 Þjóð í hátíðarskapi, eftir Jóhann Bjarnason. — 80 Knútsbylur, eftir Jórunni Ólafsd., Sörlastöðum. — 81 Bernskuminning, eftir Guðrúnu Auðunsdóttur. — 82 Blindur skáld, eftir Sveinbj. Beinteinsson. — 83 Lítið eitt af börnum Rögnvalds halta. — 89 Sniðugur þjófur. — 91 Maðurinn konunnar sinnar, smásaga eftir Huld. — 96 Myndasagan: Óli segir sjálfur frá. Skrítlur og margt feíra. F or sí ðumyndin VIÐEY Víða er fagurt 1 umhverfi Reykjavikur. Margir hafa lýst fegurð eyja og sunda í bundnu, sem ó- bundnu máli, og verður ekki nánar farið út í það hér. Af eyjunum er Viðey stærst og merkust. Þar var stórhöfðingj asetur lengi, og af þeim, er þar gerðu garðinn frægan, ber mest á þeim Ólafi Stephensen stiftamtmanni og syni hans, Magnúsi konferenz- ráði. Heimili Ólafs mun hafa verið mesta rausnar- heimili landsins kringum aldamótin 1800. Brezkur ferðalangur, Hooker að nafni, var hér á ferð 1809, ásamt Jörundi hundadagakóngi. Var hann boðinn til Ólafs stiftamtmanns í Viðey. Verða hér teknar nokkrar glepsur úr ferðabók hans um heimsókn þessa. Ásamt Hooker fóru þeir Jörundur og Phelps skipstjóri í heimboð stiftamtmanns. Hooker segir svo frá: „27. júní 1809. Þriðjudagur. Þessi dagur var ætl- aður til að heilsa upp á gamla stiftamtmanninn, Ólaf Stephensen, sem hefur geheimeetatsráðs nafn- bót og var áður landstjóri á ey þessari. Herra Phelps, herra Jörgensen og ég stigum á hádegi í ís- lenzkan siglingabát með átta manns undir árum. Það voru hérumbil fjórar mílur (enskar) þangað, sem stiftamtmaðurinn bjó, en það er á yndislegri eyju, sem heitir Viðey. Þegar við nálgúðumst eyna, sáum við húsið. Það stendur all-lágt milli tveggja hæða. Þegar allskammt var vegarins, leit það út sem mikið aðsetur, og var það stærra hús og að ytra áliti nokkru tígulegra en nokkurt annað hús, er ég hafði enn séð (á íslandi). Það er úr sement- límdum steini og fjalaþak á, og er með fjölmörgum glergluggum. Þegar við lentum og komum nær, sá- um við samt að hér var sorglegur skortur á tré- smiðum, múrurum og glermeisturum. Glerið í þeim gluggum, sem annars voru ennþá heilir, var eins og almennast gerist, en flestar rúðurnar voru brotn- ar, þó að það væri að utan breitt yfir það með tré- hlerum, svo að það sæist ekki. Útidyr voru á miðju húsinu. Það var ofboð lélegur súlnagangur úr tré og voru dyr út beggja vegna. Hefði súlnagangur þessi verið í betra standi, þá mátti hann vel vera til skjóls fyrir köldum vindum, en nú var hann svo hrörlegur, að hann er hvorki til gagns né prýði. Ég get ekki líkt súlnaganginum við annað en svína- stíu setta þarna við vegginn, heldur i hærra lagi. En þótt það væri ekki neitt meistarahandbragð á húsinu, þá bjó eigandi þar, sem tók oss svo vel og veitti oss svo frábærlega, að slíkt vekti traust á for- stjóra hvers lands, sem enn væri í embætti og því meira á þeim, er lagt hefði niður völdin." Af þessari lýsingu hins erlenda ferðamanns sézt, að þetta æðsta embættismannssetur á landinu hef- ur verið all-hrörlegt. Mun því frekar hafa valdið al- mennt hirðuleysi landans, heldur en efnaleysi hús- ráðenda. Húsið í Viðey og kirkjan eru hvorttveggja frá átjándu öld, og því merkar, þjóðlegar minjar. Síðan lýsir Hooker nákvæmlega viðtökunum hjá stiftamtmanni. Voru þær stórmannlegar og góður vottur hinnar íslenzku gestrisni, en hér fór nú svo, að nærri lá að gestirnir færust úr ofáti. „Fyrst feng- um við súpu,“ segir hann, og urðu þeir að borða tvo diska af henni. En á eftir súpunni voru bornir inn tveir miklir laxar, soðnir, með „brísméri“, ediki og pipar, „en það var samt gott, og rembdumst við við að klára af diskunum og vonuðum að alhuga, að þar með væri miðdegisverðinum lokið,“ en það var nú öðru nær, því að þá áttu þeir að borða tólf kríuegg með ídýfu, „höfðum við skál mikla með sykruðum rjóma, er sett var á mitt borð, voru fjórir spænir í og átum við allir úr sama fatinu.“ Þegar þeir kváð- ust ekki geta dorgað meiru, var ekki við það kom- andi, urðu þeir að dorga eggjunum og héldu þá að allt væri búið, en svo var ekki, því að nú var heilt sauðarkrof borið á borð og síðan brauð, kaffi og romm. Loks sluppu þeir, en voru all þrekaðir er þeir komu í land. Af frásögn hins enska ferðalangs er auðsætt, að vel var tekið á móti gestum á þessu merka höfð- ingjasetri. Viðey er einn af fegurstu og gróðursælustu blett- unum í nágrenni bæjarins. Þar eru merkar, þjóð- legar minjar, en ekki hefur þeim verið mjög mikill sómi sýndur, en til tals hefur komið, að bærinn keypti hana og gerði að skemmtistað bæjarbúa. Viðey gæti, sem skemmtistaður, hæglega keppt við samskonar staði annarra höfuðborga.

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.