Heima er bezt - 01.03.1955, Page 4

Heima er bezt - 01.03.1955, Page 4
68 Heima er bezt Nr. 3 enda er nú Vigfús fæddur. Árið 1844 fær hún vitnisburðinn: „Ekki merkileg í hegðun.“ Að honum mun hún svo hafa búið. Hinn fjórða sept. árið 1833 á Guðrún enn dreng, er hlýtur nafnið Jón. Illa gekk henni að feðra dreng þenna. Kenndi hún hann Bergþóri bónda Jónssyni á Sauðá í Borgarsveit, síðar á Veðramóti, en hann þrætti harð- lega fyrir. Kom það fyrir ekki, því að Guðrún sór á hann svein- inn. Barn kenndi hún og Hall- grími skáldi Jónssyni, er „lækn- ir“ var kallaður, en hann kom í Fannlaugarstaði. Sendi hún strangann til Gunnars hrepp- stjóra á Skíðastöðum og bað láta skíra. Þótti honum móðurinni kynlega fara, en lét þó gera það. Hallgrími var síðan stefnt um framburð Guðrúnar, og sór hann fyrir að eiga barnið, en altalað var, að faðir að því væri hús- bóndi Guðrúnar, Sigurður trölli. — Alls mun hún hafa átt fimm börn og gekk jafnan illa að finna föður að. — Hér verður aðeins sagt nokkuð frá Jóni, syni henn- ar. Hann ólst upp á hrakningi, eins og títt var um börn, sem slíkt höfðu veganestið sem hann, að vera ómerkingur, sem enginn vildi draga sér. Jón varð snemma frægur og það að endemum. Hann þótti í meira lagi baldinn og erfiður viðurskiptis. Ekki þótti tiltæki- legt að koma á hann fermingu, þá er hann hafði aldur til, því að illa gekk að kenna honum kristin fræði; þótti hann þó ekki heimskur, en fullur af þverúð, kvaðst enda hafa gert samning við kölska sjálfan og væri því fær í flestan sjó. Sáu nú yfirboð- arar drengsins, prestur og hreppstjóri, að við svo búið mátti ekki standa. Þótti lítið hafa ver- ið hirt um hann til þessa og þótt hann aldrei væri nema óskila- barn, varð hann að nema sinn kristindóm. í vandræðum sínum leituðu þeir til Sigurðar bónda á Heiði Guðmundssonar, en orð fór af, hve laginn hann væri að kenna börnum og hve gott lag hann hefði á böldnum unglingum. Átti nú Sigurður að gera úr honum mann eða að minnsta kosti að kenna honum þann kristindóm, sem heimtaður var til ferming- ar. Erfitt verk mun þetta hafa orðið Sigurði. Má ráða það af frásögn séra Þorkels í fyrrnefndri Tímaritsgrein, er hann segir frá Jóni, enda þótt hann geti ekki nafns hans. Prestinum fara orð á þessa leið: „í mínu minni hefur það og borið við, að menn hafa þótzt komast í kynni við kölska og þiggja af honum gjafir, og skal ég nú segja um það sögu eina, er ég heyrði sagða fyrir norðan og gjörast átti um miðja þessa öld og menn trúðu þar víst sumir. Unglingur nokkur var þar í ein- um hreppi ófermdur og ódæll. Hann vildi ekki koma til spurn- inga, en loksins, er hann fékkst til þess og átti að lesa hjá prest- inum fyrstu grein 3. kapít., var sagt, að hann hefði lesið svona: „Reynslan sýnir, að manneskj- urnar eru ekki svo góðar, sem þær ættu að vera; allir hafa sína bresti: Jón í Kálfárdal er búinn að selja Lýsing sinn fyrir spað“') „Saga þessi gekk manna á milli nyrðra, en hvort hún er sönn, læt ég ósagt. En hitt er víst, að fyrir fermingu var honum komið til góðs og guðhrædds bónda til undirbúnings í kristinna manna tölu. Þar þóttist hann, að því er sagt var, komast í kynni við kölska, og gjörði heimilisfólkið fulltrúa með það og hrætt, að minnsta kosti sumt af því. Kom, að sögn, svört flygsa á kvöldin á baðstofugluggann; stökk dreng- urinn þá út og sagði um leið: „Nú vill kölski finna mig.“ Einhverju sinni var sagt, að hann hefði komið með fjórar spesíur, er hann kvað kölska hafa stungið að sér, og þóttist enginn vita, hvernig hann hefði komizt að fé þessu. Var það því tekið af hon- um, og sagt var, að bóndinn hefði farið með það til prestsins síns og viljað, að kirkjan ætti þær, og einkum, að þær væru hafðar í kaleik, því að á þann hátt, en eigi annan, mundi kölski sleppa ') Setningin hljóðar svo, að réttu lagi: „Reynslan sýnir, að mennirnir eru ekki svo góðir, sem þeir ættu að vera. Allir hafa sína bresti, og hjá öllum hreyfir sér einhver syndsamleg tilhneiging, hjá sum- um meir, en sumum minna." — K. R. af þeim hendinni og þær bless- ast. Að lokum komst drengur þessi í kristinna manna tölu, en hugarfarið og breytnin virtist þó eigi stórum kristnari en áður. Þá er hann var 18 vetra, var hann þrívegis búinn að stórstela . . . .“ Jón var fermdur árið 1849, og eru húsbændur hans þá taldir Sigurður á Heiði og Helga kona hans Magnúsdóttir. þenna vitn- isburð fær Jón þá hjá presti sín- um: „Kann sæmilega, er hálf- baldinn.“ Ekki hef ég getað fengið stað- festingu á því, að Jón hafi „þrí- vegis verið búinn að stórstela“ átján vetra gamall. í manntals- bók Hvammsprestakalls segir sóknarpresturinn árið 1855 í vitnisburði um Jón: „Læs, hegð- un lakleg, tvisvar uppvís að þjófnaði.“ Má vera, að grunur hafi leikið á um frekara misferli af hálfu Jóns, en naumast hefur það sannast upp á hann, því að þá hefði prestur hans átt að vita það, en Jón var alla tíð á sömu slóðum. í Skefilsstaðahreppi var annar vandræðadrengur um þessar mundir, Jóhannes að nafni.1) Móðir hans hét Ingibjörg, dóttir Einars líflæknis, er kallaður var.2) Hún átti þá heima á Borg- arlæk á Skaga, en þar bjó þá með konu sinni, Arnbjörgu Jóns- dóttur, Oddur Grímsson. Ingi- björg þessi var ógift, er hún átti dreng sinn, og kenndi hún hann Hallgrími nokkrum Hallgríms- syni, er kallaður var hinn stutti. Hann drukknaði í Hrafndalsá á Skagaströnd 1846. Drengur þessi fæddist 1830 og var að miklu leyti alinn upp á Borgarlæk og talinn tökubarn, en var sonur Odds. Ingibjörg var á vist með Oddi, og átti hann við henni fjölda barna, og voru víst öll get- ') Móðir hans flyzt frá Sauðá að Borg- arlæk árið 1823. — Gísli Konráðsson seg- ir í Sögu Skagjstrendinga og Skagaraanna, að Jóhannes hafi verið yngri en Jón Berg- þórsson, en það er rangt, Jóhannes var þremur árum eldri. 2) Ingibjörg kenndi ýmsum börn sín framan af, en þau voru níu alls, en öll voru þau feðruð Oddi að lyktum. Átti Oddur í einlægum útistöðum vegna hór- dómsbrota. Hann var maður harðdugleg- ur og að ýmsu merkur. — K. B.

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.